Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Andri Broddason skrifar 18. september 2026 23:18 Patrick Reed var sárþjáður eftir að hafa slegið í trérót sem var undir boltanum sínum. Warren Little/Getty Images Patrick Reed hefur dregið sig úr keppni á BMW PGA Championship-mótinu í golfi. Hann var einn af tíu efstu kylfingunum eftir fyrsta hring mótsins en sló í trérót og þurfti að hætta eftir níu holur á seinni hringnum hans.
Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed spilaði vel á fyrsta hring sínum á BMW PGA Championship-mótinu sem byrjaði á fimmtudaginn. Hann var á fjórum undir pari og miðað við spilamennskuna hans átti hann séns á að sækja sigur á mótinu. Hann byrjaði hringinn í dag ekki vel og fékk þrefaldan skolla strax á fyrstu holunni og ekki batnaði spilamennskan hans eftir það. Hann var níu höggum yfir pari á fyrstu níu holunum en eftir níundu holuna hélt hann um höndina sína og var keyrður í burtu af dómara mótsins. Patrick Reed has retired through injury during the second round of the BMW PGA Championship ⚠️❌#BMWPGA | #RolexSeries pic.twitter.com/HxNdawCavB— DP World Tour (@DPWorldTour) September 18, 2026 Samkvæmt miðlinum GolfDigest sló hann í trérót sem var undir boltanum og meiddi sig þannig í hendinni. Sársaukinn hefur verið það mikill að hann gat ekki haldið áfram keppni. Þetta var ekki í fyrsta skipti á mótinu sem hann spilaði bolta í slæmri legu en á fyrsta hringnum hans endaði boltinn á miðjum vegi. Flestir áhugakylfingar hefðu fært boltann til þess að skemma ekki kylfurnar sínar en Reed ákvað að slá boltann þar sem hann lá. Patrick Reed plays it off the path 👏#BMWPGA | #RolexSeries pic.twitter.com/fIpXZx4nNn— DP World Tour (@DPWorldTour) September 18, 2026 Hann sló boltann af veginum og þræddi hann í gegnum trén þar og endaði boltinn rétt fyrir framan flötina. Reed sýndi að slá bolta í slæmri legu getur bæði skilað af sér frábærum golfhöggum en verið gríðarlega vont þegar það gengur ekki. Ekki er víst hversu mikil meiðslin eru eða hversu lengi Reed verður frá keppni. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport 4 og hefst útsending klukkan 11:00.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira