Mikill munur á afkomu almannatengla Bjarki Sigurðsson skrifar 24. september 2026 12:50 Félögin skiluðu öll hagnaði 2024 en afkoman varð verri í ár hjá nokkrum. Vísir Þrjú af sjö helstu fyrirtækjum landsins sem sérhæfa sig í almannatengslum skiluðu tapi á síðasta ári. Þrjú þeirra skiluðu hagnaði og eitt hefur ekki skilað ársreikningi.
Þónokkur fjöldi fyrirtækja sinnir almannatengslum og ráðgjöf fyrir fyrirtæki, einstaklinga og hið opinbera. Einhver þeirra, til dæmis Pipar og Aton, eru í grunninn auglýsingastofur en sinna einnig almannatengslaþjónustu. Ekki verður fjallað um þau í þessari grein þar sem erfitt er að glöggva sig á hvaða tekjur koma úr almannatengslageiranum og hverjar ekki. Einungis er fjallað um fyrirtæki sem sinna eingöngu almannatengslum og ráðgjöf. Eitt félag ekki skilað reikningi Sjö stærstu fyrirtækin í þessum bransa eru að öllum líkindum KOM ráðgjöf, Góð samskipti, Cohn&Wolfe, Boðskipti, Athygli, Kvis og Langbrók. Sex af þessum fyrirtækjum hafa skilað ársreikningi fyrir 2025 en fyrirtæki og félög þurfa að skila ársreikningi til opinberrar birtingar fyrir 31. ágúst. KOM ráðgjöf hefur ekki birt sinn og birti ekki síðasta ársreikning fyrr en 31. desember 2025. Þá skilaði félagið tólf þúsund króna hagnaði. Eigendur KOM eru Friðjón Friðjónsson, Magnús Ragnarsson og Björgvin Guðmundsson. Góð samskipti í fullri eigu Andrésar Jónssonar, Athygli í eigu Kolbeins Marteinssonar, Más Mássonar og Bryndísar Nielsen og Cohn&Wolfe í eigu Ingvars Arnar Ingvarssonar, Gunnhildar Birnu Gunnarsdóttur og Haraldar Sigurðssonar skiluðu öll hagnaði á síðasta ári. Góð samskipti ehf. Hagnaður Góðra samskipta nam tæpum sautján milljónum samanborið við rúmar fimmtán milljónir 2024. Eignir félagsins eru 34 milljónir og lækka um tíu milljónir milli ára. Andrés greiddi sér tuttugu milljónir í arð á síðasta ári og leggur stjórnin til að greiða allt að tuttugu milljónir í arð á þessu ári. Andrés Jónsson er eini eigandi Góðra samskipta.Vísir/Vilhelm Athygli ehf. Velta Athygli er töluvert meiri og tvöfölduðust tekjurnar milli ára, úr 108 milljónum í 206 milljónir. Félagið skilaði tæplega 27 milljóna króna hagnaði samanborið við tæplega átta milljóna króna hagnað árið á undan. Fimm starfsmenn störfuðu hjá félaginu og greiddi það 77 milljónir í laun. Lagt er til að greiddar verði 27 milljónir í arð 2026 en í fyrra var greiddur arður 6,4 milljónir. Már Másson, Kolbeinn Marteinsson og Bryndís Nielsen eiga Athygli ráðgjöf. Cohn&Wolfe Íslandi ehf. Tekjur Cohn&Wolfe drógust lítillega saman milli ára og voru tæplega 97 milljónir. Félagið skilaði rúmlega níu milljón króna hagnaði en í fyrra skilaði það tapi upp á tólf og hálfa milljón. Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa þetta árið. Hinar þrjár stofurnar skiluðu tapi 2025 og greiða ekki arð á þessu ári. Kvis ehf. Starfsemi Kvis ehf. í eigu Haddar Vilhjálmsdóttur dróst verulega saman milli ára og fóru tekjurnar úr sautján milljónum í tæpar þrjár. Tap ársins nam þremur milljónum samanborið við 5,8 milljóna króna hagnað árið áður. Hödd Vilhjálmsdóttir er eini eigandi Kviss.Vísir/Vilhelm Boðskipti ehf. Boðskipti ehf. er í eigu Róberts Róbertssonar og Unnar Hrefnu Jónsdóttur. Tekjur félagsins voru 37 milljónir og jukust um sex milljónir milli ára. Hins vegar var tap á rekstrinum upp á 2,1 milljón miðað við 800 þúsund króna hagnað árið áður. Langbrók ehf. Langbrók ehf. er í eigu Soffíu S. Sigurgeirsdóttur og Báru Mjallar Þórðardóttur. Félagið var með tekjur upp á 36 milljónir en skilaði 3,2 milljóna tapi. Árið 2024 nam hagnaður félagsins 1,2 milljónum. Bára Mjöll Þórðardóttir og Soffía S. Sigurgeirsdóttir reka Langbrók.
Uppgjör og ársreikningar Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Fleiri fréttir „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent