30% lækkun skiptir sveitir landsins máli Axel Sæland skrifar 16. júní 2026 14:32 Sveitir landsins eiga að búa við sömu tækifæri og þéttbýlið. Það ætti að vera sjálfsagt réttlætismál í samfélagi sem vill standa vörð um jafnræði, búsetufrelsi og öfluga innviði um allt land. Samt greiða heimili og fyrirtæki í dreifbýli hærra verð fyrir rafmagn en þau sem eru í þéttbýli, þótt um sé að ræða sömu grunnþjónustu. Þetta felur í sér raunverulegt kostnaðaróhagræði fyrir þá sem eru í dreifbýli og getur numið verulegum fjárhæðum á ári. Nú liggur fyrir frumvarp á Alþingi sem á að jafna dreifikostnað raforku milli landsvæða þannig að dreifbýlið greiði sambærilegt gjald fyrir hverja kílóvattstund og þéttbýlið. Það er mikilvægt skref í átt að sanngjarnara kerfi og skýr yfirlýsing um að búseta og atvinnustarfsemi utan stærstu þéttbýliskjarnanna eigi ekki sjálfkrafa að fela í sér hærri kostnað vegna grunninnviða. Vissulega yrði þetta einhver hækkun fyrir notendur í þéttbýli, en sú hækkun er lítil í samanburði við þann ávinning sem breytingin skilar fyrir sveitirnar og þar með samfélagið í heild. Hér er ekki um sérmeðferð að ræða heldur leiðréttingu á kerfi sem hefur lengi lagst þyngra á þá sem eru utan stærstu þéttbýliskjarnanna. Þetta er hóflegaðgerð til að tryggja sanngjarnari rekstrarskilyrði um allt land. Fyrir landbúnaðinn geta áhrifin verið umtalsverð. Fyrir t.a.m. meðal kúabú gæti 30% lækkun á dreifikostnaði raforku numið rúmlega 40.000 kr. á mánuði, eða um 480.000 kr. á ári. Fyrir mörg bú er það fjárhæð sem skiptir máli á tímum þar sem aðföng, vextir og annar rekstrarkostnaður hafa hækkað mikið. Fyrir garðyrkjustöðvar geta áhrifin orðið enn meiri. Þar gæti 30% lækkun numið 200.000 til 400.000 kr. á mánuði, allt eftir árstíma og umfangi starfseminnar. Í orkufrekri starfsemi eru þetta verulegar upphæðir sem geta styrkt rekstrargrundvöll, aukið fyrirsjáanleika og stutt við innlenda matvælaframleiðslu ásamt atvinnu í heimabyggð. Málið snýst ekki aðeins um rafmagnsreikninga heldur um það hvers konar land við viljum byggja. Viljum við að fólk geti búið og starfað um allt land á sambærilegum forsendum, eða sættum við okkur við að grunninnviðir kosti meira eftir búsetu? Ef við viljum jafna tækifæri eigum við að styðja þessa breytingu. Ég hvet því þingmenn til að samþykkja frumvarp Jóhanns Páls, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, og taka mikilvægt skref í átt að því að jafna leikinn milli dreifbýlis og þéttbýlis í raforkumálum. Höfundur er varaformaður Bændasamtaka Íslands og formaður deildar garðyrkjubænda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landbúnaður Garðyrkja Matvælaframleiðsla Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar