Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Birgir Olgeirsson skrifar 8. september 2026 13:55 Heiðar Guðjónsson er stjórnarformaður Íslandsbanka. Hann bendir á að Fjármálaeftirlitið meti hæfi stjórnarmanna kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja gaumgæfilega og telur ólíklegt að ólokið mál er varði hann sé til meðferðar hjá eftirlitinu. Vilhelm Seðlabanki Íslands staðfestir hvorki né neitar að Fjármálaeftirlitið hafi til skoðunar mál sem tengist Heiðari Guðjónssyni og sölu félags hans á hlutabréfum í Sýn sumarið 2022.
Sýn segist hafa sent eftirlitinu gögn í febrúar um meðferð rekstrarupplýsinga innan félagsins árið 2022. Vísir spurði Seðlabankann hvort gögnin hefðu borist, hvort þau vörðuðu viðskipti Heiðars eða Úrsus ehf. og hvort þau hefðu legið fyrir við hæfismat hans vegna stjórnarformennsku í Íslandsbanka. Vilhelm Seðlabankinn svaraði spurningunum ekki efnislega og vísaði til þagnarskyldu. „Þó að Fjármálaeftirlit Seðlabankans geti á hverjum tíma haft til skoðunar og rannsóknar tiltekin mál varðandi meint eða möguleg brot á lögum getur bankinn ekki tjáð sig efnislega um slík mál,“ segir í svarinu. Bankinn segir ábendingar sem berist eftirlitinu metnar og skoðað sé hvort tilefni sé til frekari athugunar. Beiðni Vísis um upplýsingarnar var hafnað. Heiðar vísar til hæfismatsins Heiðar hefur hafnað ásökunum Gavia Invest um að hann hafi haldið upplýsingum frá félaginu þegar það keypti 12,72 prósenta hlut Úrsus í Sýn fyrir nærri 2,2 milljarða króna. Hann segir málið fráleitt, kaupendurnir hafi tekið við stjórn Sýnar um leið og hann hafi hætt og haft fjögur ár til að kanna málið. „Það eru engin svik,“ segir Heiðar. Hann hefur jafnframt sagt ólíklegt að ólokið mál sem varði hann sé til meðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu samhliða stjórnarformennsku hans í Íslandsbanka. Seðlabankinn svaraði ekki hvort gögn Sýnar hefðu legið fyrir við hæfismatið. Í almennum upplýsingum bankans segir að uppfylli einstaklingur hæfisskilyrði fái hann bréf um að Fjármálaeftirlitið geri ekki athugasemdir við hæfi hans. Eftirlitið geti þó hvenær sem er tekið hæfi hans til sérstakrar skoðunar. Gavia segir upplýsingum hafa verið haldið eftir Gavia hefur höfðað skaðabótamál gegn Heiðari og Úrsus vegna hlutabréfakaupanna. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Gavia, segir IoT-tekjur Sýnar frá samstarfi við Controlant vera þungamiðju málsins. IoT-tekjur eru greiðslur sem Sýn fær fyrir að tengja tæki við farsímakerfið. Í þessu tilviki komu tekjurnar frá SIM-kortum í mælum Controlant sem meðal annars voru notaðir til að fylgjast með hitastigi og staðsetningu lyfja- og bóluefnasendinga. Umsvif Controlant jukust gríðarlega í heimsfaraldri kórónuveirunnar en drógust mikið saman þegar faraldrinum slotaði. Gavia telur að Heiðar hafi við söluna vitað að verulegur samdráttur hefði þegar orðið í tekjunum. Um innherjaupplýsingar hafi verið að ræða sem kaupandanum hafi ekki verið veittar. Einar Hugi segir umbjóðendum sínum ekki hafa orðið málið ljóst fyrr en uppgjör Sýnar árið 2025 lá fyrir. Hann hefur jafnframt hafnað því að málshöfðunin sé liður í rógsherferð og segir um hefðbundið dómsmál að ræða. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Seðlabankinn Mest lesið Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira