Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Sigurgeir Þorkelsson skrifar 23. júlí 2026 11:19 Númerið einn, einn, tveir þekkja allir landsmenn. Vísir/Vilhelm Neyðarlínan hefur kynnt varanúmerið 599-0112 ef ekki næst í 112. Vakin er athygli á því í tilkynningu að símtöl í þetta númer séu höndluð sem almenn símtöl og njóti ekki sama forgangs og ef hringt sé beint í 112. Því sé mikilvægt að hringja enn fyrst í 112.
Borið hefur á því í kjölfar lokunar eldri símkerfa að símar keyptir erlendis og eldri símar hafi átt í erfiðleikum með að ná sambandi við neyðarnúmerið 112. Erfiðleikar hafa til dæmis birst í því að fólk hafi ekki geta tengst 112, símtöl hafi ekki náð í gegn, hljóðgæði séu slök, truflanir séu á símtölum eða þau rofni óvænt. Í tilkynningu er tekið fram að Ísland sé fyrsta Evrópuríkið til að leggja niður eldri 2G og 3G símkerfi. Tekið er fram að Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og íslensk farsímafyrirtæki vinni sameiginlega að því að greina orsök vandans og finna lausnir eins fljótt og kostur er. Mikilvægt er að athuga að varanúmerið er aðeins ætlað til notkunar þegar ekki næst samband við 112. Neyðarlínan bendir á 112 appið og vefspjall á vefnum 112.is sem leiðir til að hafa beint samband þar sem einnig komi fram mikilvægar staðsetningasrupplýsingar. Þá geti þessar samskiptaleiðir einnig hjálpað ef tungumálaörðugleikar eru til staðar með þýðingartólum. Einnig bjóði báðar þessar leiðir upp á að senda myndir sem geti reynst gagnlegt. Neyðarlínan brýnir fyrir fólki að prófa ekki símann með að hringja í 112. Slík símtöl geti aukið álag á neyðarvaktir og tafið þjónustu við fólk í raunverulegri neyð. Neyðarlínan hvetur almenning til að vista númerið 599-0112 í farsíma sínum sem varaleið til að hafa samband við Neyðarlínuna. Uppfært 13:25 með hvatningu um að almenningur visti númerið í símann sinn.
Almannavarnir Slökkvilið Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Fleiri fréttir Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Sjá meira