Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar 13. ágúst 2026 20:30 Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi mögulega endurupptöku aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið, hafa ýmsir, jafnvel þingmenn, kallað eftir að samningsmarkmið Íslands verði þegar lögð fram. Hefur þetta gengið svo langt að utanríkisráðherra hefur gefið út yfirlýsingar um eitt og annað, svo sem um sjávarútveg. Vandamálið er, eins og allir sem þekkja til viðamikilla og flókinna samningaviðræðna vita, að almenn vitneskja um raunveruleg samningsmarkmið veikir samningsstöðu Íslands. Samningsaðilar byrja að jafnaði með því að leggja fram ýtrustu kröfur. Sumar verða okkur mjög mikilvægar og við munum seint hvarfla frá, jafnvel láta steyta á þeim; aðrar eitthvað sem við verðum tilbúin að gefa eftir, fáum við tilslökun frá gagnaðilanum. Þess vegna viljum við ekki að viðsemjendur okkar viti í smáatriðum, hvað okkur sé nauðsynlegast; hvers við krefjumst, bara til að geta gefið það eftir sem ódýra skiptimynt; hvað við erum samt sem áður tilbúin að gefa eftir ef nauðsyn krefur og hvað við erum tilbúin að láta viðræður stranda á, mætum við algjörri óbilgirni af hálfu gagnaðilans. Ýtrustu samningsmarkmið Íslands eiga auðvitað að vera, að Íslandi sé í sjálfsvald sett, hvað af reglum Evrópusambandsins það taki upp nú eða í framtíðinni, á öllum sviðum. Að sama skapi vitum við að slíkt fæst aldrei samþykkt, og þá hefjast tilslakanir, í einhverri mynd, á báða bóga. Við vitum að Evrópusambandinu er akkur af því að fá okkur í hópinn. Það verðum við að nýta okkur. Jafnframt er ljóst að hagsmunir Íslendinga eru eins misjafnir og þeir eru margir. Járnblendið hefur aðra hagsmuni en sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn aðra hagsmuni en flugfélögin og stóriðjan aðra hagsmuni en eigendur orkuveranna (sem eru aðallega þjóðin), svo nokkur dæmi séu nefnd. Hagsmunum hverra skal því fórna til að verja hagsmuni annarra? Við verðum því að treysta á að sá samningur, sem við fengjum að kjósa um í síðari atkvæðagreiðslunni, komi til þess að viðræður verði teknar upp og þeim ekki slitið, reynist eins góður fyrir þjóðfélagið í heild og mögulegt er. En til þess að svo megi verða, mega viðsemjendur okkar ekki vita hvar rauðu strikin okkar liggja. Þetta eiga allir, sem vilja telja sig málsmetandi, að skilja. En auðvitað eru ýmsir, af ýmsum misgóðum ástæðum, svo algjörlega andsnúnir aðild að Evrópusambandinu, í hvaða mynd sem er, að þeir vilja að mögulegur framlagður samningur verði sem verstur, í þeirri von að honum verði þá hafnað, eða að samningar náist ekki. Þetta ber að hafa í huga. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar