Viðskipti innlent

„Maður er reiður og sár“

Eiður Þór Árnason skrifar
Páll Pálsson fasteignasali veltir nú fyrir sér hvort hann þurfi að elta uppi 20.000 sólmyrkvagleraugu.
Páll Pálsson fasteignasali veltir nú fyrir sér hvort hann þurfi að elta uppi 20.000 sólmyrkvagleraugu. Vísir/arnar

Páll Pálsson fasteignasali má ekki reka samnefnda fasteignasölu samkvæmt lögbanni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Páll hefur rekið Pálsson fasteignasölu í gegnum félagið PP Fasteignasala ehf. frá árinu 2022 og er með sautján starfsmenn. Í október var nýtt félag stofnað undir sama nafni og í kjölfarið farið fram á að Páll myndi hætta notkun eftirnafnsins.

„Ég hafnaði því og til að gera langa sögu stutta þá fóru þau fram á lögbann á að ég myndi nota þetta vörumerki sem sýslumaður samþykkir.“ Páll segir óskiljanlegt að fulltrúi sýslumanns hafi fallist á lögbannsbeiðnina.

„Þetta eru aðilar sem hafa aldrei rekið fasteignasölu og eru ekki með skráð neins staðar vörumerkið Pálsson fasteignasala.“ Þeir hafa nú viku til að höfða staðfestingarmál fyrir dómi svo lögbannið falli ekki úr gildi. Þar verður málið útkláð og því óljóst hvort ákvörðunin standi. 

Í vandræðum með tuttugu þúsund sólmyrkvagleraugu

Páli var tilkynnt um lögbannið í gær en þar er félagi hans PP fasteignasölu ehf. bannað að nota Pálsson í atvinnustarfsemi sinni, á vefmiðlum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og annarri markaðssetningu.

„Næsta skref hjá mér er að ég ætla að hætta að nota Pálsson. Það er bara þannig. Um það snýst lögbannið. Ég ætla að finna einhverja lausn á því.“

„Ég veit ekki hvernig á að bregðast við þessu. Við erum búin að framleiða til dæmis 20.000 sólmyrkvagleraugu. Ég gaf 18.000 til íþrótta- og líknarfélaga og þau eru að selja þetta í fjáröflunarskyni. Þar stendur Pálsson fasteignasala. Á maður að hætta að nota þetta? Ég er með merkið mitt utan á húsi. Á ég að taka það niður?“

Eins og hann myndi hjóla í Brim

Páll er með þekktari fasteignasölum landsins, hefur reglulega komið fram í fjölmiðlum og segist hafa lagt „blóð, svita, tár, svefnlausar nætur og vinnu allan sólarhringinn“ í reksturinn. Hann telur að hinir aðilarnir reyni nú að notfæra sér þetta uppbyggingarstarf og hefur áhyggjur af orðsporshættu sinni ef eitthvað fer úrskeiðis hjá þeim.

Páll hefur reglulega mætt í fjölmiðla til að fara yfir horfurnar á fasteignamarkaði.Bylgjan

„Ég bara skil ekki svona,“ bætir Páll við og líkir þessu við að hann myndi byrja að framleiða bjór undir heitinu Brim og fengi svo sýslumann til að banna samnefndu útgerðarfélagi að nota vörumerki sem það hefur verið með til fjölda ára. Lögfræðingur hans skoði nú næstu skref.

„Mér finnst þetta bara allt of langt gengið í einhverju rugli. Maður er reiður og sár. Fyrir mér er þetta ekki rétt og heiðarlegt.“

Páll tekur fram að hann telji að eigendur fyrirtækisins eigi í sjálfu sér rétt á því að fara í þessa vegferð.

„En að sýslumaður skuli taka þessa afstöðu og setja lögbann á að ég megi nota vörumerkið. Það finnst mér ótrúlegt.“

Hitt Pálssonveldið færir út kvíarnar

Páll vill ekki tilgreina fyrirtækið sem á í hlut á þessu stigi máls en opinber gögn sýna að félagið Pálsson fasteignasala ehf. var skráð í október 2025. Það er að hluta í eigu Jóns Óskars Karlssonar fasteignasala en félagið er með tengsl við Pálssonsamstæðuna sem veitir þjónustu á sviði bókhalds, lögfræði og endurskoðunar og er rekin í félögum á borð við Pálsson ehf., Pálsson endurskoðun ehf. og Pálsson Law ehf. Pálsson tók yfir rekstur félags sem var að hluta í eigu Jóns Óskars árið 2022.

Kristjana Pálsdóttir lögfræðingur er skráð framkvæmdastjóri Pálsson fasteignasölu ehf. og eini stjórnarmaður þess en hún er hluti af eigendahópi Pálsson Law.

Guðmundur Kristinn Pálsson er varamaður í stjórn Pálsson fasteignasölu ehf. en hann er einn þriggja eigenda Pálssonsamstæðunnar. Einnig er nýja félagið skráð í sömu byggingu og Pálsson.

Heimasíða Pálssonsamstæðunnar.Skjáskot

Skiptu um nafn í fyrra

Áðurnefnd samstæða hét um tíma &Pálsson en á síðasta ári var &-táknið fjarlægt úr fyrirtækjanöfnum og tilkynningum félagsins. Þannig varð &Pálsson ehf. og &Pálsson endurskoðun ehf. til að mynda að Pálsson ehf. og Pálsson endurskoðun ehf.

&Pálsson er skráð vörumerki hjá Hugverkastofu en móðurfélagið óskaði í október eftir því að fá Pálsson skráð sömuleiðis. Sú skráning er enn til meðferðar hjá Hugverkastofu eftir að henni var andmælt.

Páll sótti um skráningu Pálsson fasteignasölu í október og er hún enn til meðferðar hjá Hugverkastofu vegna andmæla sem bárust eftir að vörumerkið var birt í Hugverkatíðindum.

Heimasíða Pálsson fasteignasölu.Skjáskot

„Það eru margir að nota Pálsson. Það er eitthvað sem heitir Pálsson heildverslun eða var og H Pálsson sem flytur inn prentara og svona dót og hann á palson.is lénið,“ segir Páll. Hann geri því ekki athugasemd við að aðrir notist við Pálsson í sínum rekstri. 

Það sé annað mál þegar aðili sem hafi ekki notað heitið Pálsson í samhengi við fasteignasölu reyni að koma í veg fyrir að hann geri það áfram. Sjálfur sótti Páll um að fá vörumerkið Pálsson skráð í febrúar og er málið enn til meðferðar hjá Hugverkastofu.

Hér er Pálsson, um Pálsson, frá Pálssyni til Pálssonar

Af öllum áðurnefndum Pálsson-tengdum vörumerkjum er &Pálsson það eina sem telst fullskráð, samkvæmt vef Hugverkastofu

Staða vörumerkjaskráninganna hjá Hugverkastofu.

Páll viðurkennir að það hefði verið heppilegra að passa betur upp á vörumerki sitt í upphafi.

„Auðvitað hefði ég átt að skrá Pálsson fasteignasala hjá Hugverkastofu, sem ég er búinn að gera, en ég viðurkenni að ég var ekkert að hugsa út í það og það bara hvarflar ekki að mér að einhver hugsi svona.“

Könnuðu ekki hvort viðskiptamenn sættu þvingunaraðgerðum

Áður en &Pálsson ehf. felldi &-merkið í fyrra gerði það sátt við embætti ríkisskattstjóra þann 10. júlí 2025 vegna brota gegn ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Benti athugun til þess að áreiðanleikakönnunum hefði ekki verið sinnt og þær í mörgum tilvikum fyrst verið sendar á einstaklinga og lögaðila eftir að athugun ríkisskattstjóra hófst.

&Pálsson gerði sátt við Skattinn í fyrra. Vísir/Vilhelm

Einnig taldi ríkisskattstjóri könnun félagsins á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla vera ófullnægjandi. „Raunverulegt eignarhald var ekki kannað í mörgum tilvikum fyrr en eftir að athugun ríkisskattstjóra hófst,“ segir í ákvörðun embættisins.

Þá viðurkenndi félagið meðal annars að svonefnd aukin áreiðanleikakönnun hefði ekki verið framkvæmd í tilviki þar sem raunverulegur eigandi var í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og að ekki hefðu verið framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur sættu alþjóðlegum þvingunaraðgerðum í upphafi viðskipta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×