Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2026 17:55 Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson geta fagnað vel með liðsfélögum sínum í kvöld. @kolstadhandball Íslendingarnir voru áberandi þegar Kolstad tryggði sér í kvöld 2-0 sigur gegn Drammen í lokaeinvíginu í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Kolstad fær þar með sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Kolstad hafði hafnað í 2. sæti deildarkeppninnar í Noregi, fjórum stigum á eftir meistaraliði Elverum sem féll svo hins vegar óvænt úr leik gegn Drammen í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Kolstad hóf úrslitaeinvígið á 34-30 sigri gegn Drammen á heimavelli og fagnaði svo afar öruggum sigri í Drammenshallen í kvöld, 39-24, eftir að hafa verið 18-11 yfir í hálfleik. Benedikt Gunnar Óskarsson var sem fyrr áberandi í liði Kolstad en hann skoraði fjögur mörk og var með heilar sjö stoðsendingar. Aðeins Simon Jeppsson, vítaskytta Kolstad, kom að fleiri mörkum með beinum hætti en hann skoraði þrettán mörk, þar af átta úr vítum, og átti sjö stoðsendingar líkt og Benedikt. Sigurjón Guðmundsson varði mark Kolstad að vanda og stóð sig með miklum sóma en hann varði 10 af 32 skotum, eða 31%. Kolstad var án landsliðsmannsins og fyrirliðans Sigvalda Björns Guðjónssonar í kvöld, vegna meiðsla, en hann heldur nú í sumar til Þýskalands, til liðs við Hannover-Burgdorf. Ísak Steinsson stóð í marki Drammen drjúgan hluta leiksins og varði 5 skot eða 22% þeirra sem hann fékk á sig. Sigurinn er kærkominn fyrir Kolstad sem neyðst hefur til að draga saman seglin vegna langvarandi fjárhagsvandræða og mun þurfa að hefja næstu leiktíð í norsku úrvalsdeildinni með tvö mínusstig af sömu sökum.
Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira