Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Agnar Már Másson skrifar 22. september 2026 23:01 Ferðamenn fundu Alexander þar sem hann hafði dottið og hringdu í neyðarlínuna. Fjölskyldan veit enn ekki nákvæmlega hvað gerðist. „Manni líður eins og að það sé búið að keyra yfir mann,“ segir stjúpmóðir hans, Petrína Sigrún. Samsett Mynd Ungur drengur á Patreksfirði tvíbrotnaði á höfuðkúpu og hlaut tvær innvortis blæðingar eftir að hafa fallið á rafmagnshlaupahjóli á laugardag. Stjúpmóðir hans þakkar fyrir það að hann hafi verið með hjálm og biðlar til foreldra, og raunar samfélagsins alls, að brýna fyrir börnum að nota hjálm.
Petrína Sigrún Helgadóttir segir að Alexander, 13 ára stjúpsonur sinn, hafi farið út á rafhlaupahjóli á laugardag. „Og við vitum í raun ekki hvað gerðist. Það voru einhverjir túristar sem sáu þegar hann var dottinn og hringdu á neyðarlínuna,“ segir hún er hún rekur atburðarásina í samtali við Vísi. Fjölskyldan hafi fengið símtal skömmu síðar og farið á sjúkrahús að hitta drenginn. Hún segir að blessunarlega hafi verið tekin ákvörðun um að flytja Alexander með þyrlu suður til Reykjavíkur. „Við héldum að hann væri bara með slæman heilahristing, en þá kemur í ljós að hann er tvíhöfuðkúpubrotinn og [með] tvær innvortis blæðingar.“ Hann dvaldi svo á gjörgæslu Landspítalans í sólarhring. „Það er nú langt bataferli fram undan hjá honum, greyinu.“ „Manni líður eins og það sé búið að keyra yfir mann“ Nú liggur drengurinn í sjúkrarúmi á Barnaspítalanum og mun að sögn Petrínu vera þar eitthvað áfram. Petrína segir að Friðrik, eiginmaður sinn og faðir Alexanders, hafi farið með honum til Reykjavíkur en svo snúið aftur heim í vikunni. Móðir hans sé hjá honum núna. Faðirinn hyggur aftur á að fara suður í vikunni. Svo hyggst Petrína sjálf fara til Reykjavíkur um helgina til að vera hjá stráknum. „Við erum bara með vaktaskipti,“ bætir hún við. „Það er nú langt bataferli fram undan hjá honum, greyinu.“ Drengurinn er með meðvitund en Petrína segir fyrsta sólarhringinn hafa verið erfiðan. Hann hafi verið mikið verkjaður og átt sérstaklega erfitt með að vera í mikilli birtu. „Manni líður eins og það sé búið að keyra yfir mann,“ svarar Petrína þegar hún er spurð hvernig fjölskyldan hafi það. „Maður áttar sig ekki á því hvað þetta er snöggt að gerast.“ Þakkar Guði fyrir hjálminn Hún þakkar Guði fyrir að Alexander sé á lífi og fyrir það að hann hafi verið með hjálm. Petrína segir það tíðkast að börn aki um á rafmagnshlaupahjólum eða vespum, jafnvel tvö eða þrjú á hverju ökutæki, og ekkert þeirra sé með hjálm. Hún nefnir að hún hafi jafnvel séð þrjú hjálmlaus börn á vespu strax næsta morgun eftir slysið og það hafi vakið ónotatilfinningu. „Það hugsa allir: „Þetta gerist ekki við mig,““ segir Petrína, sem biðlar til að brýna fyrir börnum að nota hjálm og gera sjálf slíkt hið sama. Pabbinn sendur suður með súkkulaðiköku Petrína kveðst hafa fengið að ræða við stjúpson sinn í gegnum síma í dag. „Ég spurði hvort ég gæti gert eða keypt eitthvað fyrir hann og þá svaraði hann: „Mamma, geturðu gert svona franska súkkulaðibitaköku eins og þú gerir alltaf?““ Hún lét ekki biðja sig um það tvisvar og hefur bakað böku sem faðir hans mun síðan taka með í flug suður á morgun. „Hann verður ánægður með það.“ Hún hlakkar til að geta hitt Alexander þegar hún fer suður eftir vinnu á föstudegi. „Ég get ekki beðið.“
Umferðaröryggi Vesturbyggð Sjúkraflutningar Rafhlaupahjól Samgönguslys Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Sjá meira