Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Freyja Þórisdóttir skrifar 13. júní 2026 08:55 Samruninn hefur verið umdeildur og hafa verið gerðir undirskriftalistar þar sem fólk í kvikmyndageiranum mótmælir kaupunum. Getty Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna.
Kaup Paramount Skydance á Warner Bros Discovery hljóða upp á hundrað og ellefu milljarða dala eða um fjórtán billjónir íslenskra króna. Í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir að samþykkið sé lykilþáttur í samrunanum sem muni „endurmóta fjölmiðlalandslagið“ en að salan hafi verið umdeild. David Ellison, forstjóri Paramount, sé sonur Larry Ellison, sem sé stór styrktaraðili Donalds Trump forseta. Með yfirtöku á Warner Bros verður Paramount eitt stærsta aflið í Hollywood og bætir fréttastöðinni CNN, sjónvarpsstöðvunum HBO, TBS, TNT, TCM, auk kvikmyndaveranna DC Studios og New Line Cinema við núverandi eignasafn sitt. Þar á meðal eru Paramount Pictures, CBS, Showtime og Nickelodeon. Yfirráð Paramount yfir CBS News og þættinum 60 Minutes hafa verið harðlega gagnrýnd vegna dagskrárákvarðana sem gagnrýnendur segja að hygli Trump-stjórninni, þar á meðal að ný stjórn hafi rekið starfsfólk með langan starfsaldur og þekkta blaðamenn. Skákaði tilboði Netflix Ríflega fjórtán þúsund leikarar, leikstjórar og kvikmyndagerðarmenn í Hollywood skrifuðu undir opið bréf í apríl þar sem þeir mótmæltu samrunanum. „Niðurstaðan verður færri tækifæri fyrir höfunda, færri störf í framleiðsluvistkerfinu, hærri kostnaður og minna val fyrir áhorfendur í Bandaríkjunum og um allan heim,“ sögðu undirritaðir. Warner Bros var fyrst til sölu á síðasta ári og gerði þá samning við Netflix um kaup á hluta eigna sinna, í samningi sem var metinn á um 82 milljarða dala, tíu billjónir íslenskra króna, að meðtöldum skuldum. Paramount gerði samkeppnistilboð, sem Warner Bros hafnaði, en fyrirtækið gafst ekki upp og hækkaði tilboð sitt í upphæð sem Netflix sagði að væri „ekki lengur fjárhagslega aðlaðandi“ að reyna að mæta. En samkvæmt frétt BBC er þetta ekki frágengið mál enn þá, þar sem ríki eins og Kalifornía séu enn að fara yfir söluna og gætu höfðað mál til að stöðva hana.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Netflix Streymisveitur Donald Trump Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira