Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar 8. október 2026 13:01 Við gerum stefnumótun fyrir fyrirtæki, af hverju ekki fyrir starfslokin? Starfslokin geta verið langþráð tímamót. Eftir marga áratugi í atvinnulífinu fækkar skyldunum og við eignumst allt í einu miklu meira frelsi og tíma því það losna rúmlega 2000 klst árlega við starfslokin. Það kemur samt mörgum á óvart að þessu nýja frelsi getur líka fylgt óöryggi, tómleikatilfinning og efasemdir um eigið hlutverk og tilgang. Þetta er samt mjög eðlilegt því við tengjum oft sjálfsmynd okkar og tilgang ósjálfrátt við starfstitilinn og þegar hann er ekki lengur til staðar er hjálplegt að gefa sér rými til þess að líta inn á við, skilgreina nýtt hlutverk og endurmeta gildin. Þá getur skipt sköpum að fara í persónulega stefnumótun til að undirbúa starfslokaferlið. Hvernig metum við árangur eftir starfslokin? Á meðan við erum ennþá virk í atvinnulífinu snýst velgengni og árangur oft um viðurkenningu, ábyrgð og laun, en þeir mælikvarðar eiga ekki lengur við eftir starfslokin og þá þurfum að skilgreina þessi hugtök uppá nýtt. Nýr mælikvarði á árangur gæti verið hversu vel okkur gengur að mynda innihaldsrík tengsl eða að mæta mótlæti. Hann gæti líka verið hversu vel okkur gengur að láta drauma okkar rætast t.d. að læra eitthvað nýtt, rækta okkur sjálf, skapa ný tækifæri og halda góðri heilsu og virkni. Margir samverkandi þættir móta velferð okkar eftir starfslokin og einn sá mikilvægasti er að samstilla framtíðarsýnina okkar og fjárhagslegar ákvarðanir sem kallar á góðan undirbúning m.a. með því að afla þeirrar þekkingar sem þarf til þess að gera ráðstafanir sem styðja við það líf sem okkur langar að upplifa þegar við hættum störfum. Þessi samstilling er mjög mikilvæg, en árangursríkast að byrja á því að móta framtíðarsýnina og taka síðan fjárhagslegar ákvarðanir út frá henni, en ekki öfugt. Það skilar miklu farsælli niðurstöðu að spyrja fyrst; “Hvernig lífi langar mig að lifa?” og gera síðan ráðstafanir í fjármálum sem styðja við þá sýn þótt við verðum ef til vill að færa einhverjar fórnir, heldur en að byrja á “excel” skjalinu og spyrja “Hverju hef ég efni á?” Þessir þættir verða að vera í góðu jafnvægi því afkomukvíði á þessu æviskeiði eins og öðrum er mikill hamingjuspillir og streituvaldur sem er mikilvægt að komast hjá ef við eigum þess kost. Árangur á þessu æviskeiði er líka hægt að meta eftir því hvernig okkur gengur að njóta hversdagsins og gefa af okkur eða einfaldlega að upplifa sátt í eigin skinni. Tíminn sem tekur við eftir starfslok er verðskuldaður uppskerutími sem skiptir miklu máli að undirbúa vel svo við getum notið hans til fulls. Jafnvægi milli festu og flæðis Hvert æviskeið hefur sínar áskoranir og tækifæri og mjög mikilvægt að horfa fram á við og beina frekar athyglinni á það sem er framundan heldur en það sem við erum að yfirgefa. Við hlökkum til þess að þurfa ekki lengur að vakna við vekjaraklukkuna og losna við umferðina á leiðinni í vinnuna, en það er ekki síður mikilvægt að setja fókusinn á það sem við hlökkum til eftir starfslokin, ekki bara það sem við verðum fegin að losna við. Taktur lífsins mótast ekki lengur af ytri þáttum eins og vinnutíma, verkefnum og skuldbindingum, því nú eigum við allan okkar tíma skuldlaust og í því felast bæði áskoranir og tækifæri. Rannsóknir sýna að eitt af því mikilvægasta í undirbúningsferlinu er að hafa tilbúið plan eða rútínu sem býður upp gott jafnvægi milli festu og sveigjanleika líkt og góð jazz tónlist sem hefur bæði ákveðnar laglínur og form, en einnig svigrúm til þess að spila af fingrum fram. Þá upplifum við að gleyma okkur og fara í flæði sem er mjög jákvætt fyrir hamingju okkar og líðan. Virði lífsins birtist okkur á allt annan hátt á þessu æviskeiði. Við getum ekki alltaf gefið okkur nægan tíma til að vera til staðar þegar við erum störfum hlaðin með tilheyrandi tímahraki, en kunnum því betur að meta nærandi samveru eða kaffispjall í góðum félagsskap, án þess að þurfa að flýta okkur á fund. Það tekur sinn tíma að læra að njóta þess til fulls og vera til staðar, en virkilega þess virði að þjálfa hæfnina til þess á markvissan hátt. Að skipta máli Þegar fólk hættir störfum saknar það oft vinnunnar, en oftar en ekki er ástæðan dýpri eins og að sakna þess að upplifa að skipta máli, sem er okkur öllum mikilvægt. Á meðan við erum ennþá að vinna er þessi tilfinning yfirleitt til staðar án þess að við tökum sérstaklega eftir henni eða skilgreinum. Samstarfsfólkið leitar til okkar, framlag okkar skiptir máli og við upplifum að vera virt að verðleikum ef við erum heppin með vinnustað. Eftir starfslokin er þessi speglun og endurgjöf ekki lengur til staðar, en þörfin fyrir að skipta máli hverfur ekki. Þess vegna er mikilvægt að greina á milli þess að ákveðnu hlutverki sé lokið og þess að við skipta ekki máli. Það þýðir alls ekki það sama. Þessi upplifun er vissulega áskorun, en um leið tækifæri til þess að endurskapa tilgang og hlutverk og skilgreina hver við erum án starfstitils eða stöðu á vinnumarkaði. Það kallar á tölvuverða sjálfsskoðun sem mörg okkar hafa ekki gefið sér tíma fyrir en er fyrsta skrefið í þessari undirbúningsvinnu, því ef við gefum tilfinningunum sitt rými, líka þessum óþægilegu, verður svo miklu auðveldara að fara í gegnum þetta ferli og eignast innihaldsríkara líf. Að deila því sem manni liggur á hjarta Samvera og tengsl við aðra er meðal þess sem er mikilvægast að rækta eftir starfslokin því við eigum ekki lengur vísan aðgang að því samfélagi sem við tilheyrum daglega á vinnustaðnum. Félagsleg einangrun og einmanaleiki mælast sem einn sterkasti áhrifaþátturinn á líðan fólks svo það er mikið í húfi að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til þess að við höldum áfram að upplifa innihaldsrík tengsl við aðra svo við getum átt farsælt framhaldslíf eftir starfslokin. Carl Jung sagði að einmanaleiki hefði ekkert að gera með hvort það væri fólk í kringum okkur heldur hvort við hefðum tækifæri til að deila því sem okkur liggur á hjarta. Í þessu felst mikil viska sem minnir okkur á þá auðlind sem við eigum í samveru og tengslum við aðra. Við eigum það líka sameiginlegt að vanmeta áhuga annarra á því sem við höfum fram að færa, sem er ein af okkar hugsanaskekkjum sem koma í ljós þegar rannsóknir eru gerðar á því hvaða áhrif það hefur á velferð okkar og líðan að spjalla og eiga samskipti við ókunnuga. Lokaorð Nýtt æviskeið kallar á nýja framtíðarsýn og endurmat á því sem gefur lífinu þann tilgang og innihald sem við sækjumst eftir, en góðu fréttirnar eru að það er í okkar valdi að móta þessa þætti og skapa okkur ný tækifæri í samhljómi við það sem skiptir okkur máli. Langflest af því sem gefur lífinu mesta virðið verður aldrei hægt að finna á ferliskránni okkar og það er kannski dýrmætasta uppgötvunin við starfslokin. Höfundur er stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun