Viðskipti innlent

Ráðin fram­kvæmda­stjóri við­skiptaþróunar hjá Ís­lands­hótelum

Atli Ísleifsson skrifar
Hildur Ómarsdóttir.
Hildur Ómarsdóttir. Íslandshótel

Hildur Ómarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum.

Í tilkynningu segir að hún hafi yfir tveggja áratuga reynslu úr ferðaþjónustu og hafi starfað um árabil hjá Icelandair Hótelum, síðar Iceland Berjaya Hotels. 

„Þar gegndi hún fjölbreyttum stjórnunarstörfum, meðal annars sem aðstoðarframkvæmdastjóri, framkvæmdastjóri þróunar og markaðssviðs, sölu og markaðsstjóri og hótelstjóri.

Hildur hefur víðtæka reynslu af þróun nýrra verkefna, uppbyggingu vörumerkja og opnun nýrra hótela. Undanfarin rúm tvö ár hefur hún starfað hjá Flóka Invest þar sem hún hefur meðal annars sinnt viðskiptaþróun, rekstri hótelíbúða og fasteignaumsýslu. Samhliða störfum sínum hefur hún setið í stjórnum fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu og nýsköpunar,“ segir í tilkynningunni.

Ennfremur segir að í starfi sínu hjá Íslandshótelum muni Hildur bera ábyrgð á viðskiptaþróun félagsins með áherslu á ný vaxtartækifæri, stefnumótun, samstarfsverkefni og þróun vöruframboðs. Sem hluti af framkvæmdastjórn muni hún jafnframt taka þátt í mótun heildarstefnu Íslandshótela.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×