Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Lovísa Arnardóttir skrifar 16. september 2026 07:33 María Björk Einarsdóttir er forstjóri Ása. Aðsend Samkeppniseftirlitið hefur andmælt kaupum Ása, áður Símans, á öllu hlutafé í Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands og telur í sínu frummati að íhlutun vegna kaupanna sé nauðsynleg. Tilkynnt var um það til Kauphallar í gær.
Tilkynnt var um kaupin við lok árs í fyrra og að Síminn hefði keypt fyrirtækin fyrir fjórtán milljarða. Áætlað var að áætlað að árlegur rekstrarhagnaður Símans myndi aukast um 2,3 milljarða þegar samlegðaráhrifin vegna viðskiptanna væru að fullu komin fram. Fjallað var ítarlega um málið í Innherja að neðan. Fram kemur í tilkynningunni til Kauphallar að Ásar hafi skilað inn samrunatilkynningu vegna kaupa á Öryggismiðstöð Íslands þann 24. apríl 2026 og að lokafrestur til að ljúka rannsókn málsins sé þann 9. október 2026. Samrunatilkynningu vegna kaupa á Opnum kerfum hafi verið skilað inn þann 26. maí 2026 og lokafrestur til að ljúka rannsókn málsins sé 4. nóvember. Í tilkynningunni segir að mat Samkeppniseftirlitsins sé að íhlutun sé nauðsynleg vegna kaupanna. Tekið er fram að andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins feli ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun heldur sé það liður í meðferð málsins og gefi félaginu kost á að koma á framfæri skýringum, athugasemdum og gögnum áður en ákvörðun er tekin. Endanleg afstaða til kaupanna liggi því ekki fyrir. Fram kemur að lokum að Ásar hafi tíma til 25. september, föstudags í næstu viku, til að skila athugasemdum og að þau muni greina frá framvindu máls eftir því sem tilefni sé til.
Síminn (Ásar) Fjarskipti Kauphöllin Kaup og sala fyrirtækja Tengdar fréttir Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt móðurfélagi Símans að það telji fyrirtæki hafa brotið samkeppnislög með skaðlegri undirverðlagningu á áskriftum að fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Félagið segist ætla að taka til fullra varna í málinu. 10. september 2026 08:09 Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar. 23. ágúst 2026 22:18 Síminn orðinn Ásar hf Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn. 20. ágúst 2026 18:33 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Sjá meira
Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt móðurfélagi Símans að það telji fyrirtæki hafa brotið samkeppnislög með skaðlegri undirverðlagningu á áskriftum að fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Félagið segist ætla að taka til fullra varna í málinu. 10. september 2026 08:09
Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar. 23. ágúst 2026 22:18
Síminn orðinn Ásar hf Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn. 20. ágúst 2026 18:33