Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Jón Þór Stefánsson skrifar 16. júlí 2026 14:57 Siggi í Lundúnum árið 2022. Skjáskot Sigurður Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, var í dag dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjöldamörg brot, aðallega skjalafals og fjársvik, en einnig vopnalagabrot. Heildarandlag brotanna var hátt í þrjátíu milljónir króna, en þau framdi Sigurður á árunum 2019 til 2021. Hann játaði sök. Líkt og áður segir er um mikinn fjölda brota að ræða. Dómurinn er 23 blaðsíður og þar af eru sautján síður sem fara í að lýsa brotum hans í ákæru. Brotin snúast að miklu leyti um að Sigurður hafi pantað vörur hjá ýmsum fyrirtækjum, oft upp á hundruði þúsunda, eða milljónir, án þess að greiða fyrir þjónustuna. Í mörgum tilfellum kynnti hann sig sem framkvæmdastjóra ótilgreindra fyrirtækja, fór fram á viðskipti, lagði fram pantanir sem voru síðan afhentar honum án greiðslu. Stundum framvísaði hann fölskum ársreikningum eða skjölum til þess að framkvæma verk þessi. Þá var hann ákærður fyrir að afhenda Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra fölsuð gögn um einkahlutafélög, til að mynda um afsagnir endurskoðenda. Tískuvörur, áfengi og hnífar Líkt og áður segir var Sigurður líka dæmdur fyrir vopnalagabrot. En hann hafði í vörslum sínum sex piparúða, tvær útdraganlegar kylfur og eina rafstuðbyssu. Þá var farið fram á og samþykkt af héraðsdómi að Sigurður myndi sæta upptöku á ýmsum munum, sem gera má ráð fyrir að séu vörurnar sem hann sveik út. Þar má nefna hnífa, dýrt viskí og áfengi, ýmis lúxusúr, lampa, stór sjónvörp og aðrar græjur, dróna, og ýmsan klæðnað frá dýrum tískuvörumerkjum. Upptalningu þessara muna úr dómnum má sjá hér að neðan: Ákærði sæti upptöku á þremur hnífum í kassa, hnífatösku og hnífum, tveimur vínfötum og standi, tveimur rose gold Bourgie lömpum, Cino professional kaffivél, LG sjónvarpi (77 tommu), Aarke sodastream tæki, Fuzzy kolli, Sonos kassa, tveimur Sonos hljóðstöngum, hníf í kassa merktum Funktion, Apple TV, Chivas Regal 15 ára vískíflösku, Glenfarclas viskíflösku 25 ára, The Macallan Rare Cask viskíflösku, flösku af Glenfiddich Single Malt 18 ára, flösku af Glenfiddich Single Malt 26 ára, flösku af The Dalmore King Alexander III, flösku af The Macallan 12 ára, flösku af Chivas Regal, fimm Rolex úrum (vantar á ól), einu Patek philippe/geneve úri, einu Orient úri og Ivy n Rox úri, AP Pignette úri, Bose hljóðkerfi með fjórum hlutum, tveimur Nest Hub Google vekjaraklukkum, Mii hleðsludokku, tveimur gold Bourgie lömpum, Apple TV ásamt fjarstýringu og tveimur snúrum, LG sjónvarpi (55 tommu), tveimur iPhone 12 í óopnuðum umbúðum, Lenovo tabM10 spjaldtölvu, fjórum Sonos hátölurum, tveimur Bose hátölurum, lyklakippu með 9 lyklum og 3 aðgangshnöppum, dróna af gerðinni DJI ásamt fjarstýringu, pappírum, poka og handfangi, fjórum blekhylkjum, tveimur Dom Perignon flöskum, einni Belluga Vodka flösku, einni Diamond Vodka flösku, kassa af Chateau Batailley (6x750ml), einni flösku af Louis XIII, einni skóburstunarvél, tveimur samlokugrillum, tveimur 66° Norður Þórsmörk úlpum, Bugatti ullarfrakka, Hugo Boss sportjakka, Finucci ullarfrakka, Burberry leðurjakka, Hugo Boss vesti, jakka merktum Landsbjörg, gráum Polo Ralph Lauren jakka, Polo Ralph Lauren vesti, Polo Ralph Lauren dökkbláum jakka, Polo Ralph Lauren dúnúlpu, 66° Norður Jökla parka úlpu, 66° Norður flísvesti, BOSS vesti, The North Face vesti, BOSS strigaskóm, Louis Vuitton spariskóm, Louis Vuitton bláum spariskóm, Louis Vuitton brúnum götuskóm, Hugo Boss leðurstrigaskóm, Prada strigaskóm, Louis Vuitton strigaskóm og Garmin Aviator úr ásamt kassa og hleðslusnúru. Umfangsmikið og skipulagt Líkt og áður segir játaði Sigurður sök. Fyrir hönd hans var þess kafist að hann myndi fá vægustu refsingu sem lög leyfa. Þá samþykkti hann bótakröfur frá fyrirtækjum sem hann sveik. Brot Sigurðar þóttu sönnuð með játningu hans og með vísan til gagna málsins. Við ákvörðun refsingar var litið til játningar hans annars vegar, en hins vegar til þess hve umfangsmikil brotin voru og skipulögð. Einnig var litið til langs sakarferils Sigurðar. Þá var mat dómsins að of mikill dráttur hafi orðið á meðferð málsins, og ekkert bendi til þess að hægt sé að kenna Sigurði um það. Ásamt upptöku munanna er Sigurði gert að greiða sex mismunandi fyrirtækjum 6,9 milljónir króna vegna málsins. Þrjú fyrirtæki sem höfðu sett fram bótakröfur vegna málsins sóttu ekki dómþing og var kröfum þeirra því vísað frá dómi. Auk þess þarf Sigurður að greiða 4,2 milljónir í sakarkostnað. Langur sakaferill að baki Sigurður hefur á síðustu árum hlotið fjölda refsidóma fyrir ýmis brot. Þar má bæði nefna kynferðisbrot gegn fjölda drengja og önnur fjársvikamál. Þá varð hann sérlega frægur fyrir ströf sín í kringum WikiLeaks þegar hann var enn bara unglingur. Í hitteðfyrra var þónokkuð fjallað um heimildarþættina Hættulegur strákur sem fjölluðu um Sigurð og voru nokkuð umdeildir. Mál Sigga hakkara Dómsmál Efnahagsbrot Tengdar fréttir Óska eftir rannsókn á fundum Sigga hakkara og FBI Samtökin Wikileaks hafa krafist þess að dönsk yfirvöld rannsaki hvort lög hafi verið brotin þegar FBI fundaði með Sigurði Þórðarsyni í Danmörku. 13. júlí 2014 11:15 Wired fjallar um Sigga hakkara Tímaritið vildi fá ljósmynd frá íslenskum ljósmyndara en vildu hins vegar ekki greiða fyrir hana. 30. desember 2014 11:22 Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Heildarandlag brotanna var hátt í þrjátíu milljónir króna, en þau framdi Sigurður á árunum 2019 til 2021. Hann játaði sök. Líkt og áður segir er um mikinn fjölda brota að ræða. Dómurinn er 23 blaðsíður og þar af eru sautján síður sem fara í að lýsa brotum hans í ákæru. Brotin snúast að miklu leyti um að Sigurður hafi pantað vörur hjá ýmsum fyrirtækjum, oft upp á hundruði þúsunda, eða milljónir, án þess að greiða fyrir þjónustuna. Í mörgum tilfellum kynnti hann sig sem framkvæmdastjóra ótilgreindra fyrirtækja, fór fram á viðskipti, lagði fram pantanir sem voru síðan afhentar honum án greiðslu. Stundum framvísaði hann fölskum ársreikningum eða skjölum til þess að framkvæma verk þessi. Þá var hann ákærður fyrir að afhenda Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra fölsuð gögn um einkahlutafélög, til að mynda um afsagnir endurskoðenda. Tískuvörur, áfengi og hnífar Líkt og áður segir var Sigurður líka dæmdur fyrir vopnalagabrot. En hann hafði í vörslum sínum sex piparúða, tvær útdraganlegar kylfur og eina rafstuðbyssu. Þá var farið fram á og samþykkt af héraðsdómi að Sigurður myndi sæta upptöku á ýmsum munum, sem gera má ráð fyrir að séu vörurnar sem hann sveik út. Þar má nefna hnífa, dýrt viskí og áfengi, ýmis lúxusúr, lampa, stór sjónvörp og aðrar græjur, dróna, og ýmsan klæðnað frá dýrum tískuvörumerkjum. Upptalningu þessara muna úr dómnum má sjá hér að neðan: Ákærði sæti upptöku á þremur hnífum í kassa, hnífatösku og hnífum, tveimur vínfötum og standi, tveimur rose gold Bourgie lömpum, Cino professional kaffivél, LG sjónvarpi (77 tommu), Aarke sodastream tæki, Fuzzy kolli, Sonos kassa, tveimur Sonos hljóðstöngum, hníf í kassa merktum Funktion, Apple TV, Chivas Regal 15 ára vískíflösku, Glenfarclas viskíflösku 25 ára, The Macallan Rare Cask viskíflösku, flösku af Glenfiddich Single Malt 18 ára, flösku af Glenfiddich Single Malt 26 ára, flösku af The Dalmore King Alexander III, flösku af The Macallan 12 ára, flösku af Chivas Regal, fimm Rolex úrum (vantar á ól), einu Patek philippe/geneve úri, einu Orient úri og Ivy n Rox úri, AP Pignette úri, Bose hljóðkerfi með fjórum hlutum, tveimur Nest Hub Google vekjaraklukkum, Mii hleðsludokku, tveimur gold Bourgie lömpum, Apple TV ásamt fjarstýringu og tveimur snúrum, LG sjónvarpi (55 tommu), tveimur iPhone 12 í óopnuðum umbúðum, Lenovo tabM10 spjaldtölvu, fjórum Sonos hátölurum, tveimur Bose hátölurum, lyklakippu með 9 lyklum og 3 aðgangshnöppum, dróna af gerðinni DJI ásamt fjarstýringu, pappírum, poka og handfangi, fjórum blekhylkjum, tveimur Dom Perignon flöskum, einni Belluga Vodka flösku, einni Diamond Vodka flösku, kassa af Chateau Batailley (6x750ml), einni flösku af Louis XIII, einni skóburstunarvél, tveimur samlokugrillum, tveimur 66° Norður Þórsmörk úlpum, Bugatti ullarfrakka, Hugo Boss sportjakka, Finucci ullarfrakka, Burberry leðurjakka, Hugo Boss vesti, jakka merktum Landsbjörg, gráum Polo Ralph Lauren jakka, Polo Ralph Lauren vesti, Polo Ralph Lauren dökkbláum jakka, Polo Ralph Lauren dúnúlpu, 66° Norður Jökla parka úlpu, 66° Norður flísvesti, BOSS vesti, The North Face vesti, BOSS strigaskóm, Louis Vuitton spariskóm, Louis Vuitton bláum spariskóm, Louis Vuitton brúnum götuskóm, Hugo Boss leðurstrigaskóm, Prada strigaskóm, Louis Vuitton strigaskóm og Garmin Aviator úr ásamt kassa og hleðslusnúru. Umfangsmikið og skipulagt Líkt og áður segir játaði Sigurður sök. Fyrir hönd hans var þess kafist að hann myndi fá vægustu refsingu sem lög leyfa. Þá samþykkti hann bótakröfur frá fyrirtækjum sem hann sveik. Brot Sigurðar þóttu sönnuð með játningu hans og með vísan til gagna málsins. Við ákvörðun refsingar var litið til játningar hans annars vegar, en hins vegar til þess hve umfangsmikil brotin voru og skipulögð. Einnig var litið til langs sakarferils Sigurðar. Þá var mat dómsins að of mikill dráttur hafi orðið á meðferð málsins, og ekkert bendi til þess að hægt sé að kenna Sigurði um það. Ásamt upptöku munanna er Sigurði gert að greiða sex mismunandi fyrirtækjum 6,9 milljónir króna vegna málsins. Þrjú fyrirtæki sem höfðu sett fram bótakröfur vegna málsins sóttu ekki dómþing og var kröfum þeirra því vísað frá dómi. Auk þess þarf Sigurður að greiða 4,2 milljónir í sakarkostnað. Langur sakaferill að baki Sigurður hefur á síðustu árum hlotið fjölda refsidóma fyrir ýmis brot. Þar má bæði nefna kynferðisbrot gegn fjölda drengja og önnur fjársvikamál. Þá varð hann sérlega frægur fyrir ströf sín í kringum WikiLeaks þegar hann var enn bara unglingur. Í hitteðfyrra var þónokkuð fjallað um heimildarþættina Hættulegur strákur sem fjölluðu um Sigurð og voru nokkuð umdeildir.
Ákærði sæti upptöku á þremur hnífum í kassa, hnífatösku og hnífum, tveimur vínfötum og standi, tveimur rose gold Bourgie lömpum, Cino professional kaffivél, LG sjónvarpi (77 tommu), Aarke sodastream tæki, Fuzzy kolli, Sonos kassa, tveimur Sonos hljóðstöngum, hníf í kassa merktum Funktion, Apple TV, Chivas Regal 15 ára vískíflösku, Glenfarclas viskíflösku 25 ára, The Macallan Rare Cask viskíflösku, flösku af Glenfiddich Single Malt 18 ára, flösku af Glenfiddich Single Malt 26 ára, flösku af The Dalmore King Alexander III, flösku af The Macallan 12 ára, flösku af Chivas Regal, fimm Rolex úrum (vantar á ól), einu Patek philippe/geneve úri, einu Orient úri og Ivy n Rox úri, AP Pignette úri, Bose hljóðkerfi með fjórum hlutum, tveimur Nest Hub Google vekjaraklukkum, Mii hleðsludokku, tveimur gold Bourgie lömpum, Apple TV ásamt fjarstýringu og tveimur snúrum, LG sjónvarpi (55 tommu), tveimur iPhone 12 í óopnuðum umbúðum, Lenovo tabM10 spjaldtölvu, fjórum Sonos hátölurum, tveimur Bose hátölurum, lyklakippu með 9 lyklum og 3 aðgangshnöppum, dróna af gerðinni DJI ásamt fjarstýringu, pappírum, poka og handfangi, fjórum blekhylkjum, tveimur Dom Perignon flöskum, einni Belluga Vodka flösku, einni Diamond Vodka flösku, kassa af Chateau Batailley (6x750ml), einni flösku af Louis XIII, einni skóburstunarvél, tveimur samlokugrillum, tveimur 66° Norður Þórsmörk úlpum, Bugatti ullarfrakka, Hugo Boss sportjakka, Finucci ullarfrakka, Burberry leðurjakka, Hugo Boss vesti, jakka merktum Landsbjörg, gráum Polo Ralph Lauren jakka, Polo Ralph Lauren vesti, Polo Ralph Lauren dökkbláum jakka, Polo Ralph Lauren dúnúlpu, 66° Norður Jökla parka úlpu, 66° Norður flísvesti, BOSS vesti, The North Face vesti, BOSS strigaskóm, Louis Vuitton spariskóm, Louis Vuitton bláum spariskóm, Louis Vuitton brúnum götuskóm, Hugo Boss leðurstrigaskóm, Prada strigaskóm, Louis Vuitton strigaskóm og Garmin Aviator úr ásamt kassa og hleðslusnúru.
Mál Sigga hakkara Dómsmál Efnahagsbrot Tengdar fréttir Óska eftir rannsókn á fundum Sigga hakkara og FBI Samtökin Wikileaks hafa krafist þess að dönsk yfirvöld rannsaki hvort lög hafi verið brotin þegar FBI fundaði með Sigurði Þórðarsyni í Danmörku. 13. júlí 2014 11:15 Wired fjallar um Sigga hakkara Tímaritið vildi fá ljósmynd frá íslenskum ljósmyndara en vildu hins vegar ekki greiða fyrir hana. 30. desember 2014 11:22 Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Óska eftir rannsókn á fundum Sigga hakkara og FBI Samtökin Wikileaks hafa krafist þess að dönsk yfirvöld rannsaki hvort lög hafi verið brotin þegar FBI fundaði með Sigurði Þórðarsyni í Danmörku. 13. júlí 2014 11:15
Wired fjallar um Sigga hakkara Tímaritið vildi fá ljósmynd frá íslenskum ljósmyndara en vildu hins vegar ekki greiða fyrir hana. 30. desember 2014 11:22
Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38