Hefja rannsókn á Ryanair Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júní 2026 22:38 Forsvarsmenn Ryanair segja að um falska rannsókn sé að ræða. Getty Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð.
Eftirlitið hefur til rannsóknar hvort að stefna flugfélagsins um að leggja átta punda gjald, rúmar þrettán hundruð krónur, á hverja flugferð svo foreldrar og börn sitji saman sé sanngjörn og í samræmi við neytendalög. Í skilmálum Ryanair segir að sé barnið á aldrinum tveggja til ellefu ára þurfi foreldri að sitja við hlið þess samkvæmt umfjöllun BBC. Ryanair sé eina stóra breska flugfélagið sem leggur á slíkt gjald á meðan önnur flugfélög bjóði upp á að börn sætu við hlið foreldris eða forráðamanns án gjalds. Tekið er fram að einungis sé verið að hefja rannsóknina og er ekki komin niðurstaða um hvort Ryanair hafi í raun brotið lög með gjaldinu. Forsvarsmenn Ryanair gáfu lítið fyrir fregnirnar og sögðu í yfirlýsingu að um væri að ræða falska rannsókn. „Þessi falska rannsókn Samkeppnis- og markaðseftirlitsins er misheppnuð tilraun Starmer-stjórnarinnar til að þykjast bera umhyggju fyrir neytendum þegar henni hefur mistekist að afnema ADP [flugfarþegagjald] sem myndi strax skila lægri fargjöldum fyrir alla neytendur,“ segir í yfirlýsingunni. „Ryanair hlakkar til að hrekja þessar fölsku fullyrðingar eftirlitsins í þessari fölsku rannsókn.“
Flug Bretland Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira