Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Atli Ísleifsson skrifar 27. ágúst 2026 12:25 American Airlines snýr aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru. Bandaríska flugfélagið American Airlines tilkynnti í dag um nýja áætlunarleið milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Fíladelfíu (PHL), sem hefst 27. maí 2027.
Í tilkynningu frá Isavia segir að flogið verði daglega yfir sumartímann á Airbus A321neo flugvél sem taki 196 farþega. „American Airlines snýr þar með aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru. Félagið hóf flug milli KEF og Dallas-Fort Worth 2018 og áformaði að bæta Fíladelfíu við sem áfangastað 2020. Ekkert varð af því vegna heimsfaraldursins og hætti félagið einnig flugi milli Íslands og Dallas,“ segir í tilkynningunni. „Við á Keflavíkurflugvelli bjóðum American Airlines aftur velkomið til okkar og fögnum þessari ákvörðun,“ er haft eftir Ómari Svavarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta á KEF. „Það er ánægjulegt að fá félagið aftur í flugvallarsamfélagið okkar á vellinum. Þessi nýja leið styrkir tengingu okkar við Norður-Ameríku og sýnir að þetta stóra flugfélag hefur sterka trú á áfangastaðnum Íslandi.“ Þá er haft eftir José A. Freig, framkvæmdastjóra alþjóðlegra rekstrarmála og samstarfsaðila hjá American Airlines, að félagið sé afar spennt að snúa aftur til Íslands með nýju flugi milli KEF og Fíladelfíu. „Með þessari nýju leið fá farþegar frá Íslandi og Norðurlöndunum greiðan aðgang að einum ört vaxandi tengiflugvelli okkar í Bandaríkjunum. Frá Fíladelfíu geta þeir ferðast áfram til meira en 100 áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin og til annarra heimshluta.“ Flugáætlun KEF–PHL
Keflavíkurflugvöllur Flug Bandaríkin Ferðalög Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira