Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar 26. ágúst 2026 20:02 Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar næstkomandi laugardag hefur rignt yfir almenning auglýsingaherferð Já til að sjá sem byggir nær eingöngu á gylliboðum um að lægri vextir, ódýrari matur og minni verðbólga verði eins og fyrir töfra raunin hér á landi við það eitt að ganga í Evrópusambandið. Breytir þar engu þó að þessar mýtur hafi margsinnis verið afsannaðar í bæði ræðu og riti á opinberum vettvangi síðustu vikur. Gamli góði popúlisminn Það er ekkert nýtt að stjórnmálaflokkar og fylgitungl þeirra lofi gulli og grænum skógum í skiptum fyrir atkvæði. Almenningi er lofað öllu mögulegu (eða ómögulegu) í þeirri von að kjósendur láti til leiðast og falli á sveif með þeim. Jafnvel er reynt að gera þá sem eru á öndverðu meiði að óvini fólksins og honum gert upp annarlegar skoðanir og hann sé ganga erinda einhvers konar elítu. Þó mér finnist slíkur málflutningur ekki sérlega geðslegur sýni ég honum ákveðinn skilning upp að vissu marki, þar sem popúlismi getur skilað ljómandi góðum árangri fyrir þann sem beitir honum, sbr. velgengni manna eins og Donald Trump og Viktor Orban sem hafa beitt popúlismanum í miklum mæli síðustu ár. Þó er rétt að halda til að haga að Já-liða er ekki hægt að leggja að jöfnu við þá Trump og Orban þó þeir tilenki sér aðferðir þeirra í aðdraganda kosninga. Barnaleikur Á milli þess sem að Já-sinnar hafa gert lítið úr eldri kjósendum í áróðursmyndböndum sínum hafa þeir á sama tíma hvatt okkur sem eldri eru til að segja já 29. ágúst „fyrir börnin“ okkar. Ég er ekki viss um að ungu fólki hugnist framtíð þar sem ákvarðanataka um þau og þeirra nærumhverfi verður ekki í okkar eigin höndum heldur embættismanna í Brussel. Ég held mun fremur að þau myndu hugsa okkur fyrri kynslóðum þegjandi þörfina fyrir að takmarka sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar með því að gangast undir erlent vald. Ég tel að það sé börnunum, og reyndar öllum Íslendingum, fyrir bestu að ríkisstjórnin hætti að rembast eins og rjúpan við staurinn að reyna að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, samband sem aldrei hefur verið áhugi á meðal þjóðarinnar að ganga í. Tíma stjórnvalda og kröftum ætti fremur að vera varið í að ná tökum á vöxtum og verðbólgu, því það gerir enginn annar en við sjálf. Ef við ætlum að hlaupast undan því verkefni og bíða eftir að einhver annar geri það þá munum við aldrei upplifa aftur lægri vexti og minni verðbólgu. Sjálfstætt Ísland eru hagsmunir ungs fólks Íslendingar hafa lengi verið sjálfstæð og stolt þjóð eins og má sjá af langri og harðri sjálfstæðisbaráttu okkar á sínum tíma. Þá var ekki til staðar hugarfarið að „við getum þetta ekki sjálf“. Þá skorti Íslendinga ekki sjálfstraust. Þá hafði íslenska þjóðin trú á sjálfri sér og taldi sig sjálfa best til þess fallna til að stjórna landinu. Ég neita að trúa því að meirihluti þjóðarinnar hafa misst þá trú á íslensku þjóðinni. Ég hef ennþá trú á okkur og mun því segja NEI næstkomandi laugardag. Höfundur er fyrrv. form. Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Sjá meira
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar