Reglum um stigagjöf í badminton breytt Andri Broddason skrifar 7. ágúst 2026 14:31 Ný stigagjöf mun taka gildi í badminton á Íslandi núna í haust en alþjóðareglur breytast eftir áramót. Badmintonsamband Íslands Alþjóðabadmintonsambandið, BWF, hefur tekið ákvörðun um að breyta stigakerfinu í badminton. Í fyrra stigakerfi þurfti að vinna tvær lotur þar sem fyrsti leikmaður til að fá 21 stig vinnur lotuna en nú þarf aðeins að fá fimmtán stig til að vinna lotu.
Fyrr í ár kom BWF með tillögu að reglubreytingum þar sem hugmyndin var að stytta lotuna úr 21 stigi niður í fimmtán stig. Ástæðan fyrir þessu er margþætt og gerði Alþjóðabadmintonsambandið ýmsar rannsóknir með mismunandi stigakerfi en þar kom þetta kerfi best út. Reglurnar taka gildi á alþjóðavísu árið 2027 en aðildarríkjum er frjálst að taka upp reglurnar fyrr. Tímabilið á Íslandi hefst núna í haust og mun fyrsta mót tímabilsins nota nýja stigakerfið þar sem loturnar eru spilaðar upp í fimmtán. Í fyrra kerfi var leikhlé þegar leikmaður náði fyrst ellefu stigum en í nýja stigakerfinu verður hlé þegar leikmaður er kominn í átta stig. Í heildina voru þrjár stigagjafir skoðaðar: að halda þáverandi kerfi þar sem vinna þarf tvær lotur upp í 21 stig, nýja kerfið þar sem vinna þarf tvær lotur upp í fimmtán og að vinna þurfi þrjár lotur upp í ellefu. Fyrri breytingar Þetta eru ekki fyrstu stigabreytingarnar í badminton en í upprunalegu stigagjöfinni þurfti leikmaðurinn einnig að vinna tvær lotur upp í fimmtán. Þá gat maður þó aðeins fengið stig með því að eiga uppgjafaréttinn sem gerði það að verkum að leikirnir gátu verið mjög langir ef leikmenn skiptust á að vera með uppgjafarréttinn. Árið 2006 var tekið upp stigakerfi þar sem lotan var upp í 21 en ekki þurfti uppgjafarréttinn til þess að fá stig. Það kerfi hefur fengið að standa nú í 20 ár en það mun víkja fyrir nýja kerfinu um áramótin. Ákvörðunin um að breyta stigakerfinu er umdeild og hafa stjörnuleikmenn á borð við Lee Chong Wei gagnrýnt ákvörðunina. En þegar sambandsríki BWF kusu um stigabreytinguna voru yfir 80 prósent aðildarríkja sem kusu með breytingunum. Ísland fundaði með Norðurlöndunum þar sem tekin var ákvörðun hvort þau ætluðu að kjósa með eða á móti. Ákvörðunin var að kjósa með. Badmintonsamband Íslands opnaði fyrir umræður um stigabreytinguna á fésbókarsíðu sinni áður en kosið var. Þar voru ekki margir sem tjáðu sig en þeir sem gerðu það voru flestir á móti reglubreytingunum. Þrátt fyrir það fylgdi kosning Íslands hinum Norðurlöndunum og mun ný stigagjöf taka gildi í haust. Rökin fyrir breytingunum Rökin sem BWF færði fyrir reglubreytingunum eru ýmis en stærstu rökin voru að auka fjölda „spennandi“ stiga. Með styttri leikjum skiptir hvert stig meira máli og lotan fer fyrr í hæsta spennustigið sem er undir lok lotunnar. Þegar spilað var upp í 21 voru oft leikmenn sem þurftu að draga sig úr keppni ef þeir höfðu komist langt í mótinu á undan. Leikmennirnir voru enn að ná sér niður þegar næsta mót hafðist og þurftu að draga sig úr keppni. Með styttri leikjum verður líkamlegt álag leikmanna minna og því geta bestu leikmennirnir spilað á fleiri mótum og ferill leikmanna jafnvel orðið lengri. Þrátt fyrir að styttri leikur eigi að minnka líkamlegt álag þá hækkar álag á heila leikmanna og krefst leikurinn meiri einbeitingar. Einnig hjálpar þetta skipuleggjendum móta þar sem auðveldara er að gera ráð fyrir lengd leikja til að halda mótinu smurt gangandi. Í fyrra kerfi var algengt að mót væru á eftir áætlun vegna langra leikja sem ekki var búist við.
Badminton Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira