0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar 11. september 2026 12:02 Það er ein tala sem virðist hafa öðlast undraverðan sess í íslenskri umræðu um loftslagsmál eða 0,01%. Henni er kastað fram aftur og aftur eins og hún sé einhvers konar tromp sem ljúki umræðunni. Ísland standi aðeins fyrir brotabroti af losun heimsins. Kína mengi miklu meira. Bandaríkin mengi miklu meira. Hvers vegna eigum við þá að eyða peningum í loftslagsaðgerðir? Hvers vegna eigum við að leggja eitthvað á okkur þegar það sem við gerum breytir varla einum aukastaf í hnattrænu loftslagsbókhaldi? Talan sjálf er ekki uppspuni. Samkvæmt gögnum Global Carbon Project, sem Our World in Data miðlar, var hlutur Íslands innan við 0,01% af heimslosun frá jarðefnaeldsneyti og iðnaði árið 2024. Kína stóð fyrir um 31,8% og Bandaríkin fyrir um 12,7%. En það merkilega er að rétt tala getur orðið að mjög vondum rökum. Íslendingar losuðu samkvæmt sömu gögnum um 9,7 tonn af kolefni á mann árið 2024 og Kínverjar losuðu 9,9 tonn á mann. Við verðum því ekki skyndilega loftslagshlutlaus þjóð við það eitt að deila losun okkar niður á átta milljarða jarðarbúa. Við erum einfaldlega fámenn þjóð á meðan Kínverjar eru 1,4 milljarðar. Reyndar nægir að fylgja 0,01% röksemdinni aðeins lengra til að sjá hversu fráleit hún er. Kína og Bandaríkin, langstærstu losendur heims, standa saman fyrir um 45% af losuninni. Meirihluti losunar heimsins verður því til annars staðar. Ef hvert ríki sem telur sig of lítið til að skipta máli má draga sig í hlé, ef hver borg, hvert fyrirtæki og hver einstaklingur má benda á stærri aðila og segja „hann á að byrja“, þá höfum við ekki fundið lausn á loftslagsvandanum. Við höfum fundið fullkomna uppskrift að því að gera ekki neitt. Þetta er raunar svo vel þekkt fyrirbæri að Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC), fjallar sérstaklega um það. Loftslagsbreytingar eru dæmigert sameiginlegt vandamál þar sem kostnaður aðgerða fellur að hluta á þann sem grípur til þeirra en ávinningurinn dreifist um allan heim. Þar skapast hvati til þess sem á ensku kallast free riding: að láta hina borga og njóta sjálfur góðs af árangrinum. IPCC bendir jafnframt á að öll losun leggi sitt af mörkum til loftslagsvandans óháð hlutfallslegri stærð hennar og að alþjóðleg samvinna sé einmitt leiðin til þess að vinna gegn þessari freistingu. Parísarsamkomulagið byggist á nákvæmlega sömu hugsun. Það segir ekki að Kína, Bandaríkin og Indland eigi að sjá um málið á meðan aðrir fylgjast með. Öll aðildarríki eiga að leggja fram landsbundin framlög, grípa til aðgerða heima fyrir og auka metnað sinn með tímanum. Auðug ríki eiga samkvæmt samkomulaginu að ganga á undan. Það væri einkennilegt ef eitt ríkasta samfélag heims gæti svarað þeirri skyldu með því að benda á höfðatölu sína og biðja um undanþágu. Þess vegna finnst mér sú forgangsröðun sem nú blasir við í íslenskum ríkisfjármálum sérkennileg og satt best að segja öfugsnúin. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 á að draga úr framlögum til Loftslags og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna. Sjóðurinn hefur meðal annars stutt rafbílavæðingu, hleðsluinnviði, orkuskipti fyrirtækja og verkefni sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Árið 2025 úthlutaði hann rúmum 8,5 milljörðum króna í beina styrki. Hér er því ekki verið að skera niður eitthvert óljóst táknrænt loftslagsverkefni heldur fjármögnun aðgerða sem eiga beinlínis að breyta fjárfestingum, orkunotkun og losun. Á sama tíma hafa íslensk stjórnvöld lagt mikla vinnu í að tryggja sérlausn fyrir flugrekendur innan evrópska ETS kerfisins. Kjarni ETS er einfaldur: losun hefur verð og sá sem losar á að greiða fyrir hana. Evrópusambandið hefur ákveðið að afnema almenna endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda til flugrekenda og fara yfir í fullt uppboð frá 2026. Ísland fékk hins vegar sérstaka heimild til viðbótarúthlutunar og íslensk stjórnvöld hafa nú náð samkomulagi við framkvæmdastjórn ESB um vilja til þess að framlengja sérlausnina til ársins 2030. Stjórnvöld rökstyðja þetta með sérstakri samkeppnisstöðu íslensks tengiflugs milli Evrópu og Norður Ameríku. Það er sjónarmið sem á rétt á að heyrast. En það gerir kostnaðinn ekki ósýnilegan. Samkvæmt svörum ráðuneyta sem Vísir hefur greint frá er áætlað verðmæti losunarheimilda sem úthlutaðar verða flugrekendum vegna ársins 2026 um 1,6 milljarðar króna. Miðað við óbreytt verð heimilda gæti heildarverðmæti þess stuðnings sem felst í sérlausninni orðið um 6,8 milljarðar króna fram til ársins 2030. Langstærstur hluti heimildanna mun að líkindum fara til Icelandair. Hér þarf þó að vera sanngjarn í orðavali: ríkið er ekki að skrifa Icelandair sjö milljarða króna ávísun. Um er að ræða verðmætar losunarheimildir sem ríkið úthlutar án endurgjalds og verður þar með af mögulegum uppboðstekjum. Efnahagslegi kostnaðurinn hverfur samt ekki við þá bókhaldslegu aðgreiningu. Og þar stöndum við frammi fyrir spurningu sem stjórnvöld verða að svara. Hvernig getur það verið skynsamleg loftslagsstefna að skera 3,2 milljarða af sjóði sem á að hraða orkuskiptum á sama tíma og við leggjum mikla pólitíska áherslu á sérlausn sem getur fært flugrekendum losunarheimildir fyrir milljarða króna? Ef ætlunin er að styðja íslenskt flug vegna landfræðilegrar sérstöðu landsins er eðlilegt að ræða það opinskátt. En þá ætti stuðningurinn að vera hannaður þannig að hver króna kaupi raunverulegan og mælanlegan samdrátt í losun: hraðari innleiðingu sjálfbærs flugvélaeldsneytis, tæknibreytingar, aukna skilvirkni eða aðrar sannanlegar aðgerðir. Loftslagsstefna á ekki að snúast um að verja fyrirtæki fyrir verði kolefnis heldur hjálpa atvinnulífinu að hætta að þurfa að greiða það. Þetta skiptir enn meira máli vegna þess að heimurinn hefur alls ekki þann munað að geta slakað á. Í nýjustu Emissions Gap UNEP, er áætlað að núverandi stefna ríkja stefni heiminum í um 2,8 gráðu hlýnun á þessari öld. Jafnvel þótt núverandi loftslagsloforð ríkja verði að fullu efnd er áætluð hlýnun enn um 2,3 til 2,5 gráður. Til að komast á braut sem samræmist tveggja gráðu markmiðinu þarf heimsbyggðin að draga úr árlegri losun um 35% fyrir 2035 miðað við 2019 og um 55% til að samræmast 1,5 gráðu markmiðinu. UNEP orðar niðurstöðuna af miklum einfaldleika: hvert brot úr gráðu sem tekst að koma í veg fyrir dregur úr tjóni, kostnaði og áhættu fyrir fólk og vistkerfi. Þarna liggur líka misskilningurinn á bak við umræðuna um hvað loftslagsaðgerðir „kosta“. Við tölum gjarnan eins og tveir möguleikar séu í boði. Annars vegar að eyða peningum í loftslagsmál og hins vegar að halda peningunum. Seinni kosturinn er ekki til. Við getum valið að greiða fyrir orkuskipti, nýsköpun, aðlögun og minni losun núna, eða við getum tekið kostnaðinn síðar í auknu tjóni, röskun vistkerfa, matvælaverði, tryggingum, innviðum, heilbrigðisáhrifum og aðlögun. Spurningin er ekki hvort einhver borgar. Spurningin er hver borgar, hvenær og hversu há upphæðin verður. Ég hef takmarkaða þolinmæði gagnvart þeirri röksemd að við eigum að bíða eftir Kína. Hef kallað mann heimskan fyrir að vera á þeirri skoðun sem er ekki beint til fyrirmyndar. Auðvitað skiptir gríðarlegu máli hvað gerist í Kína, Bandaríkjunum og Indlandi. Við eigum að krefjast miklu meiri aðgerða þar. En við öðlumst hvorki siðferðilegt né pólitískt vægi til þess að krefjast aðgerða af öðrum með því að neita sjálf að gera okkar hlut. Við myndum aldrei samþykkja þá hugsun í öðru alþjóðlegu samstarfi. Ísland er örsmátt hlutfall af heimsviðskiptum, mannfjölda heimsins og hernaðarmætti heimsins, en við teljum samt að alþjóðalög, mannréttindi, viðskiptareglur og öryggissamstarf eigi líka við um okkur. Smæð er ekki almennt leyfisbréf til ábyrgðarleysis. Og kannski er það einmitt þetta sem við þurfum að breyta í loftslagsumræðunni. Við þurfum að hætta að láta umræðuna snúast um hvort Ísland geti eitt og sér lækkað hitastig jarðar. Auðvitað getur Ísland það ekki. Engin ein þjóð getur það. Það er nákvæmlega ástæða þess að við höfum Parísarsamkomulagið, alþjóðlegt loftslagssamstarf, kolefnismarkaði og sameiginleg markmið. Spurningin er miklu einfaldari: ætlum við að taka þátt í lausninni á sömu forsendum og við krefjumst af öðrum, eða ætlum við að leita sífellt að næstu ástæðu fyrir því að okkar eigin losun sé undanskilin? 0,01% er staðreynd um stærð Íslands í ákveðnu loftslagsbókhaldi. Það er ekki stefna. Það er ekki hagfræðileg greining. Það er ekki siðferðileg niðurstaða. Og það er sannarlega ekki undanþága frá ábyrgð. Ef hver þjóð segir „við erum of lítil“, ef hvert fyrirtæki segir „keppinauturinn losar meira“ og ef hver einstaklingur segir „mitt framlag skiptir engu“, þá höfum við þegar ákveðið hvernig þessi saga endar. Það væri dapurleg niðurstaða fyrir tegund sem telur sig vera nógu gáfaða til að skilja vandann en of skammsýna til að leysa hann. Höfundur er umhverfis- og auðlindafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Logi Jóhannsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar