„La La Höndin“ úr sögunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. júlí 2026 11:18 Ryan Gosling lék í myndinni Project Hail Mary sem kom út fyrr á þessu ári. EPA Í tilefni tíu ára útgáfuafmælis kvikmyndarinnar La La Land hefur plakati myndarinnar loks verið breytt. Ryan Gosling, einn aðalleikari myndarinnar, segist hafa haldið að hann væri töff.
Í desember verða komin tíu ár frá því að La La Land var fyrst sýnd í kvikmyndahúsum víða um heim. Myndin hlaut töluverða athygli, sér í lagi þegar hún var ranglega tilkynnt sem Besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni þegar Moonlight vann í raun. Þrátt fyrir það hlaut kvikmyndin sex Óskarsverðlaun og sjö Golden Globe-verðlaun. Emma Stone og Ryan Gosling fóru með aðalhlutverk í myndinni. Gosling hefur ítrekað rætt myndina í fjölda viðtala og þar á meðal um hina umræddu La La Hendi (e. La La Hand) á plakati myndarinnar. „Ég vissi ekki að þetta yrði plakatið fyrir myndina. Við áttum að hafa hendurnar okkar beint upp og ég hélt að það væri töff að hafa höndina flata jafnvel þótt allir segðu mér að það væri ekki töff. Ég var viss um að þetta væri flottara,“ sagði Gosling í viðtali við the Wall Street Journal árið 2024. „Ég kalla þetta La La Höndina.“ Lionsgate virðast hafa heyrt bón Goslings og birtu uppfært plakat á Instagram-síðunni sinni þar sem búið er að rétta úr hendi Goslings. Hér má sjá gamla og nýja plakatið hlið við hlið.Samsett/Lionsgate „Í gegnum árin hefur Ryan Gosling oftar en einu sinni bent á það að hann myndi vilja laga La La Höndina á upprunalega plakatinu. Jæja Ryan, við höfum heyrt bænir þínar. Lionsgate er ánægt með að tilkynna að uppfærð útgáfa af plakatinu sé nú í boði,“ segir í tilkynningu frá Lionsgate sem Euronews greinir frá.
Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira