Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar 1. október 2026 14:02 Bókun 35 við EES-samninginn virðist við fyrstu sýn vera frekar tæknilegt lögfræðimál. Hún snýst um það hvernig íslensk lög eiga að fara með reglur sem koma frá EES-samningnum þegar þær rekast á önnur íslensk lög. En málið er í raun mikið stærra. Það snýst um hvernig við skiptum valdi á milli þjóðarinnar, alþingis, stjórnvalda, dómstóla og forseta Íslands. Þess vegna verður að spyrja hvort breytingin snerti ekki líka sjálfa uppbyggingu íslenska stjórnkerfisins. Það líkast einna helst eins og byrjað sé að molna undan ákveðnum stoðum samfélagsins. Alþingi Ef íslensk lög sem Alþingi hefur sett rekast á við lög sem byggja á EES-reglum, þá þarf að ákveða hvað eiga að gilda. Með Bókun 35 er ætlunin að styrkja þá reglu að rétt innleiddar EES-reglur skuli ganga framar öðrum íslenskum lagaákvæðum þegar árekstur verður. Stjórnvöld hafa bent á að núverandi fyrirkomulag hafi ekki verið talið nægilegt af Eftirlitsstofnun EFTA. Hvað verður þá um svigrúm Alþingis til að setja lög sem kunna síðar að rekast á EES-reglur? Það er ekki verið að leggja Alþingi niður. Það er ekki verið að taka löggjafarvaldið formlega af þinginu. En það er verið að breyta því hvernig lög alþingis standa gagnvart ESB tilskipunum. Og þar byrjar að molna undan þeirri einföldu mynd að Alþingi sé æðsti löggjafinn. Framkvæmdarvaldið Stjórnvöld sjá um að framkvæma lögin og taka ákvarðanir á grundvelli þeirra. Ef EES-reglur eiga að hafa sérstakt vægi innan íslensks réttarkerfis verður líka mikilvægara að stjórnvöld innleiði þær rétt og tryggi að þær fái það gildi sem þeim er ætlað. En um leið breytist valdajafnvægið. Þegar stjórnvöld geta byggt ákvarðanir sínar á reglum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að fylgja, og þær reglur eiga síðan að ganga framar öðrum íslenskum lögum, verður sífellt mikilvægara hvaðan reglurnar koma og hvernig þær verða til. Þetta er ekki endilega stórt stökk. Það er frekar smám saman að molna undan því gamla fyrirkomulagi þar sem hægt var að líta á íslensk lög sem alveg skýran upphafspunkt. Dómstólarnir Dómendur skulu dæma samkvæmt stjórnarskrá. Í íslensku stjórnkerfi er mikilvægt hlutverk dómstóla að skera úr um það hvernig lög skuli skilin og hvaða reglur gildi í tilteknu máli. Þegar tvenn íslensk lög rekast á getur dómstóll þurft að meta hvor regla eigi að ganga framar. En með Bókun 35 verður kveðið á í lögum að rétt innleidd EES-regla eigi að hafa forgang. Þá verður hlutverk dómstólsins að nokkru leyti annað. Dómstóllinn eiga áfram að túlka lögin, en rými hans til að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að ESB regla ráði verður ekkert. Það er þetta sem skiptir máli. Undirskrift forseta skerðir því vald dómenda. Þannig molnar undan þeirri hugmynd að íslenskir dómstólar hafi síðasta orðið um það hvaða íslensku lög eigi að gilda þegar reglurnar rekast á. Forsetinn hefur með undirskrift skert vald dómenda. Forsetinn og þjóðin Samkvæmt stjórnarskránni hefur forseti Íslands skildu til að samþykkja lög alþingis eða synja og senda í þjóðaratkvæði þegar alþingi hefur samþykkt lög. Ef lög alþingis hafa hins vegar þegar gefið ákveðnum EES-reglum sérstakan forgang, þá hefur það þegar áhrif á hvað forsetinn er í raun að taka afstöðu til, þegar hann fær lög til staðfestingar. Það getur því komið upp sú staða að forsetinn geti synjað lögum staðfestingar, en að lagalegt umhverfi sem þegar hefur verið mótað með EES-reglum takmarki síðan hverju þjóðaratkvæðagreiðslan getur í raun breytt. Forsetinn hefur því með að samþykkja bókun 35. takmarkað eigið vald. Og enn molnar undan. Hvað er þá að gerast? Það er auðvelt að líta á Bókun 35 sem tæknilega breytingu á EES-lögum. Hún á að tryggja að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum og að einstaklingar og fyrirtæki njóti þeirra réttinda sem samningurinn á að tryggja. En það er bara önnur hlið málsins. Hin hliðin snýst um íslenska stjórnarskrá og skiptingu ríkisvalds. Hver setur reglurnar? Hver hefur síðasta orðið? Hversu mikið svigrúm hafa Alþingi, dómstólar, forseti og þjóðin þegar ESB tilskipanir ráða hvað svo sem forseti og þjóðin ákveða. Þegar ákveðnar reglur hafa verið settar ofar öðrum. Kannski er mikilvægara að horfa á breytinguna sem ferli. Ein breyting hér. Önnur þar. Nýr forgangur fyrir ákveðnar reglur. Vald og valdskipting íslenska ríkisins hefur breyst með undirritun og þjóðin er ekki lengur endanleg uppspretta valdsins, eins og stjórnarskráin okkar gerir ráð fyrir og er öfundsverð staða miðað við hvað annarsstaðar tíðkast. Ég get ekki unað þessari breytingu og hún er þvert á stjórnarskrá. Dæmi: íslensk lög gera ráð fyrir að ekki sé hægt að tengja íslenskan orkumarkað við meginlandið, en eftir undirskrift getur miðstýrt ACER komið því til leiðar að réttilega innleidd regla 35. og réttilega innleidd tilskipun frá Evrópusambandinu að kapall verði lagður og það ræður. Höfundur er fjármálahagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun