Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blá­lokin

Sindri Sverrisson skrifar
Orri Steinn Óskarsson fórnaði höndum þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft.
Orri Steinn Óskarsson fórnaði höndum þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft. Getty/Francisco Macia

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson náði sér í gult spjald og svo rautt seint í uppbótartíma, þegar Real Sociedad vann sætan 3-2 útisigur gegn Valencia á Spáni í kvöld.

Orri er væntanlegur til Íslands á morgun til móts við liðsfélaga sína í íslenska landsliðinu, fyrir fjóra leiki í Þjóðadeildinni en sá fyrsti er við Eistland á Laugardalsvelli á laugardaginn.

Eftir landsleikina verður hann hins vegar í banni í næsta deildarleik, gegn Deportivo La Coruña, eftir rauða spjaldið í kvöld.

Orri hafði komið inná sem varamaður á 61. mínútu, þegar staðan var 1-1, og hann sá annan varamann, Ander Barrenetxea, skora sigurmark leiksins á fyrstu mínútu uppbótartíma.

Áður en flautað var til leiksloka fékk Orri hins vegar gult spjald og svo annað fyrir mótmæli við dómarann.

Það skyggði því á sigurgleðina en eftir sigurinn er Real Sociedad með 10 stig úr sjö leikjum, í 8. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira