Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar 8. október 2026 11:30 Lífsskoðunarfélög fjalla um siðferði, gildi og helstu tímamót í lífi einstaklinga og fjölskyldna, meðal annars í gegnum athafnir á borð við fermingar, giftingar og útfarir. Þau geta verið bæði trúarleg og veraldleg og því er hér talað um „lífsskoðunarfélög“ fremur en „trú- og lífsskoðunarfélög“. Í þessari grein eru færð rök fyrir því að núverandi lög og samningar tryggi lífsskoðunarfélögum ekki jafna stöðu gagnvart ríkisvaldinu. Fjallað er um mismun í fjárveitingum, greiðslu sóknargjalda og aðstöðu til athafna. Að lokum eru lagðar fram tillögur að sanngjarnara fyrirkomulagi, en sumar þeirra mætti innleiða án lagabreytinga. Samkvæmt stjórnarskrá landsins má ríkisvaldið ekki gera upp á milli fólks á grundvelli lífsskoðana þess en í henni er samt sem áður að finna ákvæði um sérréttindi trúarlegrar lífsskoðunar, hinnar evangelísk-lútersku trúar og stærstu kirkju hennar, Þjóðkirkjunnar. Nafnið Þjóðkirkjan segir ýmislegt því það má rekja til tíma einveldis og trúarlegrar einokunar, þegar engin önnur lífsskoðun var leyfð í landinu. Við búum ekki lengur við einveldi en höfum ekki tekið skrefið til fulls frá einkarétti og sérhagsmunagæslu þessa stóra kristna söfnuðar yfir í fullt jafnræði lífsskoðunarfélaga. Lítum á nokkrar grunnforsendur þessa máls og þá fyrst á hvernig aðild íbúa landsins að lífsskoðunarfélögum er háttað. Skráningum í lífsskoðunarfélög fer hlutfallslega fækkandi Þann 1. desember ár hvert gerir Þjóðskrá upp fjölda skráðra félaga í lífsskoðunarfélögum (og utan þeirra). Síðasta meginuppgjör var birt 1. desember 2025.(1) Samkvæmt því voru 411.400 íbúar á Íslandi og þar af voru 285.823 skráðir í lífsskoðunarfélög, eða 69,5%. Þetta er talsvert lækkað hlutfall en árið 2011 var það 90,3% og árið 1998 96,7%. Stærstu félögin nú eru Þjóðkirkjan (54,5% landsmanna), Kaþólska kirkjan (3,9%), Fríkirkjan í Reykjavík (2,4%), Fríkirkjan í Hafnarfirði (1,9%), Siðmennt (1,6%) og Ásatrúarfélagið (1,5%). Af heildarfjölda allra skráðra í lífsskoðunarfélag eru 279.000 (97,6%) í trúarlegum og 6.823 (2,4%) í veraldlegum félögum. Fjöldi fólks sem hefur kosið að standa utan lífsskoðunarfélaga er 30.931 eða 7,5% landsmanna. Flokkaðir sem „ótilgreindir“ eru 94.646 (23%) en þar eru að stórum hluta börn (15 ára og yngri) og fullorðnir einstaklingar sem hafa ekki tekið afstöðu til skráningar. Á því eru ýmsar skýringar sem verður ekki farið í hér. Samkvæmt gagnasafni Hagstofunnar fækkar á ári hverju í Þjóðkirkjunni eða um 1% á ári (sbr. fall frá 89,9% árið 1998 niður í 54,5% nú eða um -35,4% á 27 árum). Þetta stafar mestmegnis af eftirfarandi breytingum: i) mikilli fjölgun innflytjenda (um 2800 manns á ári frá 1998) sem eru „ótilgreindir“, ii) fækkun sjálfkrafa skráninga nýfæddra barna í lífsskoðunarfélög (um 1/6 hluta, eða um 700 börn árlega frá 2013), iii) brottflutningi Íslendinga (um 400 manns á ári frá 1998), iv) fjölda látinna (um 2600 á ári) sem flestir voru skráðir í Þjóðkirkjuna og v) úrskráningu fólks úr Þjóðkirkjunni í önnur félög (úrskráningar voru 907 fleiri en innskráningar árið 2025). Merkilegt ósamræmi og ójafnræði er þó í gildi samkvæmt lögum um sóknargjöld á þá leið að Þjóðkirkjan fær greidd sóknargjöld allra brottfluttra einstaklinga sem eru áfram skráðir í hana og hafa ekki skipt um ríkisfang en önnur lífsskoðunarfélög njóta ekki sambærilegs réttar (sjá 3. mgr. 3. gr. laga um sóknargjöld). Slíkt fyrirkomulag samræmist illa þeirri kröfu að sambærileg félög sitji við sama borð. Breytingar á lífsskoðunum landsmanna Ofangreind skipting fólks í skráða aðild að lífsskoðunarfélögum, trúarlegum eða veraldlegum, er þó ekki alltaf í samræmi við raunverulegar lífsskoðanir fólks. Í Þjóðarpúlsi Gallup sem kom út í september 2025 sögðust 41% vera „trúaðir“, 35% „ekki trúaðir“ og 23% „trúleysingjar“. Samanlagt kenna því 58% þýðisins sig ekki við trú. Í nóvember 2011 var þessu öfugt farið og 58% sögðust þá trúaðir (2). Á 14 árum hefur trúuðum því fækkað um tæpan þriðjung, úr 58% í 41%. Þetta aukna trúleysi getur verið meðal ástæðna aukinnar skráningar fólks utan trúfélaga og fækkunar í Þjóðkirkjunni. Frá sjónarhóli þeirra sem eru ekki trúaðir er fremur ljóst að með hverri kynslóð eru fleiri íbúar landsins að vakna til þess veruleika að guðstrú er ekki það haldreipi og eini kostur sem fyrri kynslóðir lifðu við. Fólk leitar í auknum mæli að áþreifanlegum og gagnreyndum lausnum. Þjóðkirkjan hefur að einhverju leyti brugðist við með því að útvíkka hugtakið trú á þann máta að það sé nægilegt að fólk segist trúa eingöngu á góð gildi til að það geti tilheyrt Þjóðkirkjunni og sé velkomið. Þetta birtist meðal annars í leik með trúartákn kristninnar á vefsíðu hennar. Þrátt fyrir þessa hugmyndafræðilegu „opnun“ og yfirbragð þess að bjóða alla velkomna blasir annar raunveruleiki við þegar fólk utan Þjóðkirkjunnar leitar eftir því að fá afnot af húsakynnum hennar til athafna. Þegar húmanískum athöfnum tók að fjölga upp úr 2008 leitaði smá hluti þess fólks sem vildi trúlausar athafnir eftir því að geta verið í fallegu húsnæði kirkjunnar. Í rúmt eitt ár var þetta velkomið en kirkjuþing Þjóðkirkjunnar ákvað að loka á þetta árið 2009. Nú mega eingöngu prestar hennar annast athafnir í kirkjum hennar og við hjónavígslur þarf a.m.k. annar aðilinn að vera meðlimur í Þjóðkirkjunni. Hins vegar má hleypa inn alls kyns menningarviðburðum í kirkjur hennar og veislum í safnaðarheimilin. Útilokunin beinist sérstaklega að athafnahaldi annarra lífsskoðunarfélaga. Þetta er skiljanlegt en um leið getur Þjóðkirkjan ekki þóst vera kirkja allrar þjóðarinnar. Breytt samfélag kallar á breytt og bætt lýðræðislegt umhverfi Samantekið er ljóst að í kristin félög eru nú skráð 65% þjóðarinnar, í félög annarrar sannfæringar 4,5%, utan félaga 7,5% og ótilgreindir eru 23%. Þetta þýðir að það er bæði fjölbreytni og óvissa í staðsetningu íbúa landsins hvað þetta varðar þó að 54,5% eigi heimili í þjóðkirkjukristninni. Það sést hvert þetta stefnir. Innan fárra ára verður hlutfall íbúa landsins í Þjóðkirkjunni komið undir 50% og innan fárra áratuga verða færri en 50% íbúa í trúarlegum félögum. Þetta gerist vegna samanlegðaráhrifa þess að (i) nýburar foreldra sem eru ekki í sama lífsskoðunarfélagi eru ekki lengur sjálfkrafa skráðir, (ii) fólk sem kveður landið er flest úr Þjóðkirkjunni og (iii) áhugi á trú fer minnkandi. Lýðræðisleg réttindi og jafnræði eiga þó ekki að byggja á stærð hópa heldur kröfunni um jafna meðferð. Þessi gjörbreytta samsetning þjóðarinnar hvað þessi mál varðar kallar þó enn frekar á lýðræðislegar breytingar í samræmi við þær. Ríkið og þjóðin skulda Þjóðkirkjunni ekki eilífar greiðslur Samkvæmt Viðbótarsamningnum milli íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar frá 2019 fær Þjóðkirkjan um 2,4 milljarða á ári, það er um 200 milljónir greiddar á mánuði, um alla tíð, á grunni þess að ríkið hafi keypt af kirkjunni góðan hluta jarða hennar árið 1907. Árið 1907 var engin önnur trú til staðar í landinu svo heitið gæti. Ríkið og kirkjan voru eitt og því aldrei spurning um að ríkið styddi frelsi fólks til annarra valkosta. Á þeim tíma virtist því „eðlilegt“ að lögbinda slíkan forréttindamiðaðan samning með óendanlegum greiðslum. Eins og gefur að skilja er ríkið fyrir löngu búið að greiða upp þessar jarðir og skuldar Þjóðkirkjunni ekki neitt. Jarðirnar og virði þeirra voru skráð í bók (4) um samninginn en engin afsöl voru afhent líkt og á við um eðlilega lögbundna sölu eigna (5). Þjóðkirkjan fékk bara að mjólka fé af þessari furðulega keyptu kú án tímatakmarkana. Þjóðkirkjan er ekki lengur trúarlegt ægivald heldur bara einn söfnuður í landinu, ásamt mörgum öðrum, þótt stór sé. Í því samfélagi nútímans sem við viljum kenna við mannréttindi á borð við jafnrétti, jafnræði og frelsi til skoðana er eðlilegt að spyrja hvort fyrirkomulag sem varð til við allt aðrar samfélagslegar aðstæður eigi enn rétt á sér. Nú kann að vera að þessi 54,5% landsmanna sem eru í Þjóðkirkjunni vilji veita henni heilmikið fé árlega gegnum framlög sín en það er þá einungis þeirra mál og ábyrgð en ekki allra hinna 45,5% landsmanna. Framlenging á „kirkjujarðasamkomulaginu“ inn í Viðbótarsamninginn er siðferðileg og lýðræðisleg óhæfa sem gefur sérstökum hópi í landinu hindrunarlausan aðgang að milljörðum árlega úr ríkissjóði. Réttlátt fyrirkomulag gjalda til lífsskoðunarfélaga Þegar ákveðið er hvernig eigi að veita opinberu fé allra landsmanna til lífsskoðunarfélaga er það einkum tvennt sem skiptir mestu máli varðandi sanngirni og jöfnun stuðnings. Í fyrsta lagi hvert hlutfall fjölda félaga miðað við íbúafjölda í félögunum er og í öðru lagi hver húsakostur og önnur aðstaða þeirra er til að halda mikilvægustu athafnir sínar. Meðal athafna er útförin jafnan sú mikilvægasta því undantekningalítið vill fólk af öllum lífsskoðunum viðhafa útför þegar það deyr. Það er ekki lengur sjálfgefið (og sjálfvalið með yfirgangi gamla meirihlutans) að samfélagið hafi aðeins kristin hús í boði fyrir íbúa landsins. Til þess að halda útför þarf hús og það er æskilegt að það hús sé sérstaklega hannað og byggt fyrir þær því reynsla undanfarinna áratuga hefur sýnt að fólk vill jafnan halda útfarir í sérhönnuðum húsum fremur en almennum samkomusölum. Með þessar forsendur í huga gæti réttlátt fyrirkomulag litið út svona: (A) Greiðslur á hvern meðlim. Tveir meginvalkostir koma til greina. Annars vegar gætu sóknargjöld áfram runnið til lífsskoðunarfélaga í hlutfalli við fjölda félagsmanna (16 ára og eldri). Hins vegar mætti fella sóknargjöld niður og verja samsvarandi fjármunum í aðra liði, svo sem heilbrigðiskerfið. Hvor leiðin sem farin yrði er meginmarkmiðið jafnræði. Sé haldið áfram með sóknargjöld á Þjóðkirkjan ekki eitt félaga að fá sóknargjöld vegna brottfluttra ríkisborgara. Annaðhvort eiga öll lífsskoðunarfélög að fá þessi gjöld eða ekkert þeirra. (B) Laun. Sé launagreiðslum haldið áfram þarf að jafna leikinn. Ein möguleg leið er að upphæðir sem veittar eru til launa þeirra sem sjá um athafnir (presta, goða, athafnarstjóra o.s.frv.) fari eftir náðum fjöldaeiningum meðlima sem hefjist þegar félag hefur náð ákveðnu lágmarki í fjölda þeirra. Til dæmis að ein full laun miðist við hverja 2 þúsund félaga, með þröskuldsfjölda 500 meðlimi í félagi (til að fá þá ¼ launa eins aðila). Með þessu á að fella niður ákvæði um árlegar greiðslur upp á um 400 milljónir til Þjóðkirkjunnar skv. svonefndum Viðbótarsamningnum (frá 2019) (sbr. 2. mgr. 1. gr. samningsins) og féð færi í að greiða öllum jafnt samkvæmt reglu sem byggir á jöfnum rétti, ellegar fella hann niður hjá öllum (3). (C) Jöfnun lágmarksaðstöðu. Samfara þessu þarf að reisa fjölmenningarleg athafnahús fyrir útfarir í stærstu sveitarfélögum landsins fyrir aðra söfnuði en Þjóðkirkjuna sem á alls staðar kirkjur. Þessi athafnahús verði hlutlaus hvað táknræni varðar en uppfylli kröfur um stærð, hljómburð, birtu og almennar aðstæður til athafna og aðstöðu fyrir gesti. Fljótt á litið gæti þurft 2–3 svona hús til að þjóna höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, eitt á Suðurlandi, eitt á Austurlandi, tvö á Norðurlandi, eitt á Vestfjörðum og eitt á Vesturlandi. Einnig mætti skoða hvort hægt væri að nýta núverandi opinbert húsnæði betur. Með því að fjarlægja kristin tákn úr kirkju, kapellu og bænhúsi í Fossvogi mætti til dæmis draga úr þörf fyrir nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu. Rökin um varðveislu menningarverðmæta Hvað með viðhaldið á öllum menningarverðmætum kirkjunnar? gæti einhver spurt. Varðandi gamlar kirkjubyggingar um allt land sem Þjóðkirkjan hefur sótt fé í til ríkisins til viðhalds þá ætti ríkið að taka þær merkilegustu yfir og sjá um þær sem þjóðareign og þjóðararf, enda á öll þjóðin þessi hús sem landsmenn hafa greitt undir alla tíð. Þetta eru menningarlegir safngripir sem eru hluti af sögu þjóðarinnar óháð því hvaða lífsskoðun landsmenn leggja sannfæringu sína við í dag. Samkvæmt Viðbótarsamningnum frá 2019 greiðir ríkið Þjóðkirkjunni rúmar 700 milljónir árlega til þessara mála sem yrðu þá hreinlega færðar yfir til þessa málaflokks hjá ríkinu. Um þessa hluti má semja, en grundvallarhugmyndin væri sú að varðveisla menningararfs yrði aðskilin frá sértækum stuðningi við eitt trúfélag. Úrelt stjórnarfarsleg hugmynd og óréttmætt fyrirkomulag að viðhafa Þjóðkirkju Að öðru leyti þarf að aftengja eina kirkju við það að vera „þjóðkirkja“ og njóta sérstakrar verndar samkvæmt stjórnarskrá. Þessi evangelísk-lúterska kirkja getur haldið sínu menningarlega sæti og arfleifð sem ríkulegur hluti af sögu þjóðar án þess að önnur lífsskoðunarfélög búi við lakari réttarstöðu eða minna hlutfallslegt aðgengi að opinberum fjármunum. Markmiðið er ekki að veikja eitt lífsskoðunarfélag heldur að tryggja að öll félög sitji við sama borð. Alþingi þarf að endurskoða skipan þessara mála með það að markmiði að tryggja jafna réttarstöðu lífsskoðunarfélaga, gagnsæja úthlutun opinbers fjár og sanngjarnt aðgengi að aðstöðu til athafna. Slík endurskoðun væri verðugt verkefni fyrir framsýna ríkisstjórn og mikilvægt skref í átt að lýðræðislegu jafnræði. Höfundur er formaður Farsældar – húmanísks lífsskoðunarfélags. --------------------------------------------------------- (1) Sjá frétt Þjóðskrár 16. des. 2025: https://www.skra.is/um-okkur/frettir/frett/2025/12/16/Skraning-i-tru-og-lifsskodunarfelog-fram-til-1.-desember-2025/ (2) Sjá https://www.gallup.is/documents/1478/Puls_0925_Tru.pdf (3) Sjá: https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Domsmalaraduneytid/VIÐBÓTARSAMNINGUR%20ÍSLENSKA%20RÍKISINS%20OG%20ÞJÓÐKIRKJUNNAR.pdf Alþingi felldi út alla sjóði sem áður tengdust Þjóðkirkjunni og ríkið greiddi til árlega, árið 2020, með lögum. Sjá https://www.althingi.is/altext/stjt/2020.095.html Þau kallast: Lög um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, og fleiri lögum og um brottfall laga um Kirkjumálasjóð (viðbótarsamningur íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar). (4) Kirkjueignir á Íslandi 1597 – 1984. Reykjavík: Kirkjueignanefnd, 1992. 2 bindi. (5) Sjá stutta umfjöllun um kirkjujarðasamkomulagið í meistaranámsritgerð Gunnars Más Jakobssonar lögfræðings: „Trúfrelsi og jafnrétti trúfélaga“, Háskóla Íslands 2011. 45–46. Þar segir meðal annars: „Þrátt fyrir að Þjóðkirkjulögin segi það berum orðum að umræddar kirkjujarðir verði framvegis eign íslenska ríkisins, er ekki hægt að segja að um eiginlegan eignarrétt sé að ræða. ... Engir formlegir kaupsamningar hafa verið gerðir um kaup á þeim, …. Það væri hægt að fara mörgum orðum um það álitaefni hvort og þá hvernig kirkjan öðlaðist eignarrétt yfir jörðunum í upphafi, og hvort að farið hefði verið eftir sanngjörnum leikreglum viðskipta í öllu því ferli.“ https://hdl.handle.net/1946/7164 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun