Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar 16. september 2026 18:30 Þegar manni líður illa er salsa líklega ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann. Sófinn hefur sterkt aðdráttarafl þegar orkan er lítil, áhuginn enginn og tilhugsunin um að fara út meðal fólks virðist óþarflega stór framkvæmd. Vandamálið er bara að sófinn er ekki alltaf sérstaklega góður sálfræðingur. Ég byrjaði að dansa salsa og ballroom fyrir um þremur árum og varð fljótt heillaður. Ekki bara af dansinum sjálfum, heldur því sem gerðist á meðan og eftir að ég dansaði. Maður getur mætt inn í sal með hugann á fullu en hálftíma síðar er athyglin komin eitthvert allt annað. Í sporin. Taktinn. Tónlistina. Það er merkilega erfitt að velta lífinu endalaust fyrir sér á meðan maður er að reyna að muna hvað fæturnir eiga að gera næst. Kannski var það þess vegna sem sálfræðingurinn í mér fór að verða forvitinn. Er dans bara skemmtilegur — eða getur hann raunverulega haft áhrif á geðheilsuna? Þegar ég fór að skoða rannsóknirnar kom í ljós að það sem ég hafði sjálfur fundið á dansgólfinu var ekki bara tilfinning. Ýmislegt bendir til þess að dans geti haft jákvæð áhrif á líðan og félagsleg tengsl. Þegar maður nennir engu Eitt af því erfiða við þunglyndi og depurð er að þegar okkur líður illa minnkar oft löngunin til að gera einmitt það sem gæti hjálpað. Við hreyfum okkur minna, hittum færra fólk og hættum jafnvel að gera hluti sem áður veittu okkur ánægju. Heimurinn verður smám saman minni og við drögumst enn lengra niður. Þess vegna er aukin virkni mikilvægur þáttur í sálfræðilegri meðferð við þunglyndi. Stundum þarf maður einmitt að gera eitthvað áður en löngunin til þess mætir. Þarna finnst mér dansinn áhugaverður. Í einum danstíma gerist nefnilega furðulega margt í einu. Maður fer út úr húsi, hreyfir sig, hlustar á tónlist, lærir eitthvað nýtt og hittir fólk. Svo mætir maður aftur og eitthvað sem var nær ómögulegt í síðustu viku er allt í einu orðið aðeins auðveldara. Ég mætti. Ég náði þessu. Ég get meira en síðast. Það er góð tilfinning. En hvað segja rannsóknirnar? Í nýlegri rannsókn frá Oxford-háskóla tóku ungmenni með væg til miðlungs alvarleg þunglyndiseinkenni þátt í átta vikna salsa-námskeiði. Þau sem tóku þátt í salsa sýndu meiri minnkun þunglyndiseinkenna og félagskvíða en samanburðarhópurinn og meiri aukningu í daglegri lífsánægju (Delattre o.fl., 2026). Ein rannsókn gerir salsa auðvitað ekki að töfralausn. En aðrar rannsóknir hafa einnig bent til jákvæðra áhrifa af dansi á sálræna líðan (Koch o.fl., 2019). Í stórri samantekt rannsókna á hreyfingu við þunglyndi voru meðal annars bornar saman göngur, hlaup, jóga, styrktarþjálfun og dans — og dans kom þar afar vel út (Noetel o.fl., 2024). Sem dansara fannst mér það auðvitað ánægjulegt. Sem sálfræðingi fannst mér áhugaverðara að spyrja: Af hverju? Kannski er þetta ekki bara hreyfingin Dans hefur svolítið fleira með sér en púls og hreyfingu. Það er tónlistin. Námið. Áskorunin. Framfarirnar. Og svo hitt fólkið. Þegar maður mætir reglulega í danstíma fer maður að þekkja andlitin. Einhver heilsar þegar maður kemur. Maður lærir með öðrum, hlær með þeim og verður smám saman hluti af hópi. Við erum félagsverur og félagslegur stuðningur er mikilvægur verndandi þáttur gegn andlegum erfiðleikum (Zell & Stockus, 2025). Það er líka áhugavert að við höfum dansað saman miklu lengur en við höfum farið til sálfræðings. Ein tilgátan um hvernig dans þróaðist er sú að sameiginleg hreyfing og taktur hafi hjálpað fólki að tengjast og styrkja samheldni hópsins. Rannsókn Tarr og félaga (2016) benti til þess að það að dansa í takt með öðrum geti aukið virkni endorfínkerfis líkamans og félagslega nánd. Kannski er það ein ástæða þess að dans getur verið félagslegur án þess að maður þurfi endilega að vera sérstaklega félagslyndur. Maður þarf ekki alltaf að finna réttu orðin. Stundum dugar tónlistin. Kærkomið frí frá eigin haus Eitt af því sem greip mig strax við dansinn var hversu hratt maður finnur fyrir framförum. Fyrst er allt nýtt og fæturnir virðast stundum hafa fengið sitt hvort handritið. Svo nær maður einu spori. Síðan öðru. Og allt í einu getur maður gert eitthvað sem virtist fáránlega flókið nokkrum vikum áður. Ef lærdómurinn úr lífeðlissálfræðinni er ekki að bregðast mér kemur dópamínkerfi heilans þar meðal annars við sögu. Við finnum hvatningu þegar við lærum, tökum framförum og nálgumst markmið. En það sem mér finnst hvað mest gaman er þegar maður gleymir stað og stund og nýtur þess að dansa það sem maður hefur lært. Þegar tónlistin tekur við er erfitt að hugsa um mikið annað. Ekki verkefnalistann, morgundaginn eða eitthvað sem maður hefði átt að segja öðruvísi í síðustu viku. Maður er bara þarna. Í sálfræðinni mætti tala um núvitund eða flæði (flow). Ég kalla það stundum einfaldlega kærkomið frí frá eigin haus. Og ég finn jafnan skýran mun á skapinu fyrir og eftir gott danskvöld. Smá hiti í skandinavísku mjaðmirnar Svo er auðvitað eitt. Við Norðurlandabúar erum kannski ekki þekktastir fyrir frjálslegar mjaðmahreyfingar. Það er ekki alveg að ástæðulausu að talað er um „skandinavískar mjaðmir“. Kannski er það einmitt þess vegna sem við Íslendingar mættum opna augun aðeins meira fyrir latin-dönsum. Maður þarf ekki að kunna að dansa áður en maður byrjar. Maður má vera byrjandi, klúðra spori, hlæja að sjálfum sér og prófa aftur. Það þarf ekki einu sinni að vera sérstaklega glæsilegt. Maður þarf bara að mæta. Dans er auðvitað ekki töfralausn við þunglyndi og mun ekki henta öllum. Þunglyndi getur verið alvarlegt ástand sem krefst faglegrar aðstoðar og viðeigandi meðferðar. Dans getur hins vegar fyrir suma verið góð viðbót — leið til að hreyfa sig, hitta fólk, læra eitthvað nýtt og kannski finna aftur örlitla ánægju. Ég get sem sálfræðingur talað um hreyfingu, félagsleg tengsl, endorfín, dópamín og flæði til að útskýra hvers vegna dans gæti haft áhrif á líðan. En sem dansari finnst mér stundum óþarfi að flækja þetta svona mikið. Tónlistin fer af stað. Maður hættir aðeins að hugsa. Líkaminn tekur við. Og í smástund líður manni aðeins meira lifandi. Kannski er það ekki lækning. En það er alls ekki slæmur staður til að byrja. Heimildir Delattre, B., Buckman, J. E. J., Harmer, C. J., & Murphy, S. E. (2026). The effects of a salsa dance intervention in young people with mild to moderately severe depressive symptoms. Psychological Medicine, 56, e210. Koch, S. C., Riege, R. F. F., Tisborn, K., Biondo, J., Martin, L., & Beelmann, A. (2019). Effects of Dance Movement Therapy and Dance on Health-Related Psychological Outcomes: A Meta-Analysis Update. Frontiers in Psychology, 10. Noetel, M., Sanders, T., Gallardo-Gómez, D., o.fl. (2024). Effect of exercise for depression: Systematic review and network meta-analysis of randomised controlled trials. BMJ. Tarr, B., Launay, J., & Dunbar, R. I. M. (2016). Silent disco: Dancing in synchrony leads to elevated pain thresholds and social closeness. Evolution and Human Behavior, 37(5), 343–349. Zell, E., & Stockus, C. A. (2025). Social support and psychological adjustment: A quantitative synthesis of 60 meta-analyses. American Psychologist, 80(1), 33–46. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun