21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar 24. september 2026 07:03 Hvernig PISA-niðurstöðum ætli skóli skili þar sem: Mikill námsárangur næst. Líðan nemenda er vel yfir meðaltali. Ánægja foreldra með stjórnun skólans er 97%. Skólinn er rekinn með afgangi og er einn ódýrasti skóli landsins. Tekið er á móti öllum nemendum sem hafa átt erfitt uppdráttar í öðrum skólum. Starfsmannavelta er lítil. Veikindi starfsfólks eru með því minnsta í samanburði við aðra skóla. Einelti mælist um eða undir 2% árum saman, margfalt minna en víða annars staðar. Byggðar eru brýr milli heimila og skóla en ekki grafnir skurðir. Gerðar eru miklar væntingar til allra barna, óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu þeirra. Það kemur kannski ekki á óvart að PISA-niðurstöður þessa stóra íslenska skóla árið 2015 voru frábærar. 21% nemenda náðu afburðahæfni í lesskilningi. Í PISA 2025 er hlutfallið á Íslandi 2%. 24% náðu afburðahæfni í stærðfræði. Nú eru það 4%. 14% náðu afburðahæfni í náttúrufræði. Nú eru það um 3%. Á meðan landsmeðaltalið lækkaði milli PISA-prófa hækkaði árangur skólans verulega. Vissulega hefur ýmislegt breyst. Snjallsímar og gagnvirkir skjáir hafa rutt sér til rúms og nemendum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað. Það skiptir máli. En þessi skóli sýndi að íslensk börn geta náð allt öðrum árangri en við sjáum nú, árangri eins og hann er bestur í heimi, samhliða góðri líðan, litlu einelti og ánægju foreldra. Það er líka umhugsunarefni að 2015 eru síðustu aðgengilegu PISA-niðurstöðurnar fyrir skólana. Við ættum að vilja meiri upplýsingar um skólastarfs, ekki minni. Það þarf ekki að velja milli námsárangurs og vellíðanar þessir þættir eiga að fara saman. Búum til skólastarf þar sem hliðarafurð góðrar skólamenningar, mikilla væntinga og sterks samfélags verður mikill árangur á öllum sviðum, þar á meðal PISA. Það er hægt og hefur verið gert. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Hvernig PISA-niðurstöðum ætli skóli skili þar sem: Mikill námsárangur næst. Líðan nemenda er vel yfir meðaltali. Ánægja foreldra með stjórnun skólans er 97%. Skólinn er rekinn með afgangi og er einn ódýrasti skóli landsins. Tekið er á móti öllum nemendum sem hafa átt erfitt uppdráttar í öðrum skólum. Starfsmannavelta er lítil. Veikindi starfsfólks eru með því minnsta í samanburði við aðra skóla. Einelti mælist um eða undir 2% árum saman, margfalt minna en víða annars staðar. Byggðar eru brýr milli heimila og skóla en ekki grafnir skurðir. Gerðar eru miklar væntingar til allra barna, óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu þeirra. Það kemur kannski ekki á óvart að PISA-niðurstöður þessa stóra íslenska skóla árið 2015 voru frábærar. 21% nemenda náðu afburðahæfni í lesskilningi. Í PISA 2025 er hlutfallið á Íslandi 2%. 24% náðu afburðahæfni í stærðfræði. Nú eru það 4%. 14% náðu afburðahæfni í náttúrufræði. Nú eru það um 3%. Á meðan landsmeðaltalið lækkaði milli PISA-prófa hækkaði árangur skólans verulega. Vissulega hefur ýmislegt breyst. Snjallsímar og gagnvirkir skjáir hafa rutt sér til rúms og nemendum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað. Það skiptir máli. En þessi skóli sýndi að íslensk börn geta náð allt öðrum árangri en við sjáum nú, árangri eins og hann er bestur í heimi, samhliða góðri líðan, litlu einelti og ánægju foreldra. Það er líka umhugsunarefni að 2015 eru síðustu aðgengilegu PISA-niðurstöðurnar fyrir skólana. Við ættum að vilja meiri upplýsingar um skólastarfs, ekki minni. Það þarf ekki að velja milli námsárangurs og vellíðanar þessir þættir eiga að fara saman. Búum til skólastarf þar sem hliðarafurð góðrar skólamenningar, mikilla væntinga og sterks samfélags verður mikill árangur á öllum sviðum, þar á meðal PISA. Það er hægt og hefur verið gert. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun