Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 19:42 Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er að skrifa nýjan kafla í íslenska golfsögu á opna breska áhugamannamótinu í piltaflokki. @gsigolf Íslenski kylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í úrslit opna breska áhugamannamótsins í piltaflokki.
Óliver Elí sigraði nýkrýndan Evrópumeistara unglinga, Tao Pemerika, í bráðabana með glæsilegum fugli á 22. holu. Hann hefur nú unnið fimm leiki í röð í holukeppninni á Gailes Links í Skotlandi. Í úrslitum mætir Óliver Svíanum Ludwig Libera í 36 holu úrslitaleik á morgun. Óliver hefur leikið frábært golf síðustu daga. Hann var jafn í 118. sæti eftir fyrsta hring höggleiksins, en svaraði með frábærum öðrum hring upp á 66 högg. Það var fjórða besta skor dagsins og tryggði honum sæti í 64 manna holukeppninni þar sem hann er á mikilli sigurgöngu. Óliver Elí verður á morgun fyrsti Íslendingurinn sem keppir til úrslita á einu virtasta og sterkasta ungmennamóti heims. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira