Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. október 2026 09:02 Hekla er landsliðskona í Bakgarðshlaupi. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Hekla Hannesdóttir er ein þeirra.
Hekla er 38 ára landsliðskona í Bakgarðshlaupi. Hún tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Hekla hefur mest farið 33 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég hef alltaf haft gaman að því að skokka en ég fór ekki að æfa hlaupin markvisst fyrr en ég ákvað að taka þátt í Puffin Run fyrir tveimur árum, heima í Eyjum. Eftir það fékk ég smá trú á sjálfri mér, skráði mig í hálfmaraþonið í Kaupmannahöfn í september sama ár og í framhaldi í heilt maraþon í maí 2025 í Kaupmannahöfn einnig. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Ég fékk þá flugu í hausinn sumarið 2025, eftir að ég kláraði maraþon og Laugavegshlaupið, að ég gæti farið í Bakgarðshlaup og tikkað í 100 km boxið einnig, sem tókst 😊 Ég hef tvisvar sinnum tekið þátt í Bakgarðinum, hljóp þá 100 km í fyrsta skiptið og 221 km í annað skiptið, í maí á þessu ári. Hekla vildi ná hundrað kílómetrunum. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Ég verð að segja Edie, góðvinur minn og einkaþjálfari. Hann er svo sjúklega hress og hefur margt að segja. En einnig yndislegu hlaupavinkonur mínar, maður getur alveg gleymt sér á spallinu við þær. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Ætli það sé ekki bara gifflar og hafrastykki, ég hef svona mest verið að vinna með það. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Ég held við séum flest að borða eitthvað svipað, en ég tók eftir því um daginn þegar liðið tók æfingu í Bakgarðinum í Heiðmörk, að Frikki er að vinna með frekar sérstakt nesti, soðnar kartöflur með hýðinu og harðfiskt með smjöri, ekki svo vitlaust samt:) Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Þá er ég annað hvort að sinna fjölskyldunni eða í vinnunni. Ég og Víðir maðurinn minn eigum þrjár dætur, Sölku, Mirru og Eik og svo eina Havanese hana Orku. Þær stunda allar íþróttir og því að nógu að snúast sem er bara gaman. Þess á milli reynum við að kíkja á fjölskylduna í Eyjum og njóta þess að hitta vini og vandamenn hér í bænum. Hekla með fjölskyldunni. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Fyrsta markmið er allavega að reyna að bæta metið mitt, annað kemur svo í ljós. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Það var þegar ég fann að ég var að fá í magann í kringum áttunda hring í fyrsta skipti sem ég tók þátt. Edie vinur minn tók eftir því að ég var farin að hlaupa eitthvað óvenju hratt og kallaði á eftir mér hvað væri eiginlega að mér. Ég náði allavega að klára hringinn og redda mér immodíum fyrir næsta hring. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Ég held ég verði að segja Öskjuhlíðin, það er ekkert mál fyrir fólk að hvetja alls staðar í brautinni sem hjálpar mikið og nóttin þar er styttri, þar sem sú keppni er haldin í maí ár hvert. Hef einnig heyrt að það sé mjög gaman að fá fólkið sitt í Elliðarárdalinn að peppa og ég er spennt að prófa það. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Ég segi Tommi, sá hann hlaupa um daginn og mér fannst hann bara svífa áfram. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Ég hlýt að vera með harðan haus, annars kæmist ég ekki í gegnum hlaup eins og Bakgarðinn. Ég get einnig verið þrjósk, sem getur verið bæði veikleiki og styrkleiki í þessum aðstæðum. Stress og kvíði er alltaf minn akkilesarhæll en getur alltaf hjálpað líka þegar á reynir. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Ég held ég hafi ekki gert neitt skrýtið. En það sem hefur haldið mér gangandi eru skilaboðin frá fólkinu mínu á meðan ég er að hlaupa, ég kíki á þau þegar ég tek því rólega inn í hring. Hekla segist geta gleymt sér á spjalli með hlaupavinkonum sínum. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Held það sé bókað Mari, hún hefur verið minn helsti peppari síðan í síðustu keppni og stór ástæða fyrir því að ég hélt áfram eftir sólahring á hlaupum. Peppið frá henni og hlaupahópnum, ásamt svo mörgum öðrum, var ólýsanlegt. Ég hef ekki mikla reynslu af því að hlaupa með hinum í liðinu en hlakka til þess. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Good day, return to peace Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Ég er lífsglöð mamma þriggja stelpna sem elskar ekkert meira en að vera heima hjá sér. Þrátt fyrir það alltaf á ferðinni og stoppa nánast ekki allan daginn. Æfingar og hlaup eru mitt geðlyf og vakna ég helst á undan öllum öðrum til þess að ná þessum tíma fyrir sjálfa mig. Líklega smá ofvirk. En annars má ég ekkert aumt sjá og grenja yfir öllu. Mér er annt um fólkið í kringum mig og óendanlega þakklát fyrir allt og alla sem ég hef kynnst meðfram hlaupunum síðustu tvö árin. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Fyrst og fremst að komast upp í rúm. Maður er fljótur að stirðna upp svo það er mikill léttir að komast heim. En svo er það bara hvíldin og næringin eftir á sem skiptir öllu. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Mari Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Þrautseig – þrjósk - óstöðvandi
Bakgarðshlaup Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Fleiri fréttir „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ „Erum að slípa saman liðið“ Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ „Svo lélegt að Þorgrímur Þráins var næstum byrjaður að reykja“ Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Þjálfari Hauks rekinn Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Benedikt birtir mynd frá slysstað Fyrsta til að vinna á heimavelli og fagnaði með söng Dagskráin í dag: Íslandsmeistararnir fara í Vesturbæinn Sjá meira