Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar 12. júní 2026 09:02 Ábyrg fjármálastjórn ríkisins byggist á einföldu grundvallaratriði: markmið og forsendur verða að fara saman. Breytist forsendurnar umtalsvert þarf að leggja ný gögn á borðið, endurmeta stöðuna af varfærni og tryggja að Alþingi taki ákvörðun um fjármál ríkisins á traustum grunni. Það er ekki gert að þessu sinni með fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Minna en einn strætómiði Fjármálaáætlun 2027–2031, sem fjárlög næsta árs byggja á, gerir enn ráð fyrir að A1-hluti ríkissjóðs skili 1,1 milljarði króna í afgang árið 2027. Um er að ræða lykiláherslu ríkisstjórnarinnar við efnahagsstjórn landsins. Þessi tala kann að hljóma sannfærandi við fyrstu sýn. Er ekki mikið afrek að ná hallalausum fjárlögum um meira en milljarð króna? En í ríkisrekstri þar sem heildargjöld nema um 1.680 milljörðum króna og vaxtagjöld ein og sér 143 milljörðum er þetta sáralítið svigrúm, ef svigrúm má kalla. Afgangurinn nemur aðeins um 0,065% af heildargjöldum ríkissjóðs. Setjum það í samhengi sem allir þekkja. Heimili með 800.000 krónur í mánaðarleg útgjöld væri þá að stefna á að eiga um 523 krónur eftir í lok mánaðar. Fullorðinsmiði í strætó kostar nú 690 krónur. Afgangur heimilisins dugar því ekki einu sinni fyrir einni ferð með strætó. Forsendurnar hafa brostið Þetta væri þó ekki endilega ómálefnalegt eða óásættanlegt markmið ef það byggði a.m.k. á traustum og uppfærðum forsendum og líkur væru á að það næði fram að ganga. Vandinn er að svo er ekki heldur. Frá framlagningu áætlunarinnar hafa forsendur hennar veikst verulega, og meiri hluti fjárlaganefndar viðurkennir það sjálfur, sem er í raun ansi athyglisvert. Samt er áfram byggt á þessum veiku forsendum. Ný þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands frá því í maí gerir þannig ráð fyrir meira atvinnuleysi en áætlunin byggir á. Hvert prósentustig atvinnuleysis getur kostað ríkissjóð níu til tíu milljarða króna, og spáin gerir nú ráð fyrir um 0,7 prósentustigum meira atvinnuleysi en áður. Þá leiða breytingar á frumvarpi um atvinnuleysistryggingar til þess að útgjöld ríkissjóðs lækka um 1,2 milljörðum minna en gert var ráð fyrir, strax á næsta ári. Þegar þessi tvö frávik eru lögð saman er afgangurinn upp á 1,1 milljarð ekki aðeins horfinn heldur hefur myndast umtalsverður halli. Staðreyndin er sú að allt bendir til þess að afkoma ársins 2027 verði neikvæð sem nemi um 10 milljörðum króna, að öðru óbreyttu, þegar aðeins þessar tvær ofangreindu forsendubreytingar eru teknar með í reikninginn. Og fleiri forsendur hafa brostið. Þetta er því sagan um afganginn sem hvarf. Hvernig markmiðum verður náð Þessi gagnrýni snýst engan veginn um að gera lítið úr markmiðinu um hallalausan rekstur. Þvert á móti. Öguð ríkisfjármál eru ein helsta forsenda þess að ná niður verðbólgu og vöxtum, Vonandi næst það markmið von bráðar. Það er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra. En trúverðug fjármálastjórn byggist ekki á því að halda markmiðum óbreyttum eftir að forsendurnar hafa brostið. Hún byggist á því að sýna, með uppfærðum gögnum hvernig markmiðum verður náð við þær aðstæður sem raunverulega eru uppi. Byggjum á trúverðugum gögnum Ný spá Seðlabankans frá því í maí liggur fyrir. Samt er Alþingi beðið um að fjalla um og eftir atvikum samþykkja áætlunina óbreytta þótt hún byggi á spá Seðlabankans frá því í febrúar sl. Og bíða á með endurmat fram á haust. Hér er öllu snúið á hvolf. Alþingi verður að gera kröfu til þess að fá uppfært mat á afkomu, skuldum og lánsfjárþörf ríkisins áður en það greiðir atkvæði um fjármálaáætlun, en ekki eftir á. Þess vegna leggur Framsókn til að fjármálaáætluninni verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar, svo leggja megi réttar og uppfærðar tölur á borðið. Það er lágmarkskrafa að ákvarðanir um fjármál þjóðarinnar séu teknar á grundvelli nýjustu gagna og upplýsinga. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar