Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Lovísa Arnardóttir skrifar 3. júlí 2026 15:03 Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri, segir reksturinn ekki hafa gengið eins vel og eigendur höfðu vonað. Vísir/Vilhelm Loka á kaffihúsi Te og kaffi á Suðurlandsbraut um miðjan júlímánuð. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, segir reksturinn aldrei hafa náð þeim hæðum sem þau hafi viljað og því fari þau nú þegar leigusamningur rennur út.
Tveir fastráðnir starfsmenn eru á kaffihúsinu sem halda sinni vinnu og hlutastarfsfólk heldur áfram að flakka á milli kaffihúsa eins og það hefur gert hingað til. Guðmundur segir aðrar breytingar ekki fyrirhugaðar hjá fyrirtækinu. Hinir sjö staðirnir verði áfram opnir og reksturinn gangi vel þar. Kaffihúsið er rekið í sama húsi og skrifstofur Sýnar. Vísir/Anton Brink „Veitingarekstur er krefjandi í eðli sínu en hinir staðirnir ganga vel og við höfum fullan hug á því að halda áfram þar og gera enn betur,“ segir Guðmundur en að reksturinn á Suðurlandsbraut hafi verið með öðrum hætti þau tíu ár sem þau hafa verið þar. „Við höfum aldrei náð upp þeirri veltu þarna sem við hefðum þurft til að láta hlutina ganga, því miður.“ Mikið hefur verið rætt um rekstur fyrirtækja á Suðurlandsbraut í tengslum við skipulagsbreytingar sem á að gera á götunni. Guðmundur tekur þó fram að ákvörðun þeirra um að loka sé alls ekki tengd þeim. Ákvörðunin hafi legið fyrir í nokkurn tíma. Halda enn áfram annars staðar „Við höfum verið að bíða af okkur þennan leigusamning,“ segir hann og að þeir sjö staðir sem eftir eru verði enn opnir og verði áfram reknir af sömu ástríðu. „Það eru allir velkomnir sem vilja heimsækja okkur þangað.“ Sigmundur Dýrfjörð og Berglind Guðbrandsdóttir stofnuðu Te og kaffi árið 1984. Fyrsta verslun þeirra var í kjallara við Barónsstíg í Reykjavík en flutti síðar í húsnæði við Laugaveg þar sem þau ráku bæði verslun og kaffihús. Fyrirtækið stofnaði kaffibrennslu í Hafnarfirði árið 1987. Kaffihús fyrirtækisins voru 14 talsins árið 2017 en verða sjö eftir lokun á Suðurlandsbraut.
Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira