Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar 23. júlí 2026 16:31 Mikil umræða hefur farið fram um skýr svör hollenska forsætisráðherrans Rob Jettens í hollenska þinginu þar sem hann tók af öll tvímæli um að Ísland þyrfti, eins og önnur ríki sem vilja verða aðilar að ESB, að undirgangast sameiginlega stefnu sambandsins í sjávarútvegsmálum. View this post on Instagram A post shared by Guðlaugur Þór Þórðarson (@gudlaugurthor) Sambærilegt afdráttarlaust svar kom frá ráðherrum í danska þinginu. Það þýðir einfaldlega að forræði yfir málaflokknum myndi flytjast frá Íslandi til Brussel eins í öllum sameiginlegum málaflokkum ESB. Þetta ættu allir að vita sem á annað borð vilja kynna sér málin og hefur fram til þessa ekki verið neitt leyndarmál. Samanber að allir sem vilja vita að þegar Jóhönnustjórnin sótti um aðild að ESB voru samningskaflarnir 35. 27 af þeim voru opnaðir og 11 var lokað til bráðabirgða en ekki var opnað á 8 kafla. Hver samningskafli tók yfir ákveðið málefnasvið í regluverki og stefnum ESB. Sjávarútvegskaflinn tók þannig yfir regluverk sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar. View this post on Instagram A post shared by Guðlaugur Þór Þórðarson (@gudlaugurthor) Utanríkisráðherra brást ókvæða við fréttum af svörum hollenska forsætisráðherrans og þann 9. júlí mótmælti hún orðum hans. Af þeim fréttum mátti ráða að forsætisráðherra Hollands hefði sagt eitthvað allt annað við hana, en heilum 11 dögum seinna - eftir mikla umræðu í þjóðfélaginu - hélt hún því fram að rangt hefði verið eftir henni haft. Gott og vel við skulum trúa ráðherranum en það er í meira lagi sérstakt að ráðherra leiðrétti ekki fréttina fyrr en löngu seinna af mörgum ástæðum, ekki síst vegna þess að það stendur í siðareglum ráðherra að ; ,, Ráðherra hefur frumkvæði að því að leiðrétta, eins fljótt og auðið er, rangar eða villandi upplýsingar, sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra. „ Þetta kemur fram í Handbók um siðareglur ráðherra, sem gefin var út af forsætisráðuneytinu 2024, sjá síðu 31 og 32: Handbók um siðareglur ráðherra. Þar segir raunar líka: ,,Ráðherra viðhefur gagnsæi um störf sín og ráðuneytis síns. b. Ráðherra leggur sig fram um að gera upplýsingar aðgengilegar í samræmi við lög og almenn viðmið og hefur frumkvæði að birtingu upplýsinga sem eru í almannaþágu. Hann beitir sér fyrir því að upplýsingum sé miðlað af nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti.“ Þá komum við að kjarna máls. Ráðherra segir í leiðréttri frétt; ,,Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega.“ Það er að segja að Ísland verði að verða aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni! Ráðherra verður að svara þeirri einöldu spurningu verðum við að aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni eða ekki? Formaður utanríkismálanefndar Pawel Bartozek og Dagbjört Hákonardóttir hafa viðurkennt það en ekki ráðherrann. Er ráðherrann að halda því fram að kollegar eða einhverjir Hollendingar (Hollendingar eru 18,1 milljón.) hafi lofað því að við værum ekki aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Er ríkisstjórnin/ráðherra telur að við verðum ekki aðilar að sameiginlegu stefnunni þá á þjóðin á rétt á að vita; hvort að það var gert, hverjir lofuðu, og í hvaða umboði. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og fyrrverandi utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar