Upp­gjörið: Ís­land - Þýska­land 31-33 | Þjóð­verjar áttu alltaf svar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska liðið tapaði sínum fyrsta leik á EM í dag.
Íslenska liðið tapaði sínum fyrsta leik á EM í dag. hsí

Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri tapaði með tveggja marka mun fyrir Þýskalandi, 31-33, í átta liða úrslitum á EM í dag.

Ísland vann fyrstu fimm leiki sína á EM með samtals 52 marka mun en örlögin höguðu því þannig að andstæðingurinn í átta liða úrslitum var Þýskaland, eina liðið sem virðist geta unnið Ísland í þessum aldursflokki.

Þjóðverjar töpuðu báðum leikjum sínum í milliriðli en mættu einbeittir til leiks í dag, enginn meira en markvörðurinn Tjorven Knackstedt sem var besti maður vallarins ásamt vinstri skyttunni Julius Eisend. Knackstedt varði tuttugu skot (fjörutíu prósent) og Eisend skoraði níu mörk.

Eftir jafnar upphafsmínútur náðu Þjóðverjar forskoti og héldu því út leikinn. Bjarki Snorrason jafnaði í 4-4 á 6. mínútu en það var í síðasta sinn í leiknum sem staðan var jöfn.

Íslenska liðið var þó aldrei langt á eftir því þýska en komst aldrei á neitt skrið, nema seint í fyrri hálfleik. Ísland breytti þá stöðunni úr 7-11 í 10-11. Annars áttu Þjóðverjar alltaf svar auk þess sem Íslendingar gerðu sér erfitt fyrir með mistökum þegar þeir voru með smá vind í bakið.

Ómar Darri Sigurgeirsson minnkaði muninn í 15-16 undir lok fyrri hálfleiks. Skömmu síðar fékk Logi Finnsson rautt spjald eftir mikla reikistefnu.

Ísland minnkaði muninn í eitt mark, 20-21, snemma í seinni hálfleik en Þýskaland svaraði með 3-0 kafla. Íslendingar gerðu slíkt hið sama og minnkuðu muninn í 23-24. Þá skoraði Eisend, Ísland tapaði boltanum og Freyr Aronsson fékk síðan rautt spjald og Þýskaland skoraði úr vítinu sem dæmt var, 23-26.

Þjóðverjar áttu einfaldlega krók á móti öllum brögðum Íslendinga og héngu á forskotinu allt til loka.

Íslenska liðið reyndi en mistökin voru of mörg og andstæðingurinn of skynsamur og sterkur til að leikurinn snerist Íslendingum í vil. 

Gunnar Róbertsson minnkaði muninn í eitt mark, 31-32, en Malte Martin Elze kláraði dæmið fyrir Þjóðverja, 31-33, og þeir leika um verðlaun á EM. Íslendinga bíða leikir um sæti 5-8.

Freyr skoraði sex mörk fyrir Ísland og Bjarki og Ómar Darri sitt hvor fimm mörkin. Gunnar og Alex Unnar Hallgrímsson skoruðu báðir fjögur mörk. Markvarslan var stopul en þeir Anton Máni Francisco Heldersson og Sigurmundur Gísli Unnarsson vörðu samtals þrettán skot í íslenska markinu. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira