Viðskipti erlent

Truflanir á ChatGPT

Bjarki Sigurðsson skrifar
Líkanið liggur ekki niðri hjá öllum.
Líkanið liggur ekki niðri hjá öllum. Getty/Matteo Della Torre

Truflanir eru á nokkrum þjónustum gervigreindarrisans OpenAI, þar á meðal á hinu geysivinsæla spjalllíkani ChatGPT. Tugþúsunda hafa tilkynnt um truflanir og hafa fréttastofu borist ábendingar frá fólki hérlendis að þjónustan liggi niðri.

Í tilkynningu á bilanavef OpenAI segir að þeim hafa borist fleiri tilkynningar um bilanir en venjulega frá notendum ChatGPT og Codex. Starfsmenn telji sig hafa fundið lausn á málinu og fylgjast með gangi mála.

Rétt er að taka fram að líkanið liggur ekki niðri hjá öllum. Til að mynda fengust skilaboðin hér fyrir neðan þegar blaðamaður spurði það sjálfur hvort það lægi niðri. 

Skilaboðin sem fengust.

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×