Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson og Jón Helgi Björnsson skrifa 24. ágúst 2026 08:02 Þegar þetta er skrifað eru sautján mánuðir og 23 dagar liðnir frá því að svokallað Áhættumat erfðablöndunar rann út. Lögum samkvæmt á Hafrannsóknastofnun að gefa þetta mat, sem stýrir hversu mikið af eldislaxi má ala í sjókvíum við Ísland, út á að lágmarki þriggja ára fresti. Síðast sendi þó stofnunin frá sér þetta mat, þar sem samráðsferli þess var samkvæmt lögum vorið 2020. Þegar sú útgáfa rann út 2023 ákvað stofnunin upp á sitt einsdæmi á vafasömum lagalegum forsendum að framlengja hana til 1. mars 2025. Um einu og hálfu ári síðar bólar ekki enn á uppfærðu mati. Hvernig stendur á þessum vinnubrögðum? Einn norskur eldislax í ám er of mikið Í upphafi voru stjórnvöld, stofnanir, eldisfyrirtæki og samtök þeirra, ásamt hagsmunum veiðiréttarhafa, sammála um að áhættumatið ætti að ráðast af vísindum, raungögnum og varúð. Það átti því ekki að ráðast af pólitískri þörf fyrir tiltekið eldismagn, væntingum atvinnugreinarinnar eða vonum um að unnt verði að bregðast við eftir að fiskur hefur sloppið. Í því samhengi er þó rétt að geta þess að Landssamband veiðifélaga og aðrir velunnarar villtra íslenska laxastofna, hafa ávallt haldið því fram að einn norskur eldislax í íslenskri á sé alltaf einum laxi of mikið. Þess vegna er staðan í endurskoðun áhættumatsins svo alvarleg. Endurskoðunin átti að birtast fyrir löngu. Drög Hafrannsóknastofnunar birtust 15. september 2025 og samráðsnefnd um fiskeldi skilaði ráðgefandi áliti 27. febrúar síðastliðinn. Nú, rúmum fimm mánuðum síðar, hefur enn ekki verið birt rökstudd afstaða Hafrannsóknastofnunar til meirihlutaálits nefndarinnar, ásamt sérálitum og bókunum. Á meðan ferlið dregst byggist framleiðsla á laxi í sjókvíum á mati sem er úrelt, í millitíðinni, hafa Íslendingar, því miður, öðlast aukna reynslu af strokum, kynþroska eldislaxa og erfðafræðilegum áhrifum sem kalla á ítarlega endurskoðun. Hvað segir vísindasamfélagið um málið? Alþjóða hafrannsóknaráðið, ICES, hefur farið yfir áhættumatið sem Hafrannsóknastofnun styðst við og komist að þeirri niðurstöðu að það samrýmist ekki varúðarnálgun, vegna óvissu og mögulegrar skekkju í lykilforsendum þess. Á grundvelli matsins eins og það liggur fyrir er því ekki hægt að slá því föstu að 106.500 tonn sé öruggt eldismagn. Í nýjum drögum að áhættumatinu eru settar fram þrjár gjörólíkar sviðsmyndir. Með virkum mótvægisaðgerðum og aukinni vöktun í ám er ráðlagt hámark 106.500 tonn. Ef mótvægisaðgerðir í ám eru hins vegar ekki virkar lækkar talan í 50.000 tonn. Ef stjórnun kynþroska eldisfisks bregst jafnframt lækkar hún enn frekar, niður í 5.900 tonn. Munurinn á 106.500 og 50.000 tonnum er 56.500 tonn. Það er meira en helmingur alls eldismagnsins sem núgildiandi áhættumat heimilar og er talan sem er í forgrunni draga af nýju áhættumati. Þessi viðbót er því ekki niðurstaða um það sem náttúran þolir. Hún byggist á þeirri forsendu að mótvægisaðgerðir haldi, að aukin vöktun virki og að unnt sé að finna og fjarlægja strokulax úr ám áður en hann tekur þátt í hrygningu. Það er mjög veigamikil forsenda að leggja undir 56.500 tonn af frjóum eldislaxi. Virka mótvægisaðgerðir og vöktun í ám? Haustið 2025 stóðu Landssamband veiðifélaga, Íslenski náttúruverndarsjóðurinn og Verndarsjóður villtra laxastofna fyrir verkefni þar sem sérfræðingar frá Norsku dýralæknastofnuninni, NINA og SkandNat könnuðu íslenskar ár og reyndu að fjarlægja eldislaxa. Verkefnið sýndi að rekköfun getur verið gagnleg við bestu mögulegu aðstæður, gott veður og tært vatn sem tryggir gott skyggni í ám, líkt og var 2023. Reynslan frá 2025 er hins vegar allt önnur. Það er ljóst að íslenskt veðurfar, rennsli og skyggni geta svo til útilokað að rekköfun skili árangri. Niðurstaðan er sú að forvarnir gegn stroki eigi að vera megináherslan. Rekköfun er í besta falli skaðaminnkunaraðgerð sem virkar aðeins við bestu hugsanlegu aðstæður. Auk þess töldu norsku sérfræðingarnir það fráleitt að nota rekköfun sem réttlætingu á auknu eldismagni. Með öðrum orðum, rekköfun er neyðarráðstöfun eftir að strok hefur orðið. Hún getur minnkað tjón í einstökum tilvikum. Hún er ekki örugg aðferð til að koma í veg fyrir erfðamengun og getur ekki orðið forsenda fyrir auknu eldismagni fyrirfram. Það er einnig grundvallaratriði að mótvægisaðgerðir í skilningi gildandi regluverks eiga fyrst og fremst að lúta að rekstri eldisfyrirtækjanna sjálfra: búnaði, eldisaðferðum, innra eftirliti, ytra eftirliti, netöryggi, stjórnun kynþroska og öðrum fyrirbyggjandi ráðstöfunum þar sem áhættan verður til. Það má ekki færa ábyrgðina úr sjókvíunum og inn í ár, á bændur landsins, eignarland þeirra og veiðirétt. Hvað segja lögin? Þetta er ekki aðeins sanngirnissjónarmið heldur lagaleg staðreynd. Ekkert í núverandi laga eða reglugerðarumhverfi veitir stjórnvöldum heimild til að reisa áhættumat erfðablöndunar á mótvægisaðgerðum í veiðiám án samþykkis veiðiréttarhafa. Í því samhengi er rétt að minna á að veiðiréttur jarða nýtur verndar eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Það er því ljóst að rúmlega helmingur þess eldismagns sem Hafrannsóknastofnun leggur til, 56.500 af 106.500 tonnum, hvílir ekki aðeins á óskhyggju um árangur rekköfunar heldur á aðgerðum sem stjórnvöld hafa enga lagaheimild til að knýja fram á eignum annarra. Af hverju þessar tafir? Þá verður að ræða tafirnar af hreinskilni. Ábyrgðin liggur ekki eingöngu hjá atvinnuvegaráðuneytinu og Hafrannsóknastofnun. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, sem tala fyrir hönd rekstrarleyfishafa í sjókvíaeldi, hafa einnig haft veruleg áhrif á framvindu málsins. SFS skilaði séráliti sínu 17. febrúar, eða um tveimur mánuðum eftir að meirihlutaálitið var fullunnið ásamt séráliti og bókunum annarra meðlima nefndarinnar. Enn alvarlegra er að Hafrannsóknastofnun hafði óskað eftir tillögum eldisfyrirtækjanna að mótvægisaðgerðum 25. nóvember 2025, en ítarlegar tillögur SFS bárust ekki fyrr en 2. júní 2026 — rúmum sex mánuðum síðar og meira en þremur mánuðum eftir að ráðgefandi álit nefndarinnar lá fyrir. Sá sem tapar á þessum tafaleikjum er ekki ríkisvaldið eða eldisfyrirtækin. Það eru villtir laxastofnar, veiðiréttarhafar og þau byggðarlög sem reiða sig á heilbrigðar ár. Ávinninginn af því að fá að halda framleiðslu í hæstu sviðsmynd, á meðan óvissan er óleyst, njóta hins vegar eldisfyrirtækin og samtök þeirra. Hagsmunir fárra ofar hagsmunum heildarinnar. Áhættumat getur ekki orðið að samningatóli þar sem fyrst er ákveðið hvert eldismagnið eigi að vera og síðan leitað leiða til að réttlæta það. Vísindin eiga að koma fyrst. Síðan kemur ákvörðun um leyfilegt eldismagn. Nú þurfa atvinnuvegaráðuneytið, Hafrannsóknastofnun og SFS að standa við orð sín um að sjókvíaeldi eigi að vera innan marka náttúrunnar og í sátt við samfélagið. Það er því ljóst að áhættumatið sem Hafrannsóknastofnun verður að gefa út og senda til ráðherra til undirritunar á næstu dögum getur aldrei verið hærra en 50.000 tonn, að því gefnu að mótvægisaðgerðir eldisfyrirtækjanna haldi — sem hefur ekki verið raunin. Höfundar eru formaður Landssambands veiðifélaga og framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lax Sjókvíaeldi Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar