Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar 11. september 2026 09:00 Danmörk hefur stigið sögulegt skref í þágu dýra og náttúru. Í fyrsta sinn í sögu landsins hefur dýravelferð fengið skýra stöðu innan ríkisstjórnarinnar, með ráðherra sem ber sérstaka ábyrgð á málaflokknum. Þetta er stórt skref í þágu dýra og er mikilvægt fordæmi fyrir aðrar þjóðir. Í mörgum löndum heyra málefni dýravelferðar undir ráðuneyti landbúnaðar, matvæla eða atvinnuvega þar sem hagsmunir framleiðenda hafa mikið vægi. Þeir hafa jafnframt öfluga rödd við borðið. Það getur orðið til þess að hagsmunir þeirra vegi þyngra en velferð dýra. Dæmi um slíkt sjáum við hér á landi, ekki síst í verksmiðjubúskap þar sem framleiðendur fá jafnvel undanþágu frá dýravelferðarlögum í þágu hagræðingar og hagnaðarsjónarmiða í stað þess að bæta aðbúnað dýranna. Það er óásættanlegt að slíkar undanþágur séu veittar og að velferð dýra, sem eru skyni gæddar verur, sé þannig virt að vettugi. Svínakosningarnar Dýr eiga hins vegar málsvara hjá félagasamtökum sem gæta hagsmuna þeirra. Í Danmörku höfðu dýra- og umhverfisverndarsamtök mikil áhrif á umræðuna í aðdraganda þingkosninga í mars síðastliðnum. Vitundarvakning þeirra um meðferð svína í landinu leiddi til þess að dýravelferð varð stórt kosningamál og fór svo að kosningarnar voru kallaðar „Svínakosningarnar“. Öflugt starf samtakanna, afstaða almennings og vilji stjórnmálamanna áttu stóran þátt í því að nýtt ráðuneyti náttúru og dýravelferðar varð að veruleika. „Nú er nóg komið. Við höfum séð allt of mörg alvarleg dæmi um brot á velferð dýra. […] Það mun taka tíma að koma málunum í rétt horf, enda eru vandamálin umfangsmikil. En það er óumdeilanlegt að það VERÐUR að bregðast við.“- Christian Rabjerg Madsen, ráðherra náttúru og dýravelferðar, 8. september 2026. Að dýravelferð hafi nú sérstakan ráðherra í Danmörku er mikilvægt skref. Með því fær málaflokkurinn skýrari stöðu og ráðherra ber ábyrgð á því að velferð dýra sé höfð í forgangi. Hvað með Ísland? Á Íslandi heyra málefni dýravelferðar undir atvinnuvegaráðuneytið. Í kjölfar síðustu kosninga kallaði Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) eftir því að málaflokkur dýravelferðar yrði færður til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem þegar fer með málefni villtra dýra, vernd lífríkis og líffræðilegrar fjölbreytni. Ríkisstjórnin hafði í upphafi áform um þessa breytingu en féll síðan frá henni. Að mati DÍS væri það rökrétt skref að færa dýravelferðina þangað. Með því yrðu hagsmunir dýra betur aðskildir frá hagsmunum framleiðenda. Jákvæð skref á Íslandi Hins vegar ber að hrósa fyrir það sem vel er gert. Atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um heildarendurskoðun laga um velferð dýra sem er löngu orðið tímabært. Þá hefur ráðherra einnig boðað heildarendurskoðun laga um hvalveiðar þar sem horft verður til banns við hvalveiðum til frambúðar. Það er afar mikilvægt skref í þágu þessara dýra, enda eru hvalveiðar ómannúðlegar. Það sýnir vilja ráðherra til að standa með hagsmunum dýra, jafnvel þegar um er að ræða erfið og umdeild mál. Einnig hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðað frumvarp um endurskoðun villidýralaga. Þar er gert ráð fyrir stjórnunar- og verndaráætlunum fyrir tilteknar tegundir villtra dýra. Slíkar áætlanir geta eflt vernd og velferð þessara dýra. Danmörk hefur nú skapað velferð dýra skýran sess innan ríkisstjórnarinnar. Það er sögulegt skref sem vert er að fagna. Vonandi verður það öðrum þjóðum hvatning til að stíga þetta sama skref og hafa velferð dýra í forgangi, líka hér á Íslandi. Höfundur er formaður Dýraverndarsambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dýraheilbrigði Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar