Viðskipti innlent

Spá aukinni verð­bólgu: Elds­neyti hækkar um 17 prósent

Árni Sæberg skrifar
Una Jónsdóttir er forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans.
Una Jónsdóttir er forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23 prósent í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6 prósentum í 5,8 prósent.

Í pistli þess efnis á vef bankans segir að eldsneytisverð hafi hækkað snarp um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti komi að flugfargjöld til útlanda lækki í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar muni svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.

„Það eru tveir liðir sem hafa mest áhrif á spána í september. Mikil hækkun á eldsneyti hefur langmest áhrif til hækkunar, en á móti spáum við lækkun á flugfargjöldum til útlanda líkt og venjan er í septembermánuði vegna árstíðasveiflu.“

Eldsneyti hækkar um 17 prósent og 25 prósent dýrara að fljúga en í fyrra

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24 prósentum í 11 prósent hafi fallið úr gildi um síðustu mánaðamót. Sú breyting ein og sér hækki eldsneytisverð um tæplega 12 prósent. Þar að auki hafi heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkað umtalsvert frá síðasta mánuði og deildin spái því að verð á bensíni og díselolíu hækki um 16,8 prósent á milli mánaða, í takt við verðathugun deildarinnar.

Flugfargjöld til útlanda lækki yfirleitt töluvert í ágúst og september eftir háannatíma í ferðaþjónustunni yfir sumarið. Deildin spái því að þau lækki um 16,7 prósent í september og hafi mest áhrif til lækkunar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verði 25 þó prósent dýrara að fljúga til útlanda í september í ár en í september í fyrra.

Heilsan hækkar

Þá segir að komugjald á heilsugæslu á dagvinnutíma hafi hækkað um síðustu mánaðamót úr 500 krónum í 1.000 krónur og gjald á læknavakt, utan dagvinnutíma, hækkað úr 3.100 krónum í 3.500 krónur. Þá hafi gjöld vegna leghálsskimunar og brjóstakrabbameinsskimunar einnig hækkað. 

„Við spáum því að liðurinn „heilsa“ hækki við þetta um 1,1% á milli mánaða og framlagið verði 0,04 prósentustig til hækkunar á vísitölunni. Matið er þó háð nokkurri óvissu, þar sem sundurliðun voganna breyttist um áramótin þegar nýtt flokkunarkerfi var tekið upp.“

Nýtt komugjald fyrir sjúkra-, iðju- og talþjálfun hafi einnig verið tekið upp nú í september en samkvæmt Hagstofunni komi sú breyting inn í mælingar í næsta mánuði. 

„Við áætlum að sú breyting hafi einnig um 1% áhrif til hækkunar á heilsuliðnum í október og heildaráhrifin eru því aftur 0,04 prósentustig, gangi spáin eftir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×