Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar 12. ágúst 2026 16:30 Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að smáríki eins og Ísland eigi að reka að mestu leyti eins og fyrirtæki, en þó með áherslu á samfélagslega þjónustu eins og gott heilbrigðiskerfi, öfluga menntun og greiðar samgöngur. Ástæðan er einna helst sú að ríkið er lítið og viðkvæmt og það þarf að horfa í hverja krónu og gæta þess að skattfé sé skynsamlega og vel varið. Þar hef ég litið til hvernig mörg smáríki hafa tileinkað sér leið sem eflir verslun og viðskipti og gengið mjög vel vegna ákveðinnar sérstöðu. Það má svo alveg rökræða það hversu vel okkur hefur haldist á skattfénu og öruggt að við getum gert miklu betur í rekstri ríkisins. Báknið er orðið of stórt og vinnuaflið utan ríkisins á erfiðara og erfiðara með að afla ríkinu tekna til að borga laun ríkisstarfsmanna. En hvaða fullvalda ríki erum við að tala um, fyrir utan Vatíkanið? San Marínó: ~33.980 manns (landlukt innan Ítalíu) Mónakó: ~38.630 manns (frægt strandríki) Liechtenstein: ~40.450 manns (milli Sviss og Austurríkis) Andorra: ~81.940 manns (í Pýreneafjöllum) Ísland: ~394.324 manns (nafli alheimsins) Malta: ~568.850 manns (eyjaþjóð í Miðjarðarhafinu) Svartfjallaland: ~623.520 manns (í Suðaustur-Evrópu) Lúxemborg: ~677.010 manns (í Vestur-Evrópu) Svo eru Færeyjar sjálfstjórnarsvæði Konungsríkisins Danmörk, en ekki fullvalda ríki. Færeyjar: ~55.409 manns Þá er það næsta spurning; Hvers vegna hafa sum þessara ríkja EKKI gengið í ESB og hver er staða þeirra í dag? San Marínó - Samningar við þriðja aðila - Stofnanalegt vald; uppfyllir þarfir sínar í gegnum Ítalíu. Mónakó - Samningar við þriðja aðila - Strangt efnahagslegt fullveldi og skattastefna. Liechtenstein - Aðild að EES - Kýs sameiginlegan markað EES; verndar samband sitt við Sviss. Sviss er ekki í ESB. Andorra - Samningar við þriðja aðila - Stofnanalegt vald; ströng skatta- og viðskiptalíkön sem unnið er eftir. Ísland - Virk umsókn í dvala / Er í EES - Sögulegar deilur um fiskveiðikvóta og réttindi, sem og náttúrulegar auðlindir og orku. Svartfjallaland - Umsóknaraðili síðan 2008 - Er enn að ljúka nauðsynlegum lagalegum og réttarríkjaskrefum fyrir fulla aðild. Færeyjar - Sjálfstjórnarsvæði - Afþakkaði inngöngu gegnum Danmörku til að vernda staðbundnar fiskveiðar. (Munum að Færeyingar lánuðu okkur 6,5 milljarða í hruninu 2008, skilyrðislaust.) Flest smáríkin eru með aðgang að því sem mestu máli skiptir, án þess að þurfa að byggja upp stór skrifræðisembætti til að uppfylla og fylgjast með öllum lögum og reglugerðum Evrópusambandsins, og sjá sér einfaldlega ekki hag í því að fara þá leið og greinilegt að kostnaður smáríkja við að ganga í og vera í ESB er mikill. Það er líka mjög athyglisvert að Sviss er ekki í ESB. Hvers vegna ætli það sé? Sviss er ekki í Evrópusambandinu vegna einlægrar skuldbindingar sinnar við beint lýðræði og langvarandi pólitískt hlutleysi. Auk þess að það kýs tvíhliða viðskiptasamninga fremur en fulla pólitíska aðlögun, enda gæti afsal ákvarðanatöku til ESB sett slíka samninga og hagsmuni í hættu. Svissneska þjóðin hafnaði skýrt aðild að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1992 og seinna árið 2001 þegar 76% kjósenda felldi tillögu um að hefja aðildarviðræður við ESB. Samkvæmt kerfinu sem byggir á beinu lýðræði Sviss geta borgarar áfrýjað lögum með þjóðaratkvæðagreiðslum. Aðild að ESB myndi krefjast þess að samþykkja miðstýrð ESB-lög sem gætu hnekkt innlendum almennum atkvæðum, sem kjósendur eru ekki tilbúnir að samþykkja. Sviss hefur haldið strangri stefnu um hernaðarlegt og pólitískt hlutleysi frá árinu 1815, sem veldur hagsmunarárekstrum með aðild að pólitískt og sífellt meira öryggistengdu (hernaðar)bandalagi eins og ESB. Sem auðugt þjóðríki myndi aðild að ESB gera Sviss að nettógreiðanda (greiða meira en þau fá tilbaka) með framlagi til ESB en jafnframt þynna út pólitíska rödd þess og áhrif. Sviss stýrir sambandi sínu við ESB í gegnum flókið net yfir 120 tvíhliða samninga. Þessir samningar heimila Sviss að taka þátt í innri markaði ESB og Schengen-svæðinu án þess að afsala sér fullveldi sínu eða lagalegu sjálfstæði. Þegar maður skoðar hvernig smáríkin með sína sérstöðu annars vegar og Sviss hins vegar haga sínum málum þá virðast þau vera í ágætri stöðu án þess að vera í ESB. Þá veltir maður því fyrir sér hvort Ísland eigi að ganga í ESB ef það er ekki alveg örugglega gott fyrir Ísland, þó Ísland yrði nettógreiðandi, en 17 af 27 ríkjum ESB fá meira úr sambandinu en þau greiða inn í það. Ísland myndi greiða meira en það fær tilbaka. Hvað er að ráða för? Er það í raun og veru gott fyrir Ísland og skynsamlegt að ganga í ESB? Höfundur er flugstjóri og flugkennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthías Arngrímsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar