Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Árni Jóhannsson skrifar 2. júlí 2026 21:33 Tryggvi var í villuvandræðum gegn Ítalíu en náði samt að troða harkalega á þá. Vísir / Anton Brink Ísland mætti Ítalíu í næst síðasta leik liðsins í undankeppni HM 2027 í körfubolta. Eftir jafnvægi í upphafi þá sigldu Ítalir hægt og rólega framúr. Hittni þeirra var ógurleg og það var alveg sama hvað Ísland reyndi þá hittu Ítalirnir ótrúlega vel. Lokatölur 83-102 og Ísland þarf að vinna Breta til að komast áfram. Vísir / Anton Brink Leikurinn hófst í miklu jafnvægi. Ítalía átti fyrsta högg en Ísland náði að svara, komast yfir og svo skiptast á höggum gegn ítalska liðinu. Martin Hermannsson var frábær fyrir Ísland í fyrsta leikhluta og skoraði 13 stig og manni fannst þau öll skipta máli í því að Ísland hélt í við Ítali sem vor feti framar í upphafi. Kristinn Pálsson á leið að körfunni.Vísir / Anton Brink Dómarateymið fannst flestum ekki byrja leikinn vel en Tryggvi Snær Hlinason var kominn með þrjár villur í lok fyrsta leikhluta og þurfti hann að setjast niður og passa sig það sem eftir lifði leiks. Ítalía nýtti það ekki til fulls og Elvar Már Friðriksson setti niður þrjú víti í lok leikhlutans til að minnka muninn í tvö stig 25-27. Almar Atlason kom inn á og setti niður þrist til að koma Íslandi yfir 28-27 en svo syrti í álinn fyrir íslenska liðið. Ítalía hitti ótrúlega vel í kvöld og þegar annar leikhluti var hálfnaður var staðan orðin 36-45 og Ítalirnir komnir í sinn besta gír. Ísland náði á móti ekki að grípa þau tækifæri sem þeir fengu og áfram héldu gestirnir að fá villur en þeir enduðu á að taka 20 víti í fyrri hálfleik og setja niður 15 af þeim. Staðan í hálfleik var 46-58 fyrir gestina en það var enn von á því að Ísland kæmist á sprett til að draga Ítalina nær sér. Sá sprettur kom ekki. Nico Mannion sem hafði skorað fjögur stig í fyrri hálfleik setti Ítalina á bakið og sallaði niður átta stigum í upphafi seinni hálfleiks og áður en við var litið var staðan orðin 46-64 og orkan engin í liði Íslands. Íslenska liðið skoraði ekki nema fjögur stig fyrstu fimm mínútur hálfleiksins og gestirnir frá Ítalíu gengu á lagið. Ítalir juku forskot sitt jafnt og þétt og var það komið yfir 20 stigin þegar um fjórar mínútur lifðu af þriðja leikhluta. Lokað á Jón Axel. Lýsandi fyrir upphaf seinni hálfleiksins.Vísir / Anton Brink Ísland hélt áfram að glutra tækifærunum sínum niður og til dæmis um það er hægt að líta á sóknarfrákasta baráttuna. Ítalía tók einu sóknarfrákasti meira en Ísland en skoraði úr þeim 14 stigum fleira en heimamenn. 4-18 var staðan í þeim flokki og lýsandi dæmi um gang leiksins. Fjórði leikhluti var svo formsatriði fyrir gestina en Ísland náði aldrei að ógna forskotinu. Ítalía vann leikinn 83-102 og var sigurinn sanngjarn. Hittni gestanna var frábær og hittu þeir úr 80% tveggja stig skota sinna á löngum kafla í leiknum. Ísland réði ekki við þá og Ítalir betra liðið í dag. Ítalía var ofan í baráttunni oft og tíðum.Vísir / Anton Brink Ísland þarf því að vinna Bretland á sunnudaginn til að komast áfram og eru strákarnir því á leiðinni í úrslitaleik í Manchester á sunnudaginn kl. 14. Við vitum að þeir eiga að geta unnið breska liðið og nú mæta þeir með bakið upp við vegg. Atvik leiksins Áhlaupið sem Ítalía hóf í upphafi seinni hálfleiks var undirstrikað með frábærri troðslu Nico Mannion yfir Tryggva sem réði ekkert við leikstjórnandann sem komst á flug. Stjörnur og skúrkar Martin Hermannsson var stigahæstur í liði Íslands og skoraði 22 stig í leiknum. Sóknarleikur Íslands var kannsk ekki vandamálið í kvöld en varnarleikurinn hefði kannski getað verið betri en það skipti eiginlega ekki máli hvað var reynt því Ítalía hitti úr öllu. Martin Hermannsson fann sig vel í kvöld.Vísir / Anton Brink Allir nem tveir leikmenn Ítalíu komust á blað í kvöld. Stigahæstir voru Stefano Tonut og Amedeo Tessitori með 15 stig. Tessitori naut þess lengi í hve miklum villuvandræðum Tryggvi var en hann t.a.m. setti niður fimm víti af sex. Tonut var handfylli fyrir okkar menn í kvöld.Vísir / Anton Brink Umgjörð og stemmning Stappfulltí Laugardalshöllinni og létu íslensku áhorfendurnir vel í sér heyra lengi vel. Ítölunum gekk þó vel í að lækka í þeim róminn og drepa neistana sem mynduðust með hverri körfunni á fætur annarri. Dómararnir Leikur tveggja hálfleikja hjá dómurum leiksins. Eins og ég sagði áðan þá fengu Ítalir 20 vítaskot gegn sex í fyrri hálfleik og manni fannst halla á heimamenn. Dómgæslan lagaðist í seinni hálfleik en fimmta villan á Tryggva var ekki mikil villa en kostaði Tryggva heimildina til að spila. Vísir / Anton Brink HM 2027 í körfubolta
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn