Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar 11. ágúst 2026 07:32 Við erum í dag flest komin aftur til starfa eftir íslenska sumarið, sem kom og fór, hvort sem að því var eytt við að dytta að heimilinu, spóka sig á sólarströnd eða við að bíða í röð eftir salerninu á fjarlægu íslensku tjaldsvæði þar sem að sást örlítið glitta til sólar. Við erum þó vonandi flest úthvíld og tilbúin að takast á við áskoranir næsta vetrar. En foreldrar barna á yngsta stigi grunnskóla eru ekki alveg laus úr viðjum sumarfrísins, því skólahald hefst ekki fyrr en eftir rúmar tvær vikur en þó erum við flest nú þegar farin aftur að sinna eðlilegri vinnuskyldu. Í Kópavogi hefur ekki verið boðið upp á samræmda sumarfrístund í grunnskólum bæjarins líkt og er gert í flestum öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Bærinn býður upp á nokkrar vikur í einum grunnskóla og nú í vor seldust allar vikurnar sem í boði voru upp á innan við klukkustund, slík var aðsóknin. Hér má og þarf að gera mun betur í þjónustu við foreldra barna á yngsta stigi grunnskóla og betur við börnin okkar sem þurfa einhvern samastað og tilgang á meðan foreldrarnir sinna sínum störfum. Samfylkingin hefur áður bent á að sumarið komi alltaf svolítið á óvart í Kópavogi. En í apríl hvert ár sitja foreldrar barna á yngsta stigi grunnskóla uppi með það að klóra sér í hausnum við að bóka hvert frístundanámskeiðið á fætur öðru, sum hjá íþróttafélögum og önnur hjá einkaaðilum. Allt með tilheyrandi kostnaði og það er alls ekki öruggt að námskeiðin fari fram í nærumhverfi barnanna heldur þarf oft að skutla börnunum hingað og þangað um höfuðborgarsvæðið til að allt gangi nú upp. Þegar fjölskyldan kemst loks í sumarfrí eru allir úrvinda. Íþrótta- og tómstundafélög í Kópavogi hafa boðið upp á fjölbreytt sumarnámskeið sem gegna mikilvægu hlutverki og eru víða hluti af fjáröflun félaganna. Slík námskeið geta þó ekki komið í stað samræmdrar frístundaþjónustu á vegum sveitarfélagsins. Börn hafa ólíkan áhuga, getu og þarfir og það sama hentar ekki öllum börnum. Mikilvægt er að fjölskyldur og börn hafi val. Við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi höfum nú sett saman tillögu sem að felur í sér að menntasviði Kópavogsbæjar verði falið að undirbúa samræmda sumaropnun frístundaheimila fyrir börn á yngsta stigi. Þessa tillögu flytjum við á næsta fundi bæjarstjórnar Kópavogs þann 25. ágúst næstkomandi. Mikilvægt er að hefja undirbúning strax svo að hægt sé að gera ráð fyrir þessu aukna þjónustustigi í fjárhagsáætlun 2027. Til að gera þetta á sem bestan hátt leggjum við til að þjónustukönnun verði lögð fyrir foreldra sem kemur til með að gefa góða mynd af því hvernig útfærsla þjónustunnar þarf að vera svo að hún nýtist fjölskyldum sem best, með tilliti til þátta eins og t.d. aldursdreifingar barna, staðsetningu, mönnun og opnunartíma. Markmiðið skal þó vera að bjóða upp á aukna þjónustu og fjölbreyttari valkosti í frístundamálum frá og með næsta sumri og létta þar með daglega lífið fyrir barnafjölskyldur í Kópavogi. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Samfylkingin Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar