Viðskipti innlent

Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnar­ráðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hörður Arnarson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár.
Hörður Arnarson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár. Vísir/Vilhelm

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag.

Hörður tók við sem forstjóri Landsvirkjunar árið 2009 eftir að hafa starfað sem forstjóri Sjóvár um nokkurra mánaða skeið og leitt endurskipulagningu félagsins. Þar áður starfaði Hörður hjá Marel frá árinu 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999 til 2009.

Á þeim tæpu sautján árum sem Hörður hefur gegnt stöðu forstjóra hefur rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar verið sterkur og það ítrekað greitt ríkissjóði tugi milljarða í arð. Lítið hefur þó verið um byggingu nýrra stórra virkjana, sem Hörður hefur viðrað áhyggjur af. Þó var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, gangsett í síðasta mánuði.

Hörður var til viðtals í Kaffispjallinu á Vísi fyrir tveimur árum.

Vísir náði tali af Herði á tólfta tímanum sem sagðist lítið geta tjáð sig um málið. Aðspurður hvort hann væri enn starfandi forstjóri Landsvirkjunar játaði hann því en bað um að fá að ræða málið síðar.

Í fundarboði til starfsmanna Landsvirkjunar á tólfta tímanum kemur fram að Hörður vonist til að sjá sem flest á fundinum klukkan 14:30. Fundurinn verður bæði í matsal Landsvirkjunar en aðrir starfsmenn geta fylgst með á Teams.

Hörður mætti svo í forsætisráðuneytið til fundar um klukkan eitt í dag. Vísir hefur ekki fengið staðfest með hverjum Hörður fundaði eða hvert tilefnið var.

Uppfært klukkan 14:43: Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að Hörður hætti sem forstjóri Landsvirkjunar.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir heimsókn Harðar í ráðuneytið.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×