Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Birgir Olgeirsson skrifar 21. júlí 2026 21:00 Juan Bautista Pérez Puig aðmíráll stjórnar CTF-Atlantic. Hann hóf ferilinn í kalda stríðinu og segir heiminn nú aftur orðinn flóknari. Ívar Þrjú spænsk herskip eru við Reykjavík vegna eftirlits- og viðbragðsverkefnis NATO á Norður-Atlantshafi. Tvö kanadísk herskip eru á leið til landsins og fyrirhuguð er sameiginleg æfing í vikunni þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar.
Castilla og freigátan Blas de Lezo liggja við bryggju í Sundahöfn en Juan Carlos I er úti á Faxaflóa. Juan Carlos I er stærsta herskip spænska flotans. Skipið er með flugþilfari og getur flutt og gert út herþotur og þyrlur, auk landgönguliða, farartækja og annars hergagnabúnaðar. Þrettán skip undir stjórn aðmírálsins Skipin tilheyra CTF-Atlantic, fjölþjóðlegum flota Atlantshafsbandalagsins. Juan Bautista Pérez Puig aðmíráll stjórnar verkefninu frá Castilla. Undir hans stjórn eru fimm spænsk skip og átta skip annarra bandalagsríkja. Skipin eru dreifð um Norður-Atlantshafið og eru því ekki öll við Ísland. CTF-Atlantic er ætlað að halda uppi eftirliti, fælingarmætti og viðbragðsgetu á hafsvæðinu. Þar eru mikilvægar siglingaleiðir milli Norður-Ameríku og Evrópu, auk sæstrengja og orkuinnviða. Pérez Puig segir flotann ekki vera að leita að einni afmarkaðri hættu. „Við erum ekki að horfa sérstaklega til einnar tiltekinnar ógnar. Stefna NATO skilgreinir tvær ógnir: Rússneska sambandsríkið og alþjóðleg hryðjuverkasamtök,“ segir hann. Heimurinn orðinn flóknari á ný Spænski flotinn tók við stjórn CTF-Atlantic í byrjun júlí og fer með hana fram á næsta sumar. Pérez Puig setur breytingarnar í alþjóðlegum öryggismálum í samhengi við eigin starfsferil. „Það er rétt að staða heimsmála er flókin í dag. Við höfum séð betri tíma en höfum aðlagast í hvert sinn. Þegar ég gekk í sjóherinn voru Sovétríkin enn til og kalda stríðið stóð yfir. Það breyttist og ástandið batnaði, en nú er staðan aftur að verða flóknari,“ segir Pérez Puig. Hann segir NATO hafa sýnt í gegnum tíðina að bandalagið geti lagað skipulag sitt að breyttum aðstæðum. Hann telji nýtt svæðisskipulag bandalagsins og aukinn viðbúnað ríkjanna eiga eftir að bæta öryggi á Atlantshafi. Tvenn kanadísk skip á leiðinni Spænsku skipin hafa undanfarnar vikur starfað við austurströnd Bandaríkjanna og Kanada og á hafsvæðinu við Grænland. Frá Íslandi liggur leiðin áfram í átt að Bretlandi og Noregi. Tvenn kanadísk herskip eru nú einnig á leið til Íslands. Hluti skipanna mun taka þátt í æfingu þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar. Pérez Puig segir legu Íslands gera landið mikilvægt fyrir verkefnið. „Ísland er stofnríki Atlantshafsbandalagsins og hefur alltaf lagt sitt af mörkum til öryggis á þessum hafsvæðum. Ísland er í miðju svæðisins, milli Grænlands og Noregs. Mikilvægt er að halda svæðinu öruggu og bæta yfirsýn okkar. Þess vegna erum við hér, til að aðstoða Ísland,“ segir hann. Hreifst af Íslandi sem ungur foringi Áhafnir skipanna og herlið fá landgönguleyfi meðan á heimsókninni stendur og þegar hefur sést til spænskra skipverja á ferli í miðborg Reykjavíkur. Mannskapurinn telur á þriðja þúsund manns. Aðmírállinn er sjálfur að snúa aftur á kunnuglegar slóðir. „Þetta er ekki fyrsta heimsókn mín til Íslands. Ég kom hingað til Reykjavíkur í upphafi tíunda áratugarins sem mjög ungur foringi í spænska sjóhernum og hreifst af landinu,“ segir Pérez Puig. Hann segist nú vilja nota tækifærið til að kynnast Íslandi, landslaginu og landinu öllu betur.
NATO Öryggis- og varnarmál Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira