Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Aron Guðmundsson skrifar 21. september 2026 15:47 Rosenborg gerði virkilega vel í því að fá Amin til liðs við sig Myndir: Rosenborg BK Alfreð Finnbogason segir sóknarmanninn Amin Chiakha, sem hefur sprungið út undir stjórn Freys Alexanderssonar hjá Rosenborg, vera einn mest spennandi framherja í Skandinavíu um þessar mundir.
Amin var fenginn til liðs við Rosenborg á láni frá FC Kaupmannahöfn en þar áður hafði honum gengið erfiðlega að festa sig í sessi í Danmörku. Alfreð, sem gegnir stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Rosenborg, mundi eftir kappanum frá því að hann var sjálfur að spila í Danmörku með Lyngby undir stjórn Freys. „Í gegnum mitt tengslanet hafði ég fylgst aðeins með honum,“ segir Alfreð í samtali við Vísi. „Okkur fannst það frábært þegar tækifæri bauðst til þess að fá hann til liðs við okkur. Bættum þar með við okkur framherja og vorum að leitast eftir því að vera með góða samkeppni þar. Við vissum að þetta væri leikmaður með mjög hátt þak hvað gæði varðar og fengum inn ákvæði í samninginn að geta keypt hann ef svo skyldi vera að hann myndi springa út hér.“ Keyptur fyrir metupphæð Til að gera langa sögu stutta sprakk hinn tuttugu ára gamli Amin út hjá Rosenborg og var hann á dögunum valinn besti ungi leikmaður mánaðarins í norsku úrvalsdeildinni, annan mánuðinn í röð. „Eftir að Freyr tók við þá þarna hefur hann verið stórkostlegur Ég held það sé aðeins einn leikur sem hann hefur ekki skorað í, hann er kominn með einhver ellefu mörk og þrjár stoðsendingar í síðustu tíu leikjum. Fyrir mér er hann einn mest spennandi framherji í Skandinavíu akkúrat núna. Við vorum með ákveðinn möguleika að kaupa hann frá ákveðnum tímapunkti og við fengum góðan stuðning frá stjórninni til að klára kaupin sem eru þau stærstu á leikmanni í norsku úrvalsdeildinni.“ Amin var keyptur til Rosenborg í síðasta mánuði fyrir um fimm milljónir evra. „Við tókum þá áhættu en við sjáum það mikinn möguleika í því að selja hann áfram einhvern tímann seinna en fyrst og fremst bara bara það sem hann mun gefa okkur allavega út þetta tímabil. Ég veit ekki hversu lengi við náum að halda honum en hann hefur fengið að blómstra hérna síðustu mánuði og er gríðarlega ánægður. Það var risastór yfirlýsing hjá félaginu að sýna að við getum bætt við okkur svona leikmanni ef hann passar inn í okkar hugmyndafræði.“
Norski boltinn Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira