Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet og Jóhanna Malen Skúladóttir skrifa 11. september 2026 09:31 Margir hafa lesið nýlegar fréttir þess efni að ekki sé lengur hægt að takmarka hlýnun jarðar við 1,5 gráður líkt og samið var um í Parísarsáttmálanum og að við þörfnumst stórra og ákveðinna aðgerða strax til að koma í veg fyrir að skjóta enn hærra yfir þessar 1,5 gráður en við erum nú þegar búin að skrifa í stein. Þessi hlýnun vitum við að mun hafa og hefur nú þegar skelfilegar afleiðingar, á loftslagið okkar, umhverfi, á okkur og kerfin sem við höfum okkar lifibrauð af. Þrátt fyrir að þetta sé okkur skýrt og allar upplýsingar þess efnis liggi fyrir, meir og betur með hverjum degi, virðist vera sífellt erfiðara að fjármagna loftslagsaðgerðir, mótvægisaðgerðir og aðgerðir sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Nýkynnt fjárlög halda þessu þema áfram með því að skera niður loftslags- og orkusjóð um 3,2 milljarða króna. Við lifum á óstöðugum tímum, og stöndum frammi fyrir hættum og áskorunum sem við höfum aldrei áður þurft að takast á við. Fréttirnar um að við höfum misst af 1,5 gráður glugganum verður að vera okkur ástæða til að vinna hraðar og meira að markmiðum okkar en ekki að gefast einfaldlega upp. Við erum á barmi loftslagskrísu og vitum að nú þegar munum við sjá miklar og hraðar breytingar á allra næstu árum og áratugum. Loftslagsbreytingar munu hafa áhrif á Íslandi líkt og annars staðar, þó óskhyggja sumra haldi öðru fram. Á Íslandi er í raun enn meiri óvissa en annars staðar um hvaða áhrif loftslagbreytingar muni hafa, þar sem hrun Atlantshafshringrásarinnar gæti haft gífurlega kólnun hér á landi í för með sér á sama tíma og loftslag hlýnar hnattrænt. En hvaða breytingar sem verða þá verða þær miklar og munu hafa stórkostleg áhrif á hvernig við lifum okkar daglega lífi, það er óhjákvæmilegt. Nú þegar sjáum við áhrif loftslagsbreytinga og hamfarahlýnunar þvert yfir hnöttinn í auknum veðuröfgum. Þurrkar, flóð, hitabylgjur, kuldaköst og óvenjulegt veður færist sífellt í aukanna á öfgafyllri hátt með hverju ári. Loftslagið er auðvitað ekki það eina sem er að breytast, heldur veldur það breytingum í umhverfum og vistkerfum sem eru hraðar og óafturkræfar nema hratt sé brugðist við, verndum við ekki það sem hægt er að vernda úr þessu munum við einfaldlega missa það. Loftslagsaðgerðir og náttúruvernd getur auðveldlega farið hönd í hönd og aðgerðir sem taka á báðu eru okkur nauðsynlegar fyrir bætta framtíð okkar allra. En til þess að bregðast við verða þessar aðgerðir að vera fjármagnaðar. Núverandi ríkisstjórn hefur sem dæmi ítrekað talað um að endurheimta votlendi á Íslandi en sú vinna hefur verið lítil miðað við stór orð. Er til of mikils ætlast að fjármagn fylgi loforðum um aðgerðir? Ríkisstjórnin hefur gífurlega ábyrg að bera gagnvart framtíðarkynslóðum, en skammsýni hefur einkennst allar áætlanir hennar og gjörðir í tengslum við loftslagsaðgerðir. Við verðum að fjármagna meira en orkuskipti og virkjanir, mótvægisaðgerðir fyrir vistkerfi og náttúruna alla eru nauðsynlegar ef við viljum eiga okkur heilbrigt umhverfi til framtíðar. Þurfa allir okkar jöklar að bráðna til að við verði brugðist af alvöru? Þurfum við að upplifa uppskerubrest og sinuelda á Íslandi áður en loftslagsbreytingar verða teknar alvarlega? Munum við sitja hjá og bíða eftir því að Atlantshafshringrásin hrynji og öll ræktun utandyra á Íslandi verði ómöguleg áður en fjármagni verður veitt í aðgerði? Hver er sá þröskuldur sem við þurfum að fara yfir áður en ríkisstjórnin tekur hausinn úr sandinum og sér loftslagsbreytingar sem alþjóðlega neyðarástandið sem þær eru? Hvað mun þurfa til að ríkisstjórnin bregðist raunverulega við framtíðinni sem við stöndum frammi fyrir og láti gjörðir fylgja orðum og loforðum um viðbrögð og breytingar? Ætlum við að bíða eftir því að heimilið okkar sé brunnið til kaldra kola áður en við hringjum í neyðarlínuna? Höfundar eru jarðvísindamenn og sitja í stjórn Ungra umhverfissinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun