Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar 12. júlí 2026 18:30 Endómetríósa hefur áhrif á um eina af hverjum tíu konum. Frumur sem líkjast frumum frá legslímhúð taka sér bólfestu á röngum stað og valda þar bólgusvari og örvefsmyndun. Sjúkdómurinn getur valdið miklum verkjum, ófrjósemi og vinnutapi, en þrátt fyrir það getur greining og viðeigandi meðferð tafist um fjölda ára. Um er að ræða ungar stúlkur sem missa af skóla, konur sem neyðast til að draga úr þátttöku í starfi og líf sem smám saman þrengist vegna sársauka sem aðrir sjá ekki. Það greinist líka endómetríósa hjá allt að helmingi kvenna sem glíma við ófrjósemi. Meðferð við endómetríósu er oftast hormónameðferð til að halda niðri einkennum sjúkdómsins. Hluti kvenna þarf samt á aðgerð að halda, þar sem sjúkdómurinn er fjarlægður. Aðgerðir við endómetríósu hafa verið gerðar á Klíníkinni síðastliðin 5 ár. Við gerðum gæðakönnun meðal sjúklinga sem fóru í aðgerð hjá okkur árið 2025 og þar kom ýmislegt áhugavert í ljós. Flestir þátttakendur sögðu að versti sársauki þeirra hefði minnkað verulega — hjá mörgum nánast um helming — og langflestir töldu einkenni sín vera betri eða mun betri. Áhrif á fjarvistir voru ekki síður athyglisverð. Fyrir aðgerð var miðgildi fjarvista frá vinnu og/eða skóla fimm dagar á fjögurra vikna fresti en eftir aðgerð enginn. Umreiknað á heilt ár (13 fjögurra-vikna tímabil) svarar það til miðgildisfækkunar um 58 vinnudaga hjá hverjum sjúklingi — eða nærri þriggja vinnumánaða, sé miðað við um 22 vinnudaga í mánuði. Ánægja með meðferðina var jafnframt mjög mikil. Þessar niðurstöður hafa skýrar takmarkanir. Þetta var gæðakönnun þar sem sjúklingar mátu eigin árangur, en ekki slembirannsókn með samanburðarhópi. Um helmingur þeirra sem fengu könnunina svaraði henni og þátttakendur voru jafnframt beðnir um að rifja upp hvernig þeim hefði liðið fyrir aðgerð, sem getur haft áhrif á samanburðinn. Jafnframt er mikilvægt að taka fram að verkir lagast ekki hjá öllum sem fara í aðgerð. Í gæðakönnuninni voru einkenni mun betri eða betri í 44% og 38% tilfella (samtals 82%). Þau voru svipuð hjá 11%, nokkuð verri hjá 5% og mun verri hjá 2% þátttakenda. Einnig er þekkt að endómetríósa og einkenni henni tengd geta komið fram aftur með tímanum og hyggjumst við rannsaka tíðni þess í okkar þýði þegar fram líða stundir. Þrátt fyrir þessa annmarka er áhugavert að skoða fækkun fjarvistardaga frá vinnu. Þegar þetta er yfirfært í efnahagslegt samhengi með hliðsjón af meðallaunum á Íslandi virtist aukin framleiðni vega upp kostnað við aðgerðina á fáeinum mánuðum. Þá eru ótalin hugsanleg sparnaðaráhrif vegna minni lyfjanotkunar, færri komna á bráðamóttöku, minni ófrjósemi og margvísleg áhrif á samlíf og lífsgæði almennt. Aðgerð við endómetríósu á Klíníkinni kostar ríkið að meðaltali um 953 þúsund krónur. Fækkun fjarvista um 58 daga á ári jafngildir hins vegar um 2.440 þúsund króna verðmæti á hvern sjúkling. Heildarávinningur samfélagsins einungis vegna minni fjarvista frá vinnu af þeim 187 aðgerðum sem gerðar voru árið 2025 er því áætlaður um 457 milljónir króna. Ríkið fær hluta af þessum ávinningi til baka í gegnum skatta og sparnað vegna færri heimsókna á bráðamóttöku og e.t.v. minni þörf fyrir frjósemismeðferðir, sem eru að hluta niðurgreiddar. Mikilvægt er að taka fram að þetta er ekki formleg efnahagsleg greining, heldur vísbending. Þessi vísbending samræmist engu að síður því sem við sjáum í daglegri klínískri vinnu og er í samræmi við nýlega nýsjálenska rannsókn (Tewhaiti-Smith o.fl., tímaritið Women, 2025) þar sem gerð var formleg þjóðhagsleg greining á áhrifum endómetríósu; þar reyndist framleiðnitap langstærsti einstaki kostnaðarþátturinn, um tveir þriðju heildarkostnaðar. Endómetríósa er algengur sjúkdómur sem hefur áhrif á oft annars ungar og hraustar konur og hefur í för með sér mikinn kostnað, bæði í þjáningu og skertri þátttöku í námi og atvinnulífi. Með því að grípa snemma inn í sjúkdómsferlið, fyrst með lyfjagjöf og svo með skurðaðgerð ef þörf er á, er hægt að skila markverðum samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi. Því miður hafa fjárveitingar til þessa málaflokks dregist saman og biðlistar hafa því lengst verulega hjá Klíníkinni. Lætur nú nærri að bið eftir aðgerð hjá okkur sé um tvö ár. Þessi langa bið er óásættanleg enda veldur hún mikilli skerðingu á lífsgæðum ásamt því að minnka vinnuframlag þeirra sem eru á biðlista um nærri þrjá vinnumánuði á ári. Það hefur í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir þjóðfélagið sem hægt væri að koma í veg fyrir með auknum fjárveitingum til þessa málaflokks. Höfundur er læknir og framkvæmir aðgerðir vegna endómetríósu á Klíníkinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Kvenheilsa Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar