Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar 12. ágúst 2026 21:01 Ef reynt er af fremsta megni að setja í hlutlausan gír og rýna í umræðuna um títtnefnda þjóðaratkvæðagreiðslu í lok mánaðarins kemur einn samnefnari fylkinganna tveggja sífellt upp á yfirborðið: Við erum lítil þjóð. Önnur fylkingin segir að þess vegna sé nauðsynlegt fyrir okkur að eiga sæti við borðið þar sem þeir stóru ráða. Hin segir að þess vegna sé nauðsynlegt að gæta þess sérstaklega að láta ekki aðra ráða yfir okkur. Smæðin er þannig röksemd beggja fylkinga – en leiðir til þveröfugrar niðurstöðu. Þetta er eitt af því sem mér hefur þótt athyglisverðast við umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þá greiðum við ekki atkvæði um inngöngu Íslands í Evrópusambandið heldur hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður. Samt snýst umræðan að verulegu leyti um aðild og miklu stærri spurningu en svara þarf hér og nú: Hvað verður um fullveldi Íslands ef við göngum einhvern tíma í Evrópusambandið? Enginn veit hvort eða hvenær sá tími rennur upp að þjóðin þurfi að svara þeirri spurningu. Hins vegar er afar fróðlegt að skoða hversu ólíkan skilning fylkingarnar leggja í sjálft fullveldishugtakið. Hvað þýðir það í raun að vera fullvalda ríki? Í málflutningi þeirra sem vilja segja nei er eðlilega sótt til sögunnar. Saga Íslands síðustu tvær aldir er að stórum hluta saga þjóðar sem öðlaðist smám saman aukin yfirráð yfir eigin málum. Fyrst heimastjórn, þá fullveldi, loks lýðveldi og síðan fiskveiðilögsögu sem færð var út í nokkrum áföngum. Skrefin voru tekin í sömu átt: að fá meira vald heim. Frá þeim sjónarhóli er spurningin einföld: Hvers vegna ætti þjóð sem barðist svo lengi fyrir því að fá vald yfir eigin málum að gefa hluta þess frá sér aftur? Ekki verður um það deilt að aðild að Evrópusambandinu fæli í sér raunverulegt framsal eða deilingu valdheimilda. ESB fer með einkavald á ákveðnum sviðum, svo sem sameiginlegri viðskiptastefnu og verndun lífrænna auðlinda sjávar samkvæmt sameiginlegu fiskveiðistefnunni. Á öðrum sviðum deila sambandið og aðildarríkin valdheimildum. Andstæðingar aðildarviðræðna segja að þjóðin hafi öðlast forræði yfir eigin málum sem þurfi að varðveita. Síðasta orðið um íslensk málefni eigi að vera á Íslandi. Hjá þeim sem hlynntir eru viðræðum blasir við önnur sýn. Þar er spurt hvort fullveldi lítillar þjóðar í breyttum og samtvinnuðum heimi verði aðeins mælt í því hversu margar ákvarðanir hún getur tekið ein. Eða hvort ekki skipti líka máli hversu mikil áhrif hún hefur á þær ákvarðanir sem snerta hana? Ísland er þegar nátengt Evrópusambandinu í gegnum EES. Við tökum upp stóran hluta löggjafar innri markaðarins og getum haft áhrif á undirbúning hennar, en höfum lítil formleg áhrif þegar endanlegar ákvarðanir eru teknar innan stofnana ESB. Að baki býr sú hugsun að formlegt ákvörðunarvald sé lítils virði ef smáríkið hefur takmörkuð áhrif á þær ákvarðanir stærri ríkja og ríkjasambanda sem engu að síður móta umhverfi þess. Frá þessu sjónarhorni felst fullveldið ekki aðeins í réttinum til að standa utan við ákvörðunina heldur einnig í tækifærinu til að taka beinan þátt í henni. Utanríkismálin sýna ágætlega hversu ólík sjónarhornin eru. Því hefur verið haldið fram í umræðunni að með ESB-aðild tæki sambandið yfir utanríkisstefnu Íslands. Sú fullyrðing stenst ekki. Ísland myndi áfram reka eigin utanríkisþjónustu og móta eigin utanríkisstefnu. En aðild væri heldur ekki án skuldbindinga. Aðildarríkin eiga að styðja sameiginlega utanríkis- og öryggisstefnu sambandsins og forðast aðgerðir sem ganga gegn henni. Á móti kemur að meginreglan er sú að sameiginlegar ákvarðanir í utanríkis- og öryggismálum krefjast einróma samþykkis ríkjanna. Þetta er skólabókardæmi um ólíkan skilning á fullveldinu. Nei-fylkingin gæti sagt: Í dag ákveður Ísland utanríkisstefnuna sjálft. Hvers vegna eigum við að skuldbinda okkur til að samræma hana stefnu 26 annarra ríkja? Já-fylkingin gæti svarað: Sem eitt 27 ríkja sætum við sjálf við borðið og tækjum þátt í að móta sameiginlegu stefnuna – og hefðum í meginmálum vald til að segja nei. Þótt umræðan hafi farið í marga hringi og oft út um víðan völl kemur smæð þjóðarinnar þannig aftur og aftur fram sem sameiginleg forsenda. Önnur fylkingin gjaldir varhug við því að ákvörðunarvald lítillar þjóðar hverfi inn í miklu stærri heild – „báknið í Brussel“, svo gripið sé til orðfæris sem oft heyrist í þeirri umræðu. Hin sér aftur á móti í smæðinni ástæðu til þátttöku. Lítil þjóð þurfi einmitt að eiga sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar og geti með samstarfi og bandalögum komist til áhrifa langt umfram stærð sína. Þarna rekast á tvær ólíkar hugmyndir um fullveldi: annars vegar að halda sem mestu ákvörðunarvaldi heima og hins vegar að komast til áhrifa. Önnur spyr: Hversu mikil áhrif viljum við hafa á ákvarðanir sem hvort sem er snerta okkur. Hin spyr: Hversu miklu ákvörðunarvaldi viljum við halda heima? Ef til vill eru þetta raunverulegu spurningarnar um fullveldið sem þjóðin þarf að taka afstöðu til fyrir 29. ágúst. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun