Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Sunna Sæmundsdóttir skrifar 13. júlí 2026 12:01 Runólfur Ólafsson er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Vísir Olíuverð hækkaði skarpt í morgun í skugga vaxandi spennu í Miðausturlöndum. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda hefur áhyggjur af þróuninni og höfðar til ábyrgðar olíufélaga. Íslenskir neytendur séu nú þegar að greiða óeðlilega hátt verð fyrir bensínlítrann.
Engin skipaumferð hefur verið um Hormússund síðan í gærkvöldi en Bandaríkjaher gerði í nótt árásir á skotmörk í Íran og segja þær svar við árásum Írana á flutningaskip. Eftir lækkanir í kjölfar samkomulags um vopnahlé hefur heimsmarkaðsverð á olíu hækkað á ný í ljósi stöðunnar og verð á Brent-hráolíu hækkaði til að mynda um 4,5 prósentustig í morgun. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda segir þetta áhyggjuefni. „Þetta er auðvitað ömurleg þróun og eitthvað sem við höfum því miður enga stjórn á.“ Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar á ný.Vísir/Vilhelm Haldi verð áfram að hækka telur Runólfur telur þó að íslensku olíufélögin hafi svigrúm til þess að halda aftur af hækkunum til neytenda. Það komi til að mynda bersýnilega í ljós í nýlegu skjali Samkeppniseftirlitsins um eldsneytismarkaðinn þar sem fram kemur að álagning hafi á síðustu árum verið há í sögulegu samhengi og að verðmnur í samanburði við önnur Evrópuríki hafi aukist markvert. „Það er bara greinilegt í þeim tölum sem eru fyrirliggjandi að íslenskir neytendur eru að borga hærra verð en eðlilegt væri miðað við það sem við sjáum í nágrannalöndum,“ segir Runólfur. „Auðvitað eru skattar mismunandi í hverju landi fyrir sig en álagning er hluti af verðmyndun og hér erum við að horfa upp á það að álagning á bensíni hefur verið að stighækka allt frá covid-tímanum og hefur það sem af er ári verið í hæstu hæðum. Það finnst manni skjóta skökku við í ljósi þess að það er allavega einhver viðleitni hjá öðrum í samfélaginu til þess að halda verðlagi innan eðlilegra marka svo ekki sé verið að bæta á verðbólgubálið. Og ég bara ákalla þessi fyrirtæki um að sýna meiri sanngirni.“ Þá telur hann eðlilegt að stjórnvöld skoði það að framlengja tímabundna lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti. „Það á að renna út í lok næsta mánaðar þannig það þarf bara að skoða hvernig ástandið verður og hvaða áhrif það hefur á heimsmarkaðsverð.“
Bensín og olía Neytendur Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira