Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar 8. september 2026 10:03 Í farvatninu er reglugerð frá Evrópusambandinu sem mun í mörgum tilfellum gera opinberum aðilum illmögulegt að nota skýjaþjónustur og gervigreind í eigu bandarískra stórfyrirtækja. ESB, skýjaþjónustur og gervigreind Undanfarin misseri hefur geisað viðskiptastríð á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Fyrst og fremst er barist um aðgengi að gervigreind og nýtingu hennar. Bandaríkin hafa leitt þróun á því sviði og flest stærstu fyrirtæki heims í skýjaþjónustu og gervigreind eru bandarísk. Það hefur sett Evrópusambandið í mjög erfiða stöðu, því af ýmsum ástæðum hafa evrópskir þjónustuaðilar dregist verulega aftur úr, og í dag eru það bandarísk risafyrirtæki sem veita nær alla þjónustu í stafrænni tækni og gervigreind. Evrópusambandið hefur á undanförnum árum reynt að bregðast við þessu ástandi fyrst og fremst með nýjum reglugerðum. GDPR, Data Act, AI Act og fleiri eru samansafn reglugerða sem hafa þrengt að notkun evrópskra stofnana og fyrirtækja á bandarískri tækni í þeim tilgangi að bæta persónuvernd og öryggi, en ekki síður samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja. Þetta hefur m.a. leitt til þess að stórir aðilar í Frakklandi og Þýskalandi hafa fært skýjaþjónustur og notkun gervigreindar frá stórum bandarískum þjónustuaðilum til fyrirtækja innan Evrópu. Bandarísk fyrirtæki hafa brugðist við þessari þróun með því að flytja gögn og hluta starfsemi sinnar til Evrópulanda í þeim tilgangi að evrópsk fyrirtæki og stofnanir geti sagst nota skýjaþjónustu hýsta í Evrópu. Það fyrirkomulag hefur verið það haldreipi sem sum íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa gripið í svo vinnsla og geymsla upplýsinga geti verið áfram hjá bandarískum tæknifyrirtækjum eins og Microsoft, Google og Amazon. Nýlega kynnti Evrópusambandið aftur á móti að unnið sé að nýrri reglugerð, Reglugerð um þróun skýjaþjónustu og gervigreindar (CADA). Þessi reglugerð mun, þegar hún tekur gildi, setja reglur um hvaða þjónustuveitendur gervigreindar og skýjaþjónustu opinberar stofnanir megi nota. Hún mun hafa áhrif á nær öll innkaup skýjaþjónustu opinberra aðila á Íslandi. Reglugerð um þróun skýjaþjónustu og gervigreindar Tillaga að reglugerðinni var kynnt af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í júní 2026. Hún mun fara í þinglega meðferð og koma síðan til innleiðingar á Íslandi í gegnum EES samninginn. Fyrst í stað mun hún gilda fyrir innkaup opinberra stofnana, en ekki er ólíklegt að einkageirinn muni fylgja á eftir. Reglugerðin gerir þá kröfu að opinberir aðilar flokki starfsemi sína í fjögur stig: Fyrsta stig er starfsemi sem telst ekki viðkvæm og myndi ekki skaða almannaöryggi eða mikilvæga þjónustu ef hún stöðvaðist eða ytri aðilar nálguðust gögnin. Annað stig er fyrir mikilvægari þjónustu sem gæti haft áhrif á samfélagið ef hún virkaði ekki eða gögn myndu komast í hendur annarra. Þriðja stig er fyrir mjög mikilvæga starfsemi, löggæslu, hluta heilbrigðiskerfis og dómskerfi. Fjórða stigið er að lokum fyrir mikilvægustu starfsemina eins og þjóðaröryggismál. Fyrir þjónustuveitendur á öðru stigi verður að vera tryggð evrópsk staðsetning og að engir ytri aðilar geti nálgast eða haft áhrif á þjónustuna. Bandarísk fyrirtæki geta staðsett skýjaþjónustur í Evrópu, en þau geta ekki tryggt að bandarísk stjórnvöld komist ekki í gögnin vegna þess að sérstök löggjöf í Bandaríkjunum að nafni Cloud Act skyldar bandarísk fyrirtæki, að uppfylltum lagaskilyrðum, til að veita bandarískum stjórnvöldum aðgang að kerfum sínum og gögnum hvar sem er í heiminum. Því er bandarískum fyrirtækjum gert ókleift að veita skýjaþjónustu til opinberra aðila í Evrópu sem teljast á öðru stigi reglugerðarinnar. Þriðja og fjórða stig reglugerðarinnar, sem eiga við um allra viðkvæmustu starfsemina, gera sem meginreglu að einungis megi nota skýjaþjónustu sem er staðsett í Evrópu og er í eigu evrópskra aðila. Reglugerð Evrópusambandsins er því vísvitandi gerð til að tryggja að einungis evrópskir aðilar geti séð um skýjaþjónustu á viðkvæmustu gögnum opinberra aðila, nema engin sambærileg evrópsk lausn sé í boði. Hvað næst? Stór hluti Evrópu er í raun að fara sömu leið og Bandaríkin og Kína, sem hafa ávallt haft strangar reglur um aðgengi að viðkvæmustu upplýsingum opinberra aðila. Þessi reglugerð er því einungis viðurkenning á því að stafræn þjónusta og gervigreind er orðin að mikilvægustu innviðum hvers ríkis. Þessi reglugerð mun óneitanlega hafa veruleg áhrif á starfsemi íslenskra stofnana og þjónustufyrirtækja þeirra á næstu árum. Það mun ekki nægja að vinna með traustum aðilum heldur skiptir öllu máli undir hvaða lögsögu þeir eru. Staðsetning innan Evrópu er ekki lengur nægjanleg því að þjónustufyrirtækið gæti verið undir bandarískri lögsögu. Opinberir aðilar á Íslandi, sem falla undir eitt af efri stigum reglugerðarinnar, munu ekki geta keypt skýjaþjónustu frá aðila sem uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar á því stigi. Opinber aðili í mikilvægri starfsemi, samkvæmt reglugerðinni, mun því ekki geta keypt skýjaþjónustu fyrir þá starfsemi frá bandarísku tæknifyrirtæki. Það er því mikilvægt að opinberir aðilar á Íslandi undirbúi sig undir þessa reglugerð og geri viðeigandi ráðstafanir til framtíðar. Höfundur er sérfræðingur í gerð hugbúnaðarkerfa hjá ulfai.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Upplýsingatækni Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun