Neytendur

Frétta­maður missti af strætónum til baka

Bjarki Sigurðsson skrifar
Rætt við ísraelska ferðamenn um borð í strætónum.
Rætt við ísraelska ferðamenn um borð í strætónum. Vísir

Hversu einfalt og þægilegt er að taka strætó á Keflavíkurflugvöll nú þegar vagninn ekur farþegum alveg upp að flugstöðinni? Fréttastofa kannar málið í beinni útsendingu og ræðir við gesti og gangandi.

Í gær hóf leið 55, sem ekur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar, að aka að nýrri stoppustöð sem er mun nærri flugvellinum en sú sem áður var notuð. Mikil óánægja hefur verið með fyrirkomulagið og ferðamenn gagnrýnt aðgengismál.

Klukkan 10:30 hefst bein útsending í spilaranum hér fyrir neðan þar sem fréttamaður tekur strætó frá Hafnarfirði til Keflavíkur og til baka og kannar þennan nýja möguleika þegar ferðast á úr landi. 

Rætt verður við fulltrúa frá Vegagerðinni, Isavia og ferðamenn.

Uppfært klukkan 12:20: Bjarki Sigurðsson fréttamaður og Einar Árnason tökumaður misstu af strætónum á leiðinni til baka. Þeir félagar fengu fá far með Flybus til baka en fyrir vikið lauk útsendingu fyrr en til stóð. Bjarki útskýrir málið í klippunni neðst í fréttinni.

Hér að neðan má sjá valdar klippur úr ferðinni hingað til.

Bjarki ræðir við fulltrúa Vegagerðarinnar.

Bjarki ræðir við Gísla vagnstjóra.

Bjarki ræðir við ísraelska ferðamenn.

Bjarki axlar ábyrgð og kveður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×