Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. september 2026 09:15 Gunnur hefur gegnt starfinu síðan í lok júlí. Gunnur Helgadóttir hefur verið ráðin forstjóri Hrafnistu. Hún hefur gegnt starfinu tímabundið frá lokum júlí en hún starfaði fyrir það sem framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistu.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar kemur fram að Gunnur hafi starfað hjá Hrafnistu frá árinu 2020. Þar áður var hún framkvæmdastjóri lyfjafyrirtæksins Vistor í nærri tíu ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BS-próf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Gunnur hefur auk þess víðtæka stjórnunarreynslu og starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur. „Við erum afar ánægð með að Gunnur taki við starfi forstjóra Hrafnistu til framtíðar. Hún þekkir starfsemi okkar vel og getur því strax stigið inn í mikilvæg verkefni. Auk þess sem hún býr yfir öflugri blöndu af faglegri þekkingu og stjórnunarreynslu. Fram undan eru mikilvæg verkefni í uppbyggingu og þróun öldrunarþjónustu og við höfum fulla trú á að Gunnur muni leiða Hrafnistu af krafti inn í næsta kafla,“ segir Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, í tilkynningu. „Ég tek við starfinu af mikilli tilhlökkun og metnaði. Hrafnista býr yfir mikilli þekkingu og öflugu starfsfólki. Ég hlakka til að vinna áfram með þessum góða hópi að því að þróa þjónustuna og skapa íbúum okkar öryggi, traust og vellíðan,“ segir Gunnur. Í tilkynningunni kemur fram að Hrafnista er stærsti rekstraraðili hjúkrunarheimila á Íslandi og rekur sex hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og eitt á Reykjanesi. Meginmarkmið Hrafnistu sé að veita framúrskarandi þjónustu þannig að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Hrafnista sé óhagnaðardrifið dótturfélag Sjómannadagsráðs og saga starfseminnar nær aftur til ársins 1957 þegar Hrafnista í Laugarási tók til starfa.
Vistaskipti Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira