Kviðdómendur fá síðasta séns Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2026 10:50 Lindsay Clancy og Kevin Reddington, lögmaður hennar, í dómsal í gær. AP/Gregg Derr, The Patriot ledger Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar í fimm daga. Það hefur ekki borið árangur en búist er við því að í dag fái þeir sinn síðasta séns til að komast að niðurstöðu. Annars verður málinu gegn konunni sem kyrkti þrjú ung börn sín vísað frá dómi. William Sullivan, dómari, bað kviðdómendur í gær um að leggja sannfæringu sína ekki til hliðar til að komast að niðurstöðu. Þeir ættu þó að hlusta á mótrök og breyta afstöðu sinni, ef svo ætti við. Sjá einnig: Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Hann sagði ómögulegt að segja til um það hvort nýr kviðdómur væri betur búinn til að komast að niðurstöðu, ef rétta þyrfti aftur í málinu. Kviðdómendurnir tólf, níu konur og þrír menn, hafa varið meira en þrjátíu klukkustundum í að reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Þeir hafa tvisvar sinnum sagt við dómarann að það hafi ekki gengið eftir en hann hefur sagt þeim að reyna aftur. Sullivan sendi kviðdómendur aftur heim í gær, eftir að hafa rætt við hvern og einn, en fastlega er búist við því að önnur tilraun verði gerð í dag og að hún verði sú síðasta. Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. Hún lamaðist fyrir neðan mitti við fallið. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Sjá einnig: „Hún drap börnin“ Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Sjá einnig: Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Málið gegn Clancy hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þrír kostir ef réttarhöldin verða ógild Ef niðurstaða kviðdómenda er sekt, þurfa þeir allir að vera þeirrar skoðunar að saksóknarar hafi sannað að Clancy hafi bæði framið glæpinn og sé sakhæf. Dómarinn hefur áður sagt kviðdómendum að Clancy væri ekki sakhæf ef hún hefði átt við geðrænan vanda að stríða sem hefði komið í veg fyrir að hún hefði stjórn á aðgerðum sínum eða skyldi þær að fullu. Komist kviðdómendur að þeirri niðurstöðu að Clancy sé sek, verða þeir að velja á milli þess að hún hafi framið morð eða manndráp. Morð felur í sér lífstíðarfangelsisdóm en verði niðurstaðan manndráp gæti hún einhvern tímann losnað úr fangelsi. Ef kviðdómendur segja að Clancy sé ekki sakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins. Enn einn möguleikinn í stöðunni er að kviðdómendur komist ekki að sameiginlegri niðurstöðu, eins og þeir hafa verið í vandræðum með. Fari svo, verður dómarinn að vísa málinu frá. Þá verður það saksóknara að ákveða hvort þeir vilji gera aðra tilraun í dómsal, fella niður ákærurnar gegn Clancy eða gera einhvers konar samkomulag við lögmenn hennar. Geti ekki setið önnur réttarhöld Kevin Reddington, lögmaður Clancy, sagði á þriðjudaginn, samkvæmt frétt New York Times, að hann teldi hana ekki hafa andlega getu til að ráða við önnur réttarhöld. Hann sagði þó að hann myndi halda áfram að verja hana. Þá var hann spurður hvort til greina kæmi að Clancy gengist við vægari ákærum. Þá vísaði Reddington til þess að það væri saksóknara að leggja slíka tillögu fram. Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Tengdar fréttir Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. 4. ágúst 2026 13:02 Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira
William Sullivan, dómari, bað kviðdómendur í gær um að leggja sannfæringu sína ekki til hliðar til að komast að niðurstöðu. Þeir ættu þó að hlusta á mótrök og breyta afstöðu sinni, ef svo ætti við. Sjá einnig: Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Hann sagði ómögulegt að segja til um það hvort nýr kviðdómur væri betur búinn til að komast að niðurstöðu, ef rétta þyrfti aftur í málinu. Kviðdómendurnir tólf, níu konur og þrír menn, hafa varið meira en þrjátíu klukkustundum í að reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Þeir hafa tvisvar sinnum sagt við dómarann að það hafi ekki gengið eftir en hann hefur sagt þeim að reyna aftur. Sullivan sendi kviðdómendur aftur heim í gær, eftir að hafa rætt við hvern og einn, en fastlega er búist við því að önnur tilraun verði gerð í dag og að hún verði sú síðasta. Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. Hún lamaðist fyrir neðan mitti við fallið. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Sjá einnig: „Hún drap börnin“ Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Sjá einnig: Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Málið gegn Clancy hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þrír kostir ef réttarhöldin verða ógild Ef niðurstaða kviðdómenda er sekt, þurfa þeir allir að vera þeirrar skoðunar að saksóknarar hafi sannað að Clancy hafi bæði framið glæpinn og sé sakhæf. Dómarinn hefur áður sagt kviðdómendum að Clancy væri ekki sakhæf ef hún hefði átt við geðrænan vanda að stríða sem hefði komið í veg fyrir að hún hefði stjórn á aðgerðum sínum eða skyldi þær að fullu. Komist kviðdómendur að þeirri niðurstöðu að Clancy sé sek, verða þeir að velja á milli þess að hún hafi framið morð eða manndráp. Morð felur í sér lífstíðarfangelsisdóm en verði niðurstaðan manndráp gæti hún einhvern tímann losnað úr fangelsi. Ef kviðdómendur segja að Clancy sé ekki sakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins. Enn einn möguleikinn í stöðunni er að kviðdómendur komist ekki að sameiginlegri niðurstöðu, eins og þeir hafa verið í vandræðum með. Fari svo, verður dómarinn að vísa málinu frá. Þá verður það saksóknara að ákveða hvort þeir vilji gera aðra tilraun í dómsal, fella niður ákærurnar gegn Clancy eða gera einhvers konar samkomulag við lögmenn hennar. Geti ekki setið önnur réttarhöld Kevin Reddington, lögmaður Clancy, sagði á þriðjudaginn, samkvæmt frétt New York Times, að hann teldi hana ekki hafa andlega getu til að ráða við önnur réttarhöld. Hann sagði þó að hann myndi halda áfram að verja hana. Þá var hann spurður hvort til greina kæmi að Clancy gengist við vægari ákærum. Þá vísaði Reddington til þess að það væri saksóknara að leggja slíka tillögu fram.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Tengdar fréttir Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. 4. ágúst 2026 13:02 Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira
Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik. 4. ágúst 2026 13:02