„Maður er reiður og sár“ Eiður Þór Árnason skrifar 27. júní 2026 15:17 Páll Pálsson fasteignasali veltir nú fyrir sér hvort hann þurfi að elta uppi 20.000 sólmyrkvagleraugu. Vísir/arnar Páll Pálsson fasteignasali má ekki reka samnefnda fasteignasölu samkvæmt lögbanni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Páll hefur rekið Pálsson fasteignasölu í gegnum félagið PP Fasteignasala ehf. frá árinu 2022 og er með sautján starfsmenn. Í október var nýtt félag stofnað undir sama nafni og í kjölfarið farið fram á að Páll myndi hætta notkun eftirnafnsins. „
Ég hafnaði því og til að gera langa sögu stutta þá fóru þau fram á lögbann á að ég myndi nota þetta vörumerki sem sýslumaður samþykkir.“ Páll segir óskiljanlegt að fulltrúi sýslumanns hafi fallist á lögbannsbeiðnina. „Þetta eru aðilar sem hafa aldrei rekið fasteignasölu og eru ekki með skráð neins staðar vörumerkið Pálsson fasteignasala.“ Þeir hafa nú viku til að höfða staðfestingarmál fyrir dómi svo lögbannið falli ekki úr gildi. Þar verður málið útkláð og því óljóst hvort ákvörðunin standi. Í vandræðum með tuttugu þúsund sólmyrkvagleraugu Páli var tilkynnt um lögbannið í gær en þar er félagi hans PP fasteignasölu ehf. bannað að nota Pálsson í atvinnustarfsemi sinni, á vefmiðlum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og annarri markaðssetningu. „Næsta skref hjá mér er að ég ætla að hætta að nota Pálsson. Það er bara þannig. Um það snýst lögbannið. Ég ætla að finna einhverja lausn á því.“ „Ég veit ekki hvernig á að bregðast við þessu. Við erum búin að framleiða til dæmis 20.000 sólmyrkvagleraugu. Ég gaf 18.000 til íþrótta- og líknarfélaga og þau eru að selja þetta í fjáröflunarskyni. Þar stendur Pálsson fasteignasala. Á maður að hætta að nota þetta? Ég er með merkið mitt utan á húsi. Á ég að taka það niður?“ Eins og hann myndi hjóla í Brim Páll er með þekktari fasteignasölum landsins, hefur reglulega komið fram í fjölmiðlum og segist hafa lagt „blóð, svita, tár, svefnlausar nætur og vinnu allan sólarhringinn“ í reksturinn. Hann telur að hinir aðilarnir reyni nú að notfæra sér þetta uppbyggingarstarf og hefur áhyggjur af orðsporshættu sinni ef eitthvað fer úrskeiðis hjá þeim. Páll hefur reglulega mætt í fjölmiðla til að fara yfir horfurnar á fasteignamarkaði.Bylgjan „Ég bara skil ekki svona,“ bætir Páll við og líkir þessu við að hann myndi byrja að framleiða bjór undir heitinu Brim og fengi svo sýslumann til að banna samnefndu útgerðarfélagi að nota vörumerki sem það hefur verið með til fjölda ára. Lögfræðingur hans skoði nú næstu skref. „Mér finnst þetta bara allt of langt gengið í einhverju rugli. Maður er reiður og sár. Fyrir mér er þetta ekki rétt og heiðarlegt.“ Páll tekur fram að hann telji að eigendur fyrirtækisins eigi í sjálfu sér rétt á því að fara í þessa vegferð. „En að sýslumaður skuli taka þessa afstöðu og setja lögbann á að ég megi nota vörumerkið. Það finnst mér ótrúlegt.“ Pálsson er víða Páll vill ekki tilgreina fyrirtækið sem á í hlut á þessu stigi máls en samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða Pálsson ehf. Pálssonsamstæðan veitir þjónustu á sviði bókhalds, lögfræði og endurskoðunar í gegnum áðurnefnt félag og önnur á borð við Pálsson endurskoðun ehf. og Pálsson Law ehf. Pálsson ehf. hefur verið starfrækt frá árinu 2016 en hét þá Pálsson & Co ehf. Heimasíða Pálssonsamstæðunnar.Skjáskot Félagið Pálsson fasteignasala ehf. var svo skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins í október 2025. Það er að hluta í eigu Jóns Óskars Karlssonar fasteignasala en Pálssonsamstæðan tók yfir rekstur annars félags sem var að hluta í eigu hans árið 2022. Kristjana Pálsdóttir lögfræðingur er skráð framkvæmdastjóri Pálsson fasteignasölu ehf. og eini stjórnarmaður þess en hún er hluti af eigendahópi Pálsson Law. Þá er Guðmundur Kristinn Pálsson varamaður í stjórn Pálsson fasteignasölu ehf. en hann er einn þriggja eigenda Pálssonsamstæðunnar. Einnig er nýja félagið skráð í sömu byggingu og Pálsson. Skiptu um nafn í fyrra Áðurnefnd Pálssonsamstæða hét um tíma &Pálsson en á síðasta ári var &-táknið fjarlægt úr fyrirtækjanöfnum og tilkynningum félagsins. Þannig varð &Pálsson ehf. og &Pálsson endurskoðun ehf. til að mynda að Pálsson ehf. og Pálsson endurskoðun ehf. &Pálsson er skráð vörumerki hjá Hugverkastofu en móðurfélagið óskaði í október eftir því að fá Pálsson skráð sömuleiðis. Sú skráning er enn til meðferðar hjá Hugverkastofu eftir að henni var andmælt. Páll sótti um skráningu Pálsson fasteignasölu í október og er hún enn til meðferðar hjá Hugverkastofu vegna andmæla sem bárust eftir að vörumerkið var birt í Hugverkatíðindum. Heimasíða Pálsson fasteignasölu.Skjáskot „Það eru margir að nota Pálsson. Það er eitthvað sem heitir Pálsson heildverslun eða var og H Pálsson sem flytur inn prentara og svona dót og hann á palson.is lénið,“ segir Páll. Hann geri því ekki athugasemd við að aðrir notist við Pálsson í sínum rekstri. Það sé annað mál þegar aðili sem hafi ekki notað heitið Pálsson í samhengi við fasteignasölu reyni að koma í veg fyrir að hann geri það áfram. Sjálfur sótti Páll um að fá vörumerkið Pálsson skráð í febrúar og er málið enn til meðferðar hjá Hugverkastofu. Farið fram á skráningu vörumerkja Af öllum áðurnefndum Pálsson-tengdum vörumerkjum er &Pálsson það eina sem telst fullskráð, samkvæmt vef Hugverkastofu Staða vörumerkjaskráninganna hjá Hugverkastofu. Páll viðurkennir að það hefði verið heppilegra að passa betur upp á vörumerki sitt í upphafi. „Auðvitað hefði ég átt að skrá Pálsson fasteignasala hjá Hugverkastofu, sem ég er búinn að gera, en ég viðurkenni að ég var ekkert að hugsa út í það og það bara hvarflar ekki að mér að einhver hugsi svona.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Sjá meira